Fréttablaðið - 21.02.2014, Blaðsíða 4
21. febrúar 2014 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 4
300 tegundir steinda, eða þar um bil, hafa fundist
á Íslandi.
Meira en 4.000 tegundir steinda eru
þekktar í heiminum öllum.
Ef einhver steinn er merkisberi Íslands
í heimi steinda er það silfurberg, tært
afbrigði af kristölluðum kalksteini og
er mjög fágætt utan Íslands.
UMHVERFISMÁL „Mann grunar að
allt þetta ferli sé undirlægjuhátt-
ur við utanaðkomandi yfirvöld,“
segir Vigfús Andrésson í Berja-
nesi austan Holtsóss um fyrirhug-
aða lengingu varnargarðs vestan
Markarfljóts.
Vigfús er einn þeirra íbúa aust-
an Markarfljóts sem mótmælt
hafa áformaðri 250 metra lengingu
varnargarðsins. Beina á fljótinu
lengra til austurs til að freista
þess að minnka sandburð í Land-
eyjahöfn svo halda megi höfninni
oftar opinni fyrir farþegasiglingar
til og frá Vestmannaeyjum. Vigfús
gagnrýnir að sveitarstjórn Rang-
árþings eystra kalli röksemdir og
ótta íbúanna misskilning.
„Það sem íbúarnir vilja, ekki
síst þeir sem eiga heimili og lönd
að fljótinu, er að sveitarstjórnin
segi það skýrt og skorinort að
því aðeins verði leyft að lengja
þessa leiðigarða ef varnargarður
að austanverðu verður byggður
að minnsta kosti jafnhliða,“ segir
Vigfús sem undirstrikar að menn
óttist um lönd sín og mannvirki ef
Markarfljót flæðir til austurs inn
í Holtsós.
„Afleiðingarnar gætu orðið
geigvænlegar. En kannski vega líf
og limir íbúanna austan Markar-
fljóts minna en aðrir hagsmunir.
Það er ljótt að segja þetta, en hvað
á manni að detta í hug? Það er eng-
inn Eyfellingur á móti því að sam-
göngur batni til Eyja en röng stað-
setning hafnarinnar er rót þessa
vanda,“ segir Vigfús Andrésson.
- gar
Bóndi í Berjanesi við Holtsós gagnrýnir sveitarstjórn vegna lengingar varnargarðs við Markarfljót:
Segir annað ráða för en líf og limi íbúa
MARKARFLJÓT Íbúar austan fljóts-
ins vilja líka fá varnargarð ef lengja á
varnargarð á vesturbakkanum.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
VELFERÐARMÁL „Það alvarleg-
asta sem ég hef lent í var að vera
laminn. Það var áður en ég hóf
hormónameðferðina,“ segir Örn
Danival Kristjánsson, fram-
haldsskólanemi og varaformað-
ur Trans-Íslands. Tilefnið var
að hann notaði karlaklósett á
skemmtistað, sem ofbeldismenn-
irnir sögðu hann ekki eiga rétt á.
Í könnun sem Samtökin ´78
létu gera og sagt var frá í Frétta-
blaðinu í vikunni kom í ljós að
mikill meirihluti hinsegin fólks
mætir fordómum í daglegu lífi.
„Ég var í röð á leið á klósettið
og einhverjir voru að bögga mig
á meðan. Síðar þegar ég kom út
af skemmtistaðnum beið sami
hópur stráka og var með stæla.
Það endaði með því að einn
þeirra kýldi mig niður og annar
sparkaði í mig,“ segir Örn, en
þar með var ofbeldinu ekki lokið.
„Í leigubílnum á leiðinni heim
var ég í svo miklu uppnámi að
ég sagði leigubílstjóranum frá
því sem hafði gerst, en þá byrj-
aði hann með fordóma. Hann
sagði mér að mamma hans ynni
á sjúkrahúsi í Svíþjóð og hann
væri sammála henni um að
transfólk væri geðsjúklingar. Þá
komst ég í enn meira uppnám,“
segir hann.
Örn leitaði sér ekki aðstoðar,
hvorki hjá bráðadeild né lög-
reglunni. Hann segist hafa verið
hræddur við ofbeldismennina og
taldi að afskipti lögreglu gætu
haft frekari afleiðingar í för
með sér.
Atvikið hafði skýrar afleiðing-
ar fyrir Örn.
„Nú eru komin tvö ár síðan og
ég nota ekki ennþá almennings-
salerni. Fólk efast ekki um að ég
sé karlmaður í dag, en þetta situr
svo í mér að ég get það ekki,“
útskýrir Örn og viðurkennir að
það geti verið afar óþægilegt eftir
heilan dag í skólanum.
Einar Valur Einarsson kannast
vel við áreitni á skemmtistöðum
bæjarins.
„Það gerist aðallega á djamm-
inu. Maður þarf að forðast að
labba of neðarlega á Laugavegin-
um, þar lendir maður alltaf í ein-
hverju,“ segir hann.
Einar segir þá sem bera það
með sér að vera samkynhneigðir
lenda frekar í atvikum sem þess-
um. „Hommar sem eru með meira
bein í nefinu, sem sýna með lík-
amstjáningu að þeir eru sterkir,
lenda síður í þessu,“ segir Einar
og segist þekkja strák sem hafi
verið laminn af fimm fullorðn-
um körlum fyrir það eitt að líta
út fyrir að vera samkynhneigður.
Einar og Örn segja þá sem
beita ofbeldi oftast vera jafnaldra
stráka.
„Vanalega eru þetta strákar
sem vilja sýnast karlmannlegri.
Þeir eru að sýna sig hver fyrir
öðrum og reyna að vera kúl,“
segir Einar.
Þeir segja hins vegar alls kyns
fólk sýna fordóma með orðum eða
athöfnum. Þá séu fordómar ekki
bundnir við gagnkynhneigða.
„Það eru líka fordómar gagn-
vart transfólki innan Samtakanna
´78. Sumum finnst transfólk ekki
eiga þar heima,“ útskýrir Örn.
Hann bendir þó fólki sem upp-
lifir fordóma á að leita til sam-
takanna og þiggja ráðgjöf. „Verið
sterk, þið eruð ekki ein,“ segir
hann að lokum.
eva@frettabladid.is
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundur@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is,
Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is, Kolbeinn Kolbeinsson kolli@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is
FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
SVONA ERUM VIÐ
Grjóthálsi 7-11 110 Reykjavík
Sími 412 80 00 Fax 412 80 01
olgerdin@olgerdin.is www.olgerdin.is
Skrifstofur Ölgerðarinnar eru lokaðar
frá kl. 12 í dag, 21. febrúar, vegna
útfarar Ólafs Kr. Guðmundssonar
framkvæmdastjóra.
Hinsegin fólki ekki óhætt í
miðborginni eftir myrkur
Ný könnun leiðir í ljós að hinsegin fólk upplifir mikla fordóma. Tveir framhaldsskólanemar segja áreitnina sér-
staklega mikla á skemmtistöðum, en finnast alls staðar. Þeir sem bera það með sér að vera hinsegin eiga frekar
á hættu að vera áreittir. Stöðug ógn um að mæta fordómum og áreitni hefur áhrif á líf þeirra beggja.
MÆTA FORDÓMUM Af ótta við áreitni fara Einar og Örn ekki of neðarlega á Lauga-
veginn þegar þeir skemmta sér í miðborginni. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN.
Vanalega eru þetta
strákar sem vilja sýnast
karlmannlegri. Þeir eru að
sýna sig hver fyrir öðrum
og reyna að vera kúl
Einar Valur Einarsson
HEILBRIGÐISMÁL Fjöldi þeirra sem
greinast með inflúensu fer nú
hratt vaxandi. Alls hafa 52 tilfelli
greinst undanfarnar vikur.
Þetta kemur fram á vef land-
læknis. Þar segir að veikin sé
seinna á ferðinni nú í vetur en síð-
astliðin þrjú ár og hafi farið hægt
af stað. Hún virðist hins vegar
breiðast ört út um þessar mundir
en í síðustu viku greindust sautján
með inflúensu.
Embætti landlæknis minnir á að
hægt er að minnka líkur á því að fá
inflúensu eða smita aðra til dæmis
með bólusetningu eða því að þvo
sér oft um hendurnar. - bá
Flensan breiðir hratt úr sér:
Fleiri greinast
með inflúensu
Elísabet
Margeirsdóttir
veðurfréttamaður
Veðurspá
Sunnudagur
10-18 m/s NV-til og við SA-ströndina.
HELGARVEÐRIÐ Það dregur talsvert úr vindi á landinu til morguns en síst þó á
Vestfjörðum. Skýjað og snjókoma með köflum um norðan- og austanvert landið en
léttir smám saman til sunnan- og suðvestantil með líkur á norðurljósasýningu.
0°
15
m/s
2°
18
m/s
3°
13
m/s
5°
12
m/s
Á morgun
10-18 m/s N- og NV-til, annars 5-13.
Gildistími korta er um hádegi
-1°
-2°
-3°
-1°
-2°
Alicante
Basel
Berlín
20°
10°
8°
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
8°
12°
7°
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
6°
6°
20°
London
Mallorca
New York
10°
20°
11°
Orlando
Ósló
París
27°
3°
10°
San Francisco
Stokkhólmur
16°
3°
4°
13
m/s
3°
20
m/s
0°
10
m/s
3°
15
m/s
0°
10
m/s
1
15
m/s
-4°
15
m/s
3°
0°
2°
0°
0°
FLUG Þota frá British Airways á
leiðinni frá London til Los Angeles
lenti á Keflavíkurflugvelli á átt-
unda tímanum í gær vegna veik-
inda farþega.
Vélin er af gerðinni Airbus
A380, sem er stærsta farþegaflug-
vél heims.
Að sögn lögreglu reyndist
ástand konunnar sem um ræðir
ekki eins alvarlegt og óttast var í
fyrstu en hún var flutt til skoðun-
ar á Landspítalann.
Maður konunnar og sonur urðu
eftir hér á landi, en vélin hélt ferð-
inni áfram á tíunda tímanum. - þj
Þota frá British Airways:
Veikur farþegi
skilinn eftir til
aðhlynningar
NEYÐARLENDING Þotan lenti í Keflavík
með veikan farþega. MYND/VÍKURFRÉTTIR