Fréttablaðið - 21.02.2014, Blaðsíða 32
FRÉTTABLAÐIÐ Fólk og Hönnun. Snyrtibuddan. Steinunn Vala Sig fúsdóttir. Fataskápurinn og Kron Kron. Matur og Fatahönnun . Spjörunum Úr og Bloggarinn.
10 • LÍFIÐ 21. FEBRÚAR 2014
T
inna Björg Friðþórsdótt-
ir heldur úti blogginu tinn-
bjorg.com. Matar- og
kökugerð eiga hug hennar
allan þegar hún er ekki að
læra lögfræði í HR. Á blogginu
sínu deilir hún ýmsum húsráðum
ásamt matar- og kökuuppskrift-
um sem hún hefur sankað að sér
í gegnum tíðina. Hér deilir hún
uppskrift að indverskri vetrar-
súpu og grófum speltbollum.
1½ rauðlaukur
3 hvítlauksrif
olía
1 lítil sæt kartafla
4 gulrætur
5 msk. milt karrýmauk
2 tsk. karrý
4 msk. tómatpúrra
1½ dl kókosflögur
1 dós kókosmjólk
700-800 ml vatn
grænmetiskraftur
salt
svartur pipar
■ Skerið rauðlauk í bita og steik-
ið í stórum potti með olíu
ásamt pressuðum hvítlauk í 5
mínútur eða þar til rauðlauk-
urinn verður mjúkur.
■ Afhýðið og skerið sæta kart-
öflu og gulrætur í teninga.
Bætið teningunum í pottinn og
steikið áfram í nokkrar mín-
útur.
■ Hrærið karrýmauki, karrýi og
tómatpúrru saman við græn-
metið ásamt kókosflögum.
■ Hellið kókosmjólk og vatni í
pottinn og hitið að suðu.
■ Smakkið súpuna til með græn-
metiskrafti, salti og svört-
um pipar og látið krauma við
vægan hita í 45 mínútur.
■ Takið að lokum pottinn af
hellunni og maukið súpuna
með töfrasprota eða í mat-
vinnsluvél.
■ Magnið af grænmetiskrafti fer
eftir tegund því hann er mis-
jafnlega saltur. Þess vegna
hef ég þá þumalputtareglu að
setja alltaf kraftinn fyrst og
svo saltið.
Grófar speltbollur
5 dl gróft spelt
1 dl fimm korna fræblanda
1½ tsk lyftiduft
1 tsk. sjávarsalt
2 dl AB-mjólk
1½-2 dl heitt vatn
■ Blandið spelti, fræblöndu, lyfti-
dufti og sjávarsalti saman í
skál og hrærið AB-mjólk og
vatn saman við. Mótið í hæfi-
lega stórar bollur og sáldrið
fræjum yfir.
■ Bakið við 200°C í 20-25 mín-
útur.
■ Deigið á að vera blautt og
klístrað þegar bollurnar eru
mótaðar.
Í staðinn fyrir að dreifa úr
speltbollunum á bökunarplöt-
unni baka ég þær saman í klasa,
þannig haldast þær mýkri. Þegar
ég á ekki AB-mjólk hef ég stund-
um í hallæri notað hreint skyr
eða gríska jógúrt hrista saman
við smá mjólk.
INDVERSK VETRARSÚPA
OG GRÓFAR SPELTBOLLUR
Tinna Björg Friðþórsdóttir matarbloggari með dýrindisuppskrift að indverskri vetrarsúpu.
Tinna Björg Friðþórsdóttir matarbloggari. Þegar ég á ekki
AB-mjólk hef ég
stundum í hallæri
notað hreint skyr
eða gríska jógúrt.
„Þetta er fatahönnunarkeppni
fyrir alla sem hafa einhvers
konar áhuga á fatahönnun og
vilja spreyta sig. Framleiðsla er
svo dýr fyrir hönnuði svo þetta
er fínt tækifæri fyrir unga rís-
andi hönnuði því það er 250
þúsund króna verðlaunafé,“
segir Elísabet Gunnarsdótt-
ir, annar eigandi vefsíðunnar
Trendnets.
Keppnin er haldin á vegum
Coca-Cola Ligt í samstarfi við
Trendnet og Reykjavík Fashion
Festival. Þátttakendur eru hvatt-
ir til þess að senda inn ljósmynd
af fullunnu fatasetti eða flík á
trendlight@vifilfell.is en skrán-
ingu til þátttöku lýkur 16. mars.
„Það eru engar reglur en vinn-
ingsdressið verður til sýnis á
RFF í Hörpu laugardaginn 29.
mars. Dómnefnd skipa aðilar frá
Fagráði RFF, Trendneti og Coca-
Cola Light svo að þetta er mjög
skemmtilegt samstarf,“ segir
Elísabet. Þá verða valdir þrír
þátttakendur í undanúrslit og fer
hönnun þeirra í netkosningu á
samskiptamiðlinum Facebook.
BLUNDAR
HÖNNUÐUR
Í ÞÉR?
Spennandi fatahönnunarkeppni er
fram undan á vegum Trendnets,
Coca-Cola Light og Reykjavík Fashion Festival.