Fréttablaðið - 21.02.2014, Side 21
FORRÉTTUR FYRIR 10–14
Kjöt af 1 kjúklingi, u.þ.b. 600 g hakkað
200 g kjúklingalifur, hökkuð
300 g grísaspekk, hakkað
4 skorpulausar brauðsneiðar
1 egg
½ dl mjólk
1 dl hvítvín
½ dl sjerrí
1 dl pistasíur
1 dl niðursoðin skinka í dós, í ten-
ingum
15 g þurrkaðir sveppir, lagðir í volgt
vatn í 20 mínútur, sigtið þá safann frá
2-3 tsk. kryddblanda
2 tsk. salt
10 beikonsneiðar
2 rósmaríngreinar
2 lárviðarlauf
4 timjangreinar
Maukið saman egg, brauð og mjólk
í matvinnsluvél og blandið saman
við allt hakkið ásamt hvítvíni,
sjerríi, pistasíum, skinku, sveppum
og 3 tsk. af kryddblöndunni og 2
tsk. af salti. Blandið öllu vel saman.
Skerið smjörpappír þannig að hann
passi í pate-form og leggið rós-
marín, lárviðarlauf og timjan ofan á
hann miðjan. Leggið beikonsneiðar
ofan á kryddin. Færið í formið og
fyllið með hakkblöndunni. Leggið
smjörpappír yfir og bakið í vatns-
baði við 95°C í 2 klst.
Berið fram kalt í sneiðum með
títuberjasósunni, salati og brauði.
TERRINE-KRYDDBLANDA
1 tsk. fennelfræ, steytt
1 tsk. lárviðarlauf, steytt
1 tsk. pipar, steyttur
1 tsk. timjan, steytt
1 tsk. mariam, steytt
1 tsk. basil, steytt
1 tsk. múskat, steytt
1 tsk. hvítlaukusduft
1 tsk. engiferduft
Allt blandað vel saman
Það eru bara notaðar 3 tsk. af
kryddblöndunni í þetta magn af
terrine. Geymið restina þar til næst
er lagað terrine.
TÍTUBERJASÓSA
2 msk. olía
1 msk. laukur, smátt saxaður
1 tsk. rósapipar
1 tsk. kóríander
rifinn börkur af 1 appelsínu
rifinn börkur af ½ sítrónu
1 tsk. engiferrót, smátt söxuð
1 tsk. worchestershire-sósa
1 dl portvín
2 msk. edik
½ dl appelsínusafi
1 krukka títuberjasulta eða rifsberja-
hlaup
Látið lauk krauma í potti í 1 mín-
útu. Bætið þá öllu nema sultunni
í pottinn og sjóðið við vægan hita
í 3-4 mínútur. Bætið þá sultunni í
pottinn og sjóðið við vægan hita í
1 mínútu. Kælið. Þessi sósa passar
einnig vel með paté, rillet og
mousse.
KJÚKLINGA-TERRINE MEÐ TÍTUBERJASÓSU
Matreiðslumaðurinn Úlfar Finnbjörnsson sér um sjónvarpsþáttinn Eldað með Holta á ÍNN. Þar eldar hann ljúffenga rétti úr
Holta-kjúklingi fyrir áhorfendur. Hér færir Úlfar
okkur uppskrift að kjúklinga-terrine með títuberja-
sósu. Hægt er að fylgjast með Úlfari elda þessa
girnilegu máltíð í kvöld klukkan 21.30 á sjónvarps-
stöðinni ÍNN. Þættirnir verða svo endursýndir yfir
helgina. Einnig er hægt að horfa á þá á heimasíðu
ÍNN, inntv.is.
ELDAÐ MEÐ HOLTA
HOLTA KYNNIR Úlfar Finnbjörnsson er einn færasti kokkur landsins. Hann
sér um sjónvarpsþáttinn Eldað með Holta á ÍNN. Þar fáum við að fylgjast með
honum elda ljúffenga kjúklingarétti úr Holta-kjúklingi.
SKEMMTILEG NÝJUNG
Stórglæsilegur forréttur
frá Holta.
MYND/STEFÁN
BÍÓ Á SKAGASTRÖND
Kvikmyndahátíðin The Weight of Mountains verður haldin dagana
21. til 23. febrúar. Hún er fyrsta kvikmyndahátíðin sem haldin er á
Skagaströnd. Þema hátíðarinnar er Maðurinn og umhverfi hans.
Hátíðin er í höndum Nes listamiðstöðvar. Sjá nánar á www.huni.is.t
HEILSURÉTTIR
Fullir af trefjum, próteinum og góðum kolvetnum.
Kryddaðir með ferskum hvítlauk, engifer og chilli.
Án salts og sykurs.
Eggjanúðlur með kjúklingi, eggjum og grænmeti
Orka, kkal 92 Prótein 10,8 gr Kolvetni 10,2 gr Fita 1,4 gr
980 | 1340
065
Veitingahús Nings eru opin alla daga frá 11:30 til 22:00 - Suðurlandsbraut | Hlíðarsmári | Stórhöfði | www.nings.is
Toppur
99
kr.
með öllum
heilsuréttum Nings
í Janúar 2014
Bæjarlind 6 • S. 554 7030
www.rita.isVið erum á Facebook
Síðar peysur
Str. 40-56/58
kr. 12.900.-
Litir: svart ,coral,drapp
“Nýt t kortatímabil”
Verið velkomin í Blóma og gjafavöruverslunina
Blómastofan Glitbrá
Opnunartímar: Virkir dagar: frá 11:00 – 18:00. Helgar: 12:00-17:00
Sími: 421-4242 netfang: gr.glitbra@gmail.com
Í tilefni að því ætlum við að vera með
ýmiskonar opnunartilboð.
Opið verður á sunnudaginn 23. febrúar,
Konudaginn frá 08:00 til 20:00
Blómastofan
Glitbrá
Opnar laugardaginn 22. febrúar
við Hafnargötu 54 Reykjanesbæ