Fréttablaðið - 21.02.2014, Síða 26
FRÉTTABLAÐIÐ Fólk og Hönnun. Snyrtibuddan. Steinunn Vala Sigfúsdóttir. Fataskápurinn og Kron Kron. Matur og Fatahönnun. Spjörunum Úr og Bloggarinn.
4 • LÍFIÐ 21. FEBRÚAR 2014
Meikið sem ég nota í dag er
blanda af YSL Youth Liberator
og Healthy Mix Serum-meikinu
frá Bourjois. YSL Youth Liber ator
og Healthy Mix Serum-meikið
frá Bourjois.
Ég hef lært að maður á alls ekki að
dæma það sem maður þekkir ekki.
Hún segist sífellt vera að skipta um snyrtibudd-
ur og segir krem, hyljara, maskara og augabrúna-
blýant algera nauðsyn dagsdaglega. MAC-snyrti-
vörurnar eru í uppáhaldi en þeim vörum hefur
hún kynnst vel í gegnum vinnu sína. „Í handtösk-
unni minni taldi ég um daginn 20 varaliti og gloss,
þannig að ég þarf aldrei að hafa áhyggjur af því
að vera ekki með rétta litinn á mér,“ segir Helga
sem valdi uppáhaldssnyrtivörunar sínar.
Helga Kristjáns MYND/BRAGI ÞÓR JÓSEFSSON.
Augnskugginn sem
er í mestu uppáhaldi
er liturinn Mulch frá MAC,
sem er næsti bær við hliðina á
Sable sem hefur verið í topp-
sæti hjá mér síðustu árin.
Ég var að kaupa kinnalitinn
Flower Power frá Gosh en ég
hafði heyrt nokkra af uppá-
halds bjútíbloggurunum mínum
tala um hann.
1 Þegar ég var ung... þá fór ég með 1 hárlakksbrúsa á viku.
2 En núna... nota ég gloss eins og enginn sé morgundagurinn.
3 Ég mun eflaust aldrei skilja... hvers vegna kona og karl sem
vinna sömu störfin fá ekki sömu laun.
4 Ég hef ekki sérstakan áhuga á... krossgátum en hendi
stundum í eina Sudoku.
5 Karlmenn eru... flestir bestu skinn og nauðsynlegir í og
með.
6 Ég hef lært að maður á alls ekki... að dæma það sem
maður þekkir ekki.
7 Ég fæ samviskubit þegar... ég borða of mikið af súkkulaði
...en svo líður það hjá.
8 Ég slekk á sjónvarpinu þegar... ég fæ gesti og þegar síbyljan
ærir mig.
9 Um þessar mundir er ég mjög upptekin af... því að skipu-
leggja sumarið og golftímabilið.
10 Ég vildi óska þess að fleiri vissu af... flugtilboðum
Flugfélags Íslands.
GRÓA ÁSGEIRSDÓTTIR
48 ÁRA VERKEFNASTJÓRI SÖLU- OG MARKAÐSSVIÐS FLUGFÉLAGS
ÍSLANDS OG EIN AF FORSVARSKONUM Á ALLRA VÖRUM.
Gróa Ásgeirsdóttir, verkefnastjóri sölu-og markaðssviðs Flugfélags Íslands.
SNYRTI-
BUDDAN
Helga Kristjáns er blaðamaður, förðunar-
fræðingur og stílisti hjá Vikunni. Hún
farðar einnig fyrir forsíður Nýs lífs og er
með snyrtivöruþráhyggju á hæsta stigi.
Krem er nauðsyn-
legt og Strobe-
kremið frá MAC er
himneskt til að fá
ljóma.
Ég fíla HD-hyljarann
frá NYX og það jafn-
ast ekkert á við Butt-
er-glossin frá NYX.
Uppáhaldsliturinn
minn heitir Crème
Brûlée.
Förðunarburstar frá
Real Techniques eru
í snyrtibuddunni.
Chanel-maskarann
nota ég þessa dag-
ana, hann er virki-
lega peninganna
virði.
Augnhárabrettarinn
frá Shu Eumura er
einstaklega góður.
Eva Ólöf Hjaltadóttir segir að sér hafi ekki liðið vel í langan
tíma áður en hún kynntist Femarelle. „Ég er á lyfjum vegna
sykursýki og sjúkdóms í skjaldkirtli. Ég þyngdist vegna lyfjan-
na, hef auk þess þjáðst af gigt með tilheyrandi verkjum. Mér
fannst óþægilegt að vera innan um
margt fólk og var farin að finna fyrir
þunglyndi. Einnig átti ég erfitt með
að vera í hávaða og var að ein-
angrast gagnvart félagslífi. Núna
hef ég tekið Femarelle inn í fjóra
mánuði og hef endurheimt mitt
fyrra líf. Mér líður svo vel að nú
get ég farið daglega út að ganga
með hundinn minn, fer í sund á
hverjum degi, sæki félagsvist og
bingó.“
Algjört undraefni