Fréttablaðið - 21.02.2014, Side 40
21. febrúar 2014 FÖSTUDAGUR| LÍFIÐ | 24
Það var margt um manninn þegar lista-
maðurinn Ragnar Kjartansson frumsýndi
nýjasta verk sitt „Der Klang der Offenbar-
ung des Göttlichen“ eða „Kraftbirtingar-
hljómur guðdómsins“ í hinu fornfræga
og sögulega leikhúsi Volksbühne í Berlín.
Fjöldi Íslendinga kom sérstaklega til þess
að vera viðstaddur frumflutninginn og
alþjóðlega listasenan sýndi viðburðinum
mikinn áhuga.
Titill verksins vísar í kafla í Heimsljósi
Halldórs Laxness, en eins og hann gefur til
kynna skipar hljóð stóran sess í verkinu.
Kjartan Sveinsson semur tónlistina fyrir
verkið sem er skrifað fyrir strengjasveit
og kór. Davíð Þór Jónsson fer með hljóm-
sveitarstjórn, en það eru sinfóníuhljóm-
sveit Babelsberg og kór sem flytja tónlist-
ina.
Það er óhætt að segja að framsetning
verksins sé fremur óhefðbundin þar sem
þetta er sviðsverk án leikara, byggt aðeins
á leikmynd og tónlist. Upplifunin verður
því nokkuð ólík þeirri að fara á leiksýn-
ingu eða tónleika.
Setið var í hverju sæti þetta opnunar-
kvöld og eftirvæntingin var mikil. Ef
marka má dynjandi lófatak að sýningu
lokinni er auðvelt að fullyrða að áhorfend-
ur hafi verið ánægðir með flutninginn og
verkið staðið fyllilega undir væntingum.
Þríeykið, þeir Ragnar, Kjartan og Davíð
Þór, voru mjög ánægðir með móttökurn-
ar, enda var þeim gríðarlega fagnað þegar
þeir þökkuðu áhorfendum, hljómsveit, kór
og sviðsmyndahönnuði fyrir frammistöðu
kvöldsins.
Að sýningu lokinni brá Ragnar Kjart-
ansson sér svo í gervi Rassa Prump og tók
nokkur lög með félögum sínum, gestum til
mikillar skemmtunar.
Texti og myndir: Rut Sigurðardóttir
Kraft birtingarhljómur guðdómsins
vakti mikla hrifningu í Berlín
Nýjasta verk Ragnars Kjartanssonar, Der Klang der Off enbarung des Göttlichen, var frumsýnt í Volksbühne-leikhúsinu í Berlín á mið-
vikudaginn. Verkið er sviðsverk án leikara, tónlistin er eft ir Kjartan Sveinsson og Davíð Þór Jónsson sá um hljómsveitarstjórn.
MAMMA MÆTTI Ragnar Kjartansson með móður sinni, Guðrúnu Ásmundsdóttur.
FAGNAÐARLÆTI Davíð Þór Jónssyni, Kjartani Sveinssyni og Ragnari Kjartanssyni
var vel fagnað að sýningu lokinni.
ÞÍNA SKÁL Ragnar Kjartansson skálar með áhorfendum að sýningu lokinni.
GALLERÍISTARNIR Ragnar með galleríistum sínum, Berki Arnarsyni hjá i8
og Roland Augustine hjá Luhring Augustine í New York.
Rammahús frá BYKO til sölu, stærð 41,1 fm2.
Til sýnis við BYKO Breidd, Skemmuvegi 2.
Upplýsingar í timbursölu BYKO og á fagsolusvid@byko.is
w
w
w
.e
xp
o.
is
/
E
XP
O
au
gl
ýs
in
ga
st
of
a
SÝNINGARHÚS
TIL SÖLU
Í tilefni af vetrarfríi í Reykjavík
hefur Íslenski dansflokkurinn
ákveðið að bjóða börnum yngri
en 13 ára frítt í fylgd fullorðinna
á sýninguna Þríleik á Stóra sviði
Borgarleikhússins á sunnudag-
inn, 23. febrúar, klukkan 20. Þrí-
leikur samanstendur af dansverk-
unum Tilbrigði, F A R A N G U R
og Berserkir.
„Okkur langaði til að fá börn
á danssýningu og því var tekin
þessi ákvörðum um að nýta vetr-
arfríið til að bjóða börnum yngri
en 13 ára á þessa sýningu,“ segir
Alexía Björg Jóhannsdóttir hjá
mardaðsdeild Íslenska dans-
flokksins. „Boðið gildir fyrir
eitt barn í fylgd með einum full-
orðnum og gildir bara á þessa
sýningu.“
Alexía segir þessa sýningu lík-
lega til að höfða til barna, sérstak-
lega verkið Berserkir eftir Lene
Boel, þar sem blandað er saman
breikdansi, nútímadansi og ballett
með akróbatísku tvisti. „Krakkar
sem fylgjast með So You Think
You Can Dance ættu að hrífast af
þessu verki og ég hef trú á að þau
hrífist líka af hinum verkunum
tveimur,“ segir hún.
Tilbrigði er eftir Láru Stefáns-
dóttur og F A R A N G U R er eftir
Grímuverðlaunahafann Valgerði
Rúnarsdóttur. - fsb
Bjóða börnum
á danssýningu
Íslenski dansfl okkurinn býður börnum innan 13 ára
frítt á sýningu fl okksins á Þríleik á sunnudaginn.
EITT AF ÞREMUR Dansverkið F A R A N G U R er eftir Grímuverðlaunahafann
Valgerði Rúnarsdóttur. MYND: ÍD
MENNING