Fréttablaðið - 21.02.2014, Page 54
21. febrúar 2014 FÖSTUDAGUR| LÍFIÐ | 38
„Besti bitinn í bænum er pönnu-
kaka með rjóma og rabarbarasultu á
Tíu dropum! Nom, nom, nom.“
Nanna Árnadóttir rithöfundur
BESTI BITINN
ÁHRIFAMIKIÐ Krakkarnir sem tóku þátt í auglýsingunni voru þrjátíu talsins og stóðu sig eins og hetjur í miklum kulda og roki í
Grindavík. MYNDIR/GASSI
MÆLI EINDREGIÐ
MEÐ HENNI
SANNLEIKURINN Í MÁLI HARRYS QUEBERT EFTIR JOËL DICKER
„Þú getur ekki hætt“
ELLE
Friðrik Rafnsson íslenskaði.
D
YN
A
M
O
R
E
YK
JA
VÍ
K
„Hrikalega skemmtileg lesning. Fyrir alla.“
EGILL HELGASON, KILJUNNI
Stöðugar vendingar!
Síðustu 100 síðurnar
eru rosalegar!
– KOLBRÚN BERGÞÓRSDÓTTIR, KILJUNNI
1. SÆTI
METSÖLULISTI EYMUNDSSO
N
13.02.14 til 19.02.14
„Tökurnar gengu eins og í sögu. Það var
kalt úti og rok en krakkarnir stóðu sig alveg
ótrúlega vel,“ segir Sigríður Víðis Jónsdóttir,
upplýsingafulltrúi Unicef á Íslandi, en sam-
tökin voru að ljúka við að vinna umfangs-
mikla auglýsingaherferð til að vekja athygli á
ömurlegu hlutskipti flóttamanna í heiminum.
Unicef, í samvinnu við Íslensku auglýs-
ingastofuna og True North, sáu um verk-
efnið en um 80 manns komu að verkefninu
í sjálfboðavinnu. Kvikmyndatökufólk, leik-
myndahönnuðir, búningahönnuðir og tækni-
menn gáfu vinnu sína, auk þess að lána kvik-
myndatökubúnað.
Auglýsingin markar upphaf að átaki Uni-
cef sem miðar að því að vekja athygli á ömur-
legum aðstæðum flóttabarna víða um heim.
Til að skapa réttar aðstæður voru flótta-
mannabúðir settar upp við Sólbrekku við
Grindavík.
Sigríður segir að skemmtileg stemning
hafi myndast í hópnum á tökudegi og að
andrúmsloftið hafi verið jákvætt þrátt fyrir
kuldann. „Allir voru þarna til að leggja góðu
málefni lið og samhugurinn var mikill. Ung-
mennaráð Unicef tók að sér að hlýja litlu
leikurunum og láta þá fá teppi og kuldagalla
á milli taka,“ segir Sigríður og bætir við að
þetta hafi verið mikil lífsreynsla fyrir krakk-
ana sem tóku þátt.
„Við fréttum til dæmis af því að einn fimm
ára snáðinn hefði nefnt það við foreldra sína
þegar hann kom heim um kvöldið hvað hann
væri þakklátur fyrir að eiga heimili.“
Leikarinn Ólafur Darri sá
um að talsetja auglýsinguna,
Emilíana Torrini útsetti og
syngur lagið sem hljómar
undir og ljósmyndarinn
Gassi tók myndirnar sem
eru óneitanlega áhrifa-
ríkar. alfrun@frettabladid.is
Settu upp fl óttamanna-
búðir í Grindavík
Unicef fékk þrjátíu íslenska krakka til að setja sig í spor fl óttamanna í nýrri aug-
lýsingaherferð sem varpar ljósi á ömurlegt hlutskipti fl óttamanna í heiminum.
Verkefnið var umfangsmikið og allir gáfu vinnu sína.
M
YN
D
/G
ASSI
SIGRÍÐUR VÍÐIS
JÓNSDÓTTIR
Við fréttum til dæmis af því að einn fimm ára
snáðinn hefði nefnt það við foreldra sína þegar
hann kom heim um kvöldið hvað hann væri
þakklátur fyrir að eiga heimili.
„Við ákváðum að slá saman í eina
stóra tónlistarverðlaunahátíð því
þá nær hún til fleira fólks,“ segir
Jóhann Örn Ólafsson, verkefna-
stjóri Hlustendaverðlaunanna, en
fyrsta Hlustendaverðlaunahátíðin
fer fram þann 21. mars næstkom-
andi.
Um er að ræða verðlaunahá-
tíð þar sem hlustendur Bylgjunn-
ar, FM957 og X-ins 977 fá að skera
úr um hverjir vinna verðlaunin.
„Við erum ekki með neinar nefndir
eða sérfræðinga til að velja sigur-
vegarana því hlustendur útvarps-
stöðvanna fá að kjósa þá,“ útskýrir
Jóhann. Kosning er hafin á vefsíð-
um útvarpsstöðvanna.
Útvarpsstöðvarnar FM957 og
X-ið 977 hafa báðar haldið hlust-
endaverðlaunahátíðir en aldrei
jafn stórar í sniðum og hátíðina í
mars. „Bylgjan hefur aldrei gert
þetta áður og því kjörið að gera
þetta saman.“
Sveppi og Saga Garðarsdóttir
verða kynnar á hátíðinni en hún fer
fram í Háskólabíói 21. mars. „Stöð 2
ætlar að vera með beina sjónvarps-
útsendingu frá hátíðinni.“ - glp
Hlustendaverðlaunin afh ent í fyrsta sinn
Útvarpsstöðvar sameinast um að halda veglega tónlistarverðlaunahátíð sem fer fram í Háskólabíói.
• Söngvari ársins
• Söngkona ársins
• Flytjandi ársins
• Lag ársins
• Plata ársins
• Nýliði ársins
• Myndband ársins
• Erlent lag ársins
FLOKKARNIR
KYNNIR KVÖLDSINS Saga Garðarsdótt-
ir og Sveppi verða kynnar kvöldsins.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL