Fréttablaðið - 13.03.2014, Síða 4
13. mars 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 4
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is,
Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is
FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Kolbeinn Kolbeinsson kolli@365.is,
FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
SVONA ERUM VIÐ
Gæði fara aldrei úr tísku
Mest seldu ofnar á Norðurlöndum
10 ára ábyrgð
25.000 tonn af spilliefnum
voru flutt úr landi
til meðhöndlunar á árunum 2000
til 2011.
Á tímabilinu 2003 til 2005 voru flutt
út 4.000 tonn á ári, en árin þar á eftir
eitt til tvö þúsund tonn.
ORKUMÁL Rennsli í Tungnaá er
komið niður fyrir sögulegt lág-
mark og rennsli í efri hluta
Þjórsár og Blöndu er nærri þeim
mörkum einnig. Vatnsforði Lands-
virkjunar í miðlunarlónum stefnir
í að verða jafn slæmur og í fyrra,
en þá hafði aðeins eitt vatnsár
mælst óhagstæðara í sögu fyrir-
tækisins.
Hörður Arnarson, forstjóri
Landsvirkjunar, segir að fyrir-
tækið endurmeti nú þörf á orku-
skerðingu vegna þessara óvenju-
legu aðstæðna. Þær heimildir sem
fyrirtækið hefur til skerðinga eru
fullnýttar í augnablikinu, eins og
komið hefur fram í fréttum en
áætlanir hafa gert ráð fyrir að
skerðingar verði tvö prósent af
orkuvinnslu fyrirtækisins.
„ Þ a ð e r
allavega ekki
komið að því,“
segir Hörður
spurður hvort
þessar óvenju-
leg u ve ð u r -
aðstæður með
minnkandi
rennsli í miðlun-
arlónin þýði að
frekari orkuskerðing sé nauðsyn-
leg. Hann bætir við að vissulega
sé stutt liðið af árinu, og ekkert
útiloki að um gott vatnsár verði að
ræða þegar verður gert upp.
„Á Tungnaársvæðinu er staðan
fordæmalaus vegna þurrka. Þetta
kemur í kjölfar þess að síðasta ár
var mjög slakt, og þegar við fáum
annað eins í kjölfarið þá tekur það
vel í,“ segir Hörður. Hann segir
að Landsvirkjun geti ekki brugð-
ist við þessu ástandi umfram það
sem þegar er gert í samningum
við viðskiptavini. Þeir eru sveigj-
anlegir og eru flestir viðskipta-
vinir Landsvirkjunar með slíka
samninga. Stórnotendur, álver-
in til dæmis, eru með um 10% af
sínum samningum sveigjanlega.
Hörður bendir á að ef samning-
arnir hefðu ekki þessa innbyggðu
vörn gegn óvenjulegum aðstæð-
um þyrfti að tryggja afhendingu
í öllum árum, einnig þeim vatns-
minnstu, og slíkt kerfi yrði mun
dýrara fyrir orkukaupendur sem
fá lægra orkuverð í staðinn fyrir
óhagræðið af því að hafa ákveðinn
hluta orkunnar skerðanlegan.
Undanfarin 10 ár hefur vatnsbú-
skapur Landsvirkjunar verið
góður; óvenju hátt hlutfall ára
hefur verið með innrennsli ofan
meðallags og einungis árið í fyrra
sem breytir þeirri mynd. Þá náði
hvorki Blöndulón né Þórisvatn að
fyllast. Innrennsli það sem af er
vetri er því afbrigðilegt, og engar
mælingar á rennsli Tungnaár í 55
ár sýna lægri gildi – og Blanda
rennur í nær sama farvegi hvað
þetta varðar. svavar@frettabladid.is
Landsvirkjun endur-
metur orkuskerðingu
Rennsli í Tungnaá, Blöndu og efri hluta Þjórsár er undir eða við sögulegt lágmark.
Vatnsstaða miðlunarlóna Landsvirkjunar hefur versnað mjög síðustu vikur og
fyrirtækið mun endurmeta orkuskerðingar vegna óvenjulegra aðstæðna.
ÞJÓRSÁ Þó
leitað sé aftur
um hálfa
öld hafa stór
vatnsföll
sem Lands-
virkjun nýtir
til orkuvinnslu
sjaldan verið
vatnsminni.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
HÖRÐUR
ARNARSON
Tekjutap Landsvirkjunar og viðskiptavina fyrirtækisins vegna orkuskerð-
ingar hleypur á milljörðum. Tap Alcoa Fjarðaáls nemur 1,5 milljörðum
króna, að óbreyttu. Framleiðsla kísiljárnsverksmiðju Elkem á Grundartanga
hefur verið skert um 30%. Aflþynnuverksmiðja Becromal á Akureyri hefur
drepið á tíu af sextíu vélum verksmiðjunnar.
Samkvæmt samningum Landsvirkjunar og orkukaupenda er leyfilegt að
skerða raforkuafhendingu í slökum vatnsárum ef þurfa þykir, og í raun ráð
fyrir því gert. Tap fyrirtækisins sjálfs, sem er tilkomið vegna bágs vatnsbú-
skapar í Blöndulóni og Þórisvatni, er metið á 700 milljónir króna.
Óvenjulegt veðurlag kostar milljarða
Ingibjörg Karlsdóttir
veðurfréttamaður
Veðurspá
SNÖGGAR BREYTINGAR verða á veðrinu næsti daga. Vindasamt í dag og í nótt má
búast við snjókomu eða slyddu. Á morgun verður hægari vindur og minnkandi úrkoma
en á laugardag vex vindur aftur með talsverðri úrkomu um allt land.
-1°
14
m/s
2°
13
m/s
3°
11
m/s
5°
11
m/s
Gildistími korta er um hádegi
4°
7
m/s
4°
12
m/s
2°
8
m/s
1°
15
m/s
1°
13
m/s
1°
10
m/s
-3°
10
m/s
Strekk-
ingur
með S-
ströndinni
en hægari
vindur
annars
staðar.
Vaxandi
vindur,
hvasst
eða
stormur
seinni-
partinn.
3°
18°
10°
18°
18°
9°
17°
9°
9°
20°
17°
18°
17°
14°
18°
16°
12°
19°
4°
6°
-1°
-1°
5°
0°
2°
-1°
1°
0°
Alicante
Aþena
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
FÖSTUDAGUR
Á MORGUN
NÁTTÚRA Lögbannskröfu ríkisins á
að innheimt verði gjald af þeim sem
heimsækja Geysissvæðið var hafn-
að af sýslumanni Árnessýslu í gær.
Í yfirlýsingu frá Landeigendafé-
lagi Geysis segir að gjaldtaka muni
hefjast innan fárra daga. Gjaldið
verður 600 krónur. „Við höfum talið
það mjög hóflegt, um það bil kaffi-
bolli,“ segir Garðar Eiríksson, tals-
maður félagsins.
Fjármálaráðherra krafðist þess
á föstudag fyrir hönd ríkisins að
sýslumaður stöðvaði fyrirhugaða
gjaldtöku með þeim rökum að ríkið
eigi þann hluta landsins sem gos-
hverirnir séu á. Þá sé ekki hægt
að taka ákvörðun sem þessa án
samþykkis allra eigenda. Ríkið
krefst þess að áfram verði tryggð-
ur óhindraður og ókeypis aðgangur
almennings að svæðinu.
Ríkið á um 34 prósenta hlut
jarðar innar innan girðingar, en
átta aðrir eigendur deila með sér 64
prósentum. Þeir hafa stofnað með
sér Landeigendafélag Geysis.
Landeigendur segja löngu ljóst
að landið við Geysi sé afar illa farið
vegna ágangs ferðamanna. Brýnt sé
að bæta aðstöðu á svæðinu og stýra
umferð. Þar sem þeir hafi enga sjóði
til að standa straum af milljóna
kostnaði við framkvæmdir, sé gjald-
taka eina leiðin. Í yfirlýsingu frá
fjármálaráðherra segir að ríkið hafi
boðist til þess fyrir mánuði að ráð-
ast í og greiða tugi milljóna króna
fyrir nauðsynlegar framkvæmdir til
að vernda svæðið og kosta rekstur
þess. Þar segir að félag landeigenda
hafi ekki svarað því tilboði. - bj
Landeigendafélag Geysissvæðisins mun hefja gjaldtöku af ferðamönnum innan fárra daga:
Lögbannskröfu fjármálaráðherra hafnað
ÁGANGUR Árlega skoða um 400
þúsund ferðamenn svæðið við Geysi,
Strokk og aðra hveri á Geysissvæðinu í
Haukadal, segir í greinargerð landeig-
enda í lögbannsmálinu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
ALÞINGI Svandís Svavarsdóttir,
þingflokksformaður Vinstri
grænna, sagði á Alþingi í gær
að tónn forsætisráðherra í garð
þingsins einkenndist á köflum af
lítilsvirðingu. Ennfremur sagðist
hún ætla taka málið upp á vett-
vangi þingflokksformannanna.
Í tilkynningu frá Vinstri græn-
um segir að Svandís hafi ásamt
öðrum þingmönum gagnrýnt hve
illa gengi að fá forsætisráðherra
til að taka þátt í umræðum sem
hann vörðuðu. „Þetta er fullkom-
lega óviðunandi að því er varðar
samskipti framkvæmdarvaldsins
við þingið,“ sagði Svandís. - skó
Sagður lítilsvirða þingið:
Gagnrýndu for-
sætisráðherra
ÓBOÐLEG FRAMKOMA Svandís
Svavars dóttir var meðal þeirra sem
gagnrýndu forsætisráðherra á Alþingi í
gær. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
STANGVEIÐI Silungsveiði fyrir
landi þjóðgarðsins á Þingvöllum
hefst að þessu sinni 20. apríl, tíu
dögum fyrr en áður hefur tíðkast.
Þingvallanefnd samþykkti til-
lögu þessa efnis frá Ólafi Erni
Haraldssyni þjóðgarðsverði.
„Frá 20. apríl til 31. maí er ein-
ungis leyft að veiða með flugu og
öllum urriða skal sleppa á þessu
tímabili,“ segir um hinar breyttu
veiðireglur í fundargerð Þing-
vallanefndar. Þar kemur líka fram
að tillagan sé lögð fram eftir náið
samráð við veiðifélög og einstaka
veiðimenn og að henni sé ætlað að
bæta veiðimenningu við vatnið og
styrkja urriðastofninn. - gar
Breyttar reglur í þjóðgarði:
Veiði hefst fyrr
í Þingvallavatni
ÞINGVALLAVATN Veiðin hefst eftir 38
daga. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
NEW YORK, AP Fyrirtækið á bak
við tölvuleikinn Candy Crush
Saga telur sig geta safnað nær 613
milljónum dala, eða sjötíu milljörð-
um króna, við skráningu á markað.
King Digital Entertainment PLC
ætlar að selja 15,3 milljónir hluta
í hlutafjárútboðinu. Núverandi
hluthafar selja 6,7 milljónir hluta
til viðbótar. „Candy Crush“ var
það fría smáforrit sem var oftast
halað niður á i-Phone og i-Pad á
síðasta ári. Búist er við að verð á
hlut verði í kringum 2.300 til 2.700
krónur. Bréfin verða fáanleg á
hlutabréfamarkaðnum í New York
undir tákninu „KING“. - fb
Candy Crush Saga á markað:
Hlutabréf fyrir
70 milljarða
VESTMANNAEYJAR Engar tíma-
bundnar lokanir verða á flugvell-
inum í Vestmannaeyjum. Þetta
segir Hanna Birna Kristjánsdótt-
ir innanríkisráðherra en til stóð
að loka vellinum á laugardögum
frá 15. mars til 26. apríl. „Við
munum vinna breytingar á flug-
samgöngum í samráði við bæjar-
yfirvöld þannig að allir eigi að
geta vel við unað.“
Flugfélagið Ernir sem heldur
uppi áætlunarflugi til Vest-
mannaeyja hafði gefið út að ekki
yrði flogið á laugardögum í vetur
og því var ákveðið að loka vell-
inum á þeim dögum. - kak
Flugvöllurinn áfram opinn:
Hætt við tíma-
bundna lokun