Fréttablaðið - 13.03.2014, Blaðsíða 6
13. mars 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 6
ALÞINGI „Ég sem þingforseti mun
ekki krefja Bankaráð Seðlabanka
Íslands svara um hvort rangar upp-
lýsingar hafi verið veittar í svari
um kostnað vegna málaferla Más
Guðmundssonar seðlabankastjóra
gegn bankanum,“ segir Einar K.
Guðfinnsson, forseti Alþingis.
Bankaráð Seðlabankans kemur
saman til fundar í dag og margir
bíða þess að ráðið komi með nánari
skýringar á hvernig var staðið að
ákvörðunum um greiðslur vegna
kostnaðar af málaferlum Más
seðlabanka-
stjóra geg n
bankanum. Einn
þeirra sem bíða
er Björn Valur
Gíslason sem
sæti á í banka-
ráðinu. „Ég vil
fá betri skýring-
ar á því hvernig
ákvarðanir voru
teknar í þessu
máli,“ segir Björn Valur. Margir
alþingismenn sem blaðið ræddi
við í gær telja að ekki séu öll kurl
komin til grafar og á meðan svo er
vilja þeir lítið tjá sig um mál Más.
Þeir segjast, eins og Björn Valur,
bíða eftir nánari skýringum frá
bankaráðinu.
Í yfirlýsingu frá Seðlabankanum
frá því í fyrradag segir að hugsan-
legt sé að bankinn hafi veitt rangar
upplýsingar í svari til þáverandi
fjármálaráðherra um kostnað
vegna málaferla Más.
„Auðvitað er það alvarlegt mál
ef rangt er farið með í þingsal en
ég ætla ekki að vera með neinar
getgátur í þá veru í þessu máli.
Menn verða að skoða hvernig var
spurt og hvort svör séu í samræmi
við spurningu,“ segir Einar.
Hann segir að þingmaður sem ber
fram fyrirspurn hafi nokkrar leiðir
til að fá úr því skorið hvort réttar
upplýsingar hafi verið veittar. Þing-
maður geti krafist skýringa á þing-
fundi, hann geti lagt fram skriflega
eða munnlega fyrirspurn og hann
geti óskað eftir að mál verði tekið
upp í þingnefnd. - jme
Bankaráð SI kemur saman til fyrsta fundar eftir að í ljós kom að bankinn greiddi málskostnað Más:
Beðið eftir nánari skýringum bankaráðs
EINAR K.
GUÐFINNSSON
MENNTAMÁL Ekki er komin endan-
leg niðurstaða í samningaviðræð-
um Lánasjóðs íslenskra náms-
manna og Stúdentaráðs.
Til stendur að
hækka lágmarks-
kröfur um náms-
framvindu á önn
úr 18 einingum
í 22. Nú stefnir
hins vegar í að
nemar í áföngum
sem falla illa að
lágmarkinu geti
sótt um undan-
þágu frá því. Birta á endanlega til-
lögu að breytingum 19. mars.
„Við bindum einnig vonir við að
frítekjumörk verði hækkuð,“ segir
Jórunn Pála Jónasdóttir, lánasjóðs-
fulltrúi Stúdentaráðs. - áós
LÍN semur við Stúdentaráð:
Hægt að sækja
um undanþágu
JÓRUNN PÁLA
JÓNASDÓTTIR
FRAKKLAND,AP Michael
Schumacher, fyrrverandi heims-
meistari í Formúlu-1-kappakstri,
hefur sýnt „smávægileg, lofandi
merki“ um að hann muni vakna úr
dái, segir fjölskylda hans.
Schumacher hlaut alvarleg
höfuð meiðsli í skíðaslysi fyrir
rúmum tveimur mánuðum og
hefur verið í dái síðan. „Við erum
sannfærð um að Michael muni
komast í gegnum þetta og vakna.
Stundum sjáum við smávægileg en
lofandi merki um það en við vitum
að á þessari stundu þurfum við að
vera mjög þolinmóð,“ segir Sabine
Kehm, fulltrúi fjölskyldunnar. - fb
Schumacher er enn í dái:
Sýnir smávægi-
leg batamerki
Í DÁI Ökuþórinn Michael Schumacher
hefur verið í dái í tvo mánuði. MYND/AP
HONG KONG,AP Áhættuleikari, sem
hafði leikið í slagsmálamyndum á
borð við The Grandmaster, var á
meðal farþega í flugvél Malaysia
Airlines sem hvarf á laugardaginn.
Jun Kun hafði einnig unnið
við kvikmyndina The Forbidden
Kingdom með Jackie Chan í aðal-
hlutverki og átti að hefja vinnu
við sjónvarpsþættina Marco Polo,
samstarfsverkefni framleiðand-
anna Weinstein Co. og Netflix, í
myndveri í Malasíu. „Við erum
mjög sorgmædd yfir fréttunum
um flug 370 hjá Malaysia Air-
lines,“ sögðu framleiðendurnir í
yfirlýsingu. „Jun Kun var mikil-
vægur hluti af teyminu okkar og
mikill hæfileikamaður.“ - fb
Horfna malasíska flugvélin:
Áhættuleikari
meðal farþega
DÓMSMÁL Kona og maður voru
dæmd í tveggja mánaða skilorðs-
bundið fangelsi í Héraðsdómi
Reykjavíkur í gær fyrir fjársvik
í IKEA. Fólkið játaði brot sín, en
þau höfðu nýtt sér skilareglur
IKEA til að fá hærri fjárhæðir til
baka en upphaflega voru greiddar
fyrir vörur.
Verjandi fólksins hafði á orði
við aðalmeðferðina að um smá-
vægilegt mál væri að ræða sem
hefði verið blásið upp í fjölmiðlum
af hendi IKEA. Fjársvikin voru
á þriðja hundrað þúsund og hefur
upphæðin verið endurgreidd að
fullu. - ktd
Skilorðsbundið fangelsi:
Dæmd fyrir
fjársvik í IKEA
DÓMSMÁL
Fangelsi fyrir fjársvik
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í gær
Sigurð Kárason í tveggja og hálfs árs
fangelsi fyrir að svíkja á annað hundrað
milljónir króna út úr 16 manneskjum.
VEISTU SVARIÐ?
Verkir í hálsi og öxlum?
Fæst án lyfseðils
Verkjastillandi og bólgueyðandi við
verkjum í hálsi og öxlum!
1. Hversu mörg af 37 slökkviliðum eru
með gildar brunavarnaáætlanir?
2. Hvað lærði nýr formaður Samtaka
iðnaðarins við Háskóla Íslands?
3. Hverjir vilja kjósa um nýjan þjóðfána?
SVÖR:
1. Sex.
2. Mannfræði.
3. Nýsjálendingar.
VINNUMARKAÐUR „Það má segja að
atvinnuleysi meðal okkar félags-
manna heyri nánast sögunni
til,“ segir Finnbjörn Hermanns-
son, formaður
Byggiðnar, félags
byggingarmanna,
og bætir við að
atvinnuleysið
sé mjög lítið um
þessar mundir.
Hann segir
að það séu þó
alltaf einhverjir
á atvinnuleysis-
skránni, það stafi til dæmis af því
að menn séu að skipta um starf og
komi þá inn á atvinnuleysisskrána.
Í gær voru 20 af 89 sem voru á skrá
hjá Starfi, vinnumiðlun atvinnu-
lausir smiðir.
Starf heldur utan um tölur um
atvinnulausa smiði, múrara, pípu-
lagningamenn og málara. Fyrir ári
voru 185 á skránni en fyrir rúmum
tveimur árum var 331 á skránni.
Byggingariðnaðurinn fór afar illa
út úr hruninu. Margir iðnaðarmenn
fluttu til útlanda þar sem þeir gátu
fengið vinnu og hafa ekki snúið til
baka og það skýrir að einhverju
leyti minna atvinnuleysi.
„Það er allt annað hljóð í okkar
félagsmönnum. Það er alveg tvennt
ólíkt eða fyrir tveimur árum. Svart-
sýni hefur vikið fyrir bjartsýni.
Mönnum finnst það mikill léttir að
vera lausir við þessa uppsagnarvofu
sem stöðugt hefur hangið yfir fólki
síðustu misseri,“ segir Finnbjörn.
Regína Bjarnadóttir, forstöðu-
maður greiningardeildar Arion
banka, segir að greiningardeildin
spái 3,3 prósenta hagvexti á næsta
ári. Hún segir að töluvert mikið
verði byggt á þessu ári. „Menn
þurfa ekki annað en horfa í kring-
um sig miðsvæðis í Reykjavík til að
sjá það,“ segir Regína.
Ingólfur Bender, forstöðumaður
greiningar Íslandsbanka, tekur í
svipaðan streng.
„Fjárfesting í íbúðarhúsnæði
eykst um rúm 13 prósent á þessu ári.
Á næsta ári reiknum við með um 15
prósenta vexti,“ segir Ingólfur.
Hann segir að vöxtur í nýbygg-
ingum hafi aukist frá 2010 eða frá
því að hagvöxtur fór að taka við sér.
„Eftirspurn eftir vinnuafli í
þessum geira hefur farið vaxandi
samhliða því að fjárfesting hefur
verið að taka við sér síðastliðin þrjú
ár. Það sem skiptir mestu máli er að
kaupmáttur hefur aukist, fjárhags-
leg staða heimilanna hefur batnað.
Aukinn kaupmáttur ráðstöfunar-
tekna, skuldaleiðréttingar og
hækkun eignaverðs umfram bygg-
ingarkostnað skýrir þessa þróun að
stærstum hluta,“ segir Ingólfur.
johanna@frettabladid.is
Atvinnuleysi heyrir
nánast sögunni til
Formaður Byggiðnar segir bjartsýni ríkjandi hjá félagsmönnum. Mönnum sé
létt yfir að vera lausir undan uppsagnarvofunni. Hann segir að aftur sé farið að
byggja íbúðarhúsnæði. Greiningardeild Arion banka spáir auknum hagvexti.
LÍTIÐ ATVINNU-
LEYSI Fjöldi
manns missti
vinnuna í bygg-
ingariðnaði
eftir hrun. Nú
er landið að rísa
á ný. Formaður
Byggiðnar, félags
byggingarmanna,
segir orðið sára-
lítið atvinnuleysi
meðal félags-
manna.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
FINNBJÖRN
HERMANNSSON
REGÍNA
BJARNADÓTTIR
INGÓLFUR
BENDER
jan.12 331
mar.13 185
mar.14 89
➜ Atvinnulausir
iðnaðarmenn
á skrá hjá Starfi
vinnumiðlun