Fréttablaðið - 13.03.2014, Síða 10
13. mars 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 10
Smiðjuvegi 2, Kóp - S. 554 0400
Grillbúðin óskar að ráða þjónustulundaðan og
vanan sölumann með áhuga á alvöru grillum
Ráðningartími fram í október 2014
Umsóknir og
fyrirspurnir sendast á
einarl@grillbudin.is
B
irt
m
eð
fy
rir
va
ra
u
m
p
re
nt
vi
llu
r.
H
ei
m
sf
er
ð
ir
ás
ki
lja
s
ér
ré
tt
ti
l l
ei
ð
ré
tt
in
g
a
á
sl
ík
u.
A
th
. a
ð
v
er
ð
g
et
ur
b
re
ys
t á
n
fy
rir
va
ra
.
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
•
N
M
61
86
4
Kanarí frá kr. 89.900
Netverð á mann frá kr. 89.900
m.v. 2 í herbergi/stúdíó.19. mars í 9 nætur.
Tenerife frá kr. 109.900
Netverð á mann frá kr. 109.900
m.v. 2 í herbergi/stúdíó. 18. mars í 10 nætur.
Netverð á mann frá kr. 139.900
m.v. 2 í herbergi/stúdíó. 20. mars í 14 nætur.
Netverð á mann frá kr. 129.900
m.v. 2 í herbergi/stúdíó. 27. mars í 7 nætur
m/allt innifalið.
Kanarí frá kr. 99.900
Netverð á mann frá kr. 139.900 á Barcelo
Margaritas m.v. 2 í herbergi. 19. mars í 9 nætur
m/ allt innifalið.
Netverð á mann frá kr. 99.900 á Roque Nublo
m.v. 2 í íbúð. 26. mars í 8 nætur.
Netverð á mann frá kr. 99.900 á Parquesol
m.v. 2 í íbúð. 2. apríl í 7 nætur.
Tenerife frá kr. 129.900
Netverð á mann á Villa Adeje frá kr. 129.900
m.v. 2 í stúdíó. 27. mars í 7 nætur m/ allt innifalið.
STÖKKTU
SÉRTILBOÐ
Allt að15.000 kr. bókunarafsláttur til 18. mars 2014valdir gististaðir, valdar dagsetningar,
ásamt stökktu- og sértilboðum.
Spænskir
dagar
Skógarhlíð 18 • Sími 595 1000
www.heimsferdir.is
Bandarísk stjórnvöld og Atlantshafsbandalagið hafa aukið við herafl sitt
og haldið heræfingar skammt frá landamærum Úkraínu. Spennan er mikil
á Krímskaga eftir að Rússar réðust þangað inn með herlið sitt.
Gelsenkirchen
Þýskaland
RAF
Waddington
Bretland
Boeing E-3 Sentry: Eftirlitsflugvél með ratsjá sem
getur komið auga á flugvélar, skip og önnur
farartæki í allt að 400 km fjarlægð.
Siauliai
Litháen
Kaliningrad
Hluti af
Rússlandi
Constanta
Rúmenía
ÚKRAÍNA
Tyrkland
Frakk-
land
Spánn
500km
300 mílur
Ítalía
Grikkland
Rússland
Lask
Pólland
Meðlimir NATÓ
(Þar á meðal BNA og Kanada)
Nató eflir varnir sínar vegna ástandsins í Úkraínu
Svartahafið Varðskip bandaríska
sjóhersins, USS Truxtun, verður við
æfingar ásamt þremur rúmenskum
varðskipum og búlgörsku freygátunni
Drazki á alþjóðlegu hafsvæði
suðaustur af rúmensku hafnar-
borginni Constanta.
Eftirlit Eftirlitsflugvélin E-3 Sentry
frá Nató flýgur frá flugstöð breska
flughersins í Waddington og frá
Geilenkirchen í Þýskalandi í rann-
sóknarskyni yfir Póllandi og Rúmeníu.
Pólland Bandaríkjamenn senda
að minnsta kosti 12 herþotur af
tegundinni F-16 ásamt 300
hermönnum til herstöðvar í Lask þar
sem þær taka þátt í sameiginlegum
heræfingum.
Litháen Tíu bandarískar
F-15-herþotur og yfir 200 hermenn
eru staðsettir í herstöð í Siauliai í því
skyni að auka eftirlit Nató í lofti yfir
Eystrasaltsríkjunum.
Krímskagi: Yfir 30.000 rúsneskir
hermenn eru sagðir ráða yfir svæðinu.
Þó nokkrar úkraínskar herstöðvar hafa
verið umkringdar.
ÞÝSKALAND,AP Tvær eftirlitsflugvél-
ar á vegum Atlantshafsbandalags-
ins (NATO) sveimuðu yfir Póllandi
og Rúmeníu í gær til að fylgjast
með ástandinu í nágrannaríkinu
Úkraínu.
Vélarnar, sem eru af tegundinni
AWACS, tóku á loft frá herstöðvum
í Þýskalandi og Bretlandi. Þær
yfirgáfu ekki lofthelgi Póllands
og Rúmeníu og flugu því ekki inn
í lofthelgi Úkraínu eða Rússlands,
að sögn talsmanns NATO í Belgíu.
„Flugvélarnar geta rannsakað
yfir 300 þúsund ferkílómetra svæði
og munu aðallega skoða það sem er
að gerast í lofti og á hafi úti,“ sagði
hershöfðinginn Jay Janzen og bætti
við að önnur AWCS-flugvél hefði
farið í eftirlitsflug yfir Rúmeníu á
þriðjudag og að verið væri að undir-
búa fleiri slík flug. „Okkar flug-
vélar munu ekki yfirgefa lofthelgi
NATO,“ áréttaði hann. „Samt sem
áður getum við fylgst vel með því
sem er að gerast langt í burtu.“
28 aðildarríki NATO ákváðu á
mánudag að bregðast við ástandinu
í Úkraínu með því að senda eftir-
litsvélarnar á vettvang. Ákvörð-
unin var tekin eftir að bandarískar
herþotur voru sendar til austur-
evrópskra ríkja sem eiga landa-
mæri að Rússlandi, þar á meðal
Póllands og Litháens.
Bronislaw Komorowski, forseti
Póllands, segist vilja sjá fleiri her-
menn frá Bandaríkjunum í land-
inu til að tryggja öryggi þess innan
NATO. Í þessari viku eru liðin
fimmtán ár síðan Pólland gekk inn
í Atlantshafsbandalagið.
Um þrjú hundruð liðsmenn
bandaríska flughersins og tólf
F-16-herþotur eru væntanlegar til
Póllands í þessari viku til að taka
þátt í sameiginlegum heræfingum.
Pólska ríkisstjórnin óskaði eftir
liðsstyrknum eftir að Rússar tóku
völdin á Krímskaga. freyr@frettabladid.is
Eftirlitsflug NATO
skammt frá Úkraínu
Tvær eftirlitsflugvélar á vegum Atlantshafsbandalagsins sveimuðu yfir Póllandi og
Rúmeníu í gær. Þær geta rannsakað rúmlega 300 þúsund ferkílómetra svæði.
LEGGUR AF STAÐ AWACS, eftirlitsflugvél NATO, tekur á loft í Geilenkirchen í
Þýskalandi. MYND/AP
Leiðtogar sjö helstu iðnríkja heims
munu ekki taka mark á niðurstöðum
atkvæðagreiðslu um það hvort Krím-
skagi verði aðskilinn frá Úkraínu og
verði hluti af Rússlandi.
Í yfirlýsingu frá ríkjunum og Evrópu-
sambandinu eru Rússar hvattir til að
„hætta tilraunum sínum til að breyta
ástandi mála á Krímskaga þvert gegn
úkraínskum og alþjóðlegum lögum“.
Þar sagði einnig að atkvæðagreiðslan
sem er fyrirhuguð á Krímskaga um
helgina „muni ekki hafa neitt lög-
fræðilegt vægi“ og að skipulagning
hennar væri gölluð.
Leiðtogarnir bættu við að þeir
myndu grípa til frekari ráðstafana,
bæði hver í sínu horni og í sameiningu,
ef Rússar reyna að innlima Krímskaga
í ríki sitt. Undir yfirlýsinguna skrifuðu
leiðtogar Kanada, Frakklands, Þýska-
lands, Ítalíu, Japans, Bretlands, Banda-
ríkjanna og Evrópusambandsins.
G7 tekur ekki mark á atkvæðagreiðslu
MALASÍA, AP Síðustu samskiptin á
milli flugmanna malasísku farþega-
flugvélarinnar sem hvarf á laugar-
dag og flugumferðarstjórnar voru
á þá leið að allt væri í himnalagi.
Aðeins nokkrum mínútum áður
en vélin hvarf yfir Suður-Kínahafi
sagði flugmaður vélarinnar: „Allt
í lagi, góða nótt,“ samkvæmt upp-
lýsingum frá malasískum yfirvöld-
um. Síðan þá hefur mikil leit staðið
yfir að vélinni en án árangurs. 239
manneskjur voru um borð.
Varnarmálaráðherra Malasíu
segir yfirvöld í landinu gera allt
sem í þeirra valdi stendur til að
finna flugvélina „Við munum ekki
gefast upp. Fjölskyldurnar eiga
ekkert minna skilið frá okkur,“
sagði hann. Alls hafa 43 skip og 39
flugvélar frá að minnsta kosti átta
þjóðum tekið þátt í leitinni.
Á þriðjudag greindu yfirvöld frá
því að ratsjá hefði greint merki sem
hugsanlega kom frá flugvélinni.
Samkvæmt því hafði hún breytt um
stefnu og flogið yfir Malakkasundi,
um 400 km frá þeim stað sem síðast
heyrðist frá henni. Yfirvöld bíða
staðfestingar á að þetta hafi verið
Boeing 777-vélin og þangað til mun
leitin að henni halda áfram á mjög
stóru svæði í Malasíu og nágrenni.
- fb
Verið er að kanna hvort Boeing 777 vélin sem leitað er hafi sést á ratsjá yfir Malakkasundi:
Allt í himnalagi rétt fyrir hvarf þotunnar
GEFST EKKI UPP Hishammuddin
Hussein, varnarmálaráðherra Malasíu, á
blaðamannafundi. NORDICPHOTOS/AFP
92.600
Leitarsvæðið er tæpir níutíu
og þrjú þúsund ferkíló-
metrar að stærð.
HAFNARFJÖRÐUR Á fundi
fjölskyldu ráðs Hafnarfjarðar í gær
var samþykkt verkefnið Áfram! –
Ný tækifæri í Hafnarfirði.
Tryggja á atvinnuleitendum sem
þiggja fjárhagsaðstoð tilboð um
hlutastarf samhliða virkum stuðn-
ingi. Óvinnufæru fólki á að tryggja
möguleika á starfsendurhæfingu,
vímuefnameðferð eða öðrum
úrræðum. Með þessu á að bregð-
ast við auknu umfangi fjárhags-
aðstoðar Hafnarfjarðarbæjar
síðustu ár. - skó
Fjárhagsaðstoð í Hafnarfirði:
Styðja við fólk í
leit að atvinnu