Fréttablaðið - 13.03.2014, Page 12

Fréttablaðið - 13.03.2014, Page 12
13. mars 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 12 Bílafloti slökkviliðanna í landinu er kominn til ára sinna, en sex af hverjum tíu slökkvibílum eru eldri en 25 ára og væru því gjaldgengir á fornbílaskrá. Aðeins tólf bílar af um 180 hafa verið keyptir á síðasta áratug. Þjálfun og endurmenntun slökkviliðsmanna um allt land hefur setið á hakanum á undan- förnum árum. Eins og Fréttablaðið hefur fjallað um að undanförnu er útbreidd skoðun að gæta verði að uppbyggingu brunavarna í land- inu. Brunavarnaáætlanir hafa ekki verið gerðar eða eru ekki upp- færðar, en í lögum segir að bruna- varnaáætlun eigi að tryggja að slökkvilið hvers svæðis sé þannig mannað, skipulagt, útbúið tækjum, menntað og þjálfað að það ráði við þau verkefni sem því eru falin. Fornbílaklúbbar? Slökkviliðin í landinu eru 37 og bílakosturinn telur um 180 slökkvi- bíla. Innan við fjórðungur bílaflot- ans er yngri en 20 ára, og aðeins 6% bílanna keypt á síðasta áratug. Jón Viðar Matthíasson, slökkvi- liðsstjóri höfuðborgarsvæðisins, samsinnir því að búnað slökkvilið- anna þurfi að bæta og endurnýja. „Þetta er sá þáttur þessarar starfsemi sem þarf sífellt að vinna í. Þjóðin varð hins vegar fyrir áfalli og þá hægði allverulega á uppbyggingu á búnaði slökkvilið- anna. „Samkvæmt skilgreiningu tryggingafélaganna er stór hluti bílaflota slökkviliðanna fornbílar. Ég tek undir það að tölurnar er sláandi,“ segir Jón Viðar og nefnir bilanahættu í samhengi við þá staðreynd að rekstur gamalla tækja geti verið flókinn. „Það er ekkert sjálfsagt að finna varahluti. Það þekkist að menn leiti fyrir sér á e-bay til þess,“ segir Jón Viðar. Bedford Á árunum 1970 til 1972 var gert risaátak í að endurnýja búnað slökkviliðanna og voru um sjötíu bílar fluttir inn á þessu tímabili. Oft er talað um „Bedford-væð- inguna“, eftir bílum af þessari gerð sem margir voru af 1962 árgerð. Margir þessara bíla eru enn í notkun, þótt þeir sitji við hliðarlínuna ef mikið stendur til. Mun afkastageta og áreiðanleiki dælu Bedfordsins vera ástæðan fyrir því að þessum bílum hefur ekki verið fyrir löngu komið fyrir á safni. Spurður hvort viðlíka átaks, á landsvísu, sé þörf svarar Jón Viðar að kannski sé sá tímapunkt- ur að nálgast að huga verði að því. „Þarna þurfa menn hins vegar nýja hugsun. Samvinna og sam- nýting verður að vera ofarlega á baugi. Fjárfestingarnar verða að byggja á greiningum hvað hentar á hverju svæði fyrir sig,“ segir Jón Viðar, sem segir þetta eiga við um atvinnuslökkviliðin jafnt sem minni liðin úti um land. Hvað varðar slökkvilið höfuðborgar- svæðisins þurfi að huga að bíla- kaupum. „Maður finnur samt á sveitarstjórnarmönnum að þeir eru meðvitaðir um þennan vanda. Það er enginn að líta fram hjá þessu, en vandinn er kannski það stór að hendur manna eru bundnar. En við fáum þó góðan stuðning frá þessum stóru sveitarfélögum sem standa að baki okkur, og má nefna nýja og dýra bækistöð í Mosfellsbæ. Þannig að stuðningurinn er ekki bara í orði heldur líka á borði.“ Búnaður slökkviliða er fleira en bílarnir, þó þeir komi fyrst upp í hugann. Sama skurk þarf við endur nýjun annars búnaðar, hlífðar fatnaðar til dæmis. Nefnt hefur verið að gróðureldar útheimti sérstakan búnað, léttari og með- færilegri, en slíkt er vandfundið hér. Spurður um þjálfun og endur- menntun slökkviliðsmanna segir Jón Viðar það renna í sama far- vegi og tækjakaupin, vegna fjár- hagsvandans. „Það liggur fyrir að endur menntun og þjálfun þarf að vera betri hjá öllum. Það liggur í hlutarins eðli að þessir þættir sitja á hakanum þegar glíma þarf við stærri mál,“ segir Jón Viðar. Of mörg og smá Jón Viðar heldur því fram að slökkviliðin í landinu séu of mörg og vanmáttug mörg hver. Víða eru slökkviliðsstjórar í hlutastarfi og geta engan veginn uppfyllt kröfur, til dæmis um forvarnastarf, og margt sem fylgir stjórnsýslu dags- ins í dag. Jón Viðar telur að líta megi til þess þegar málefni fatlaðra voru flutt til sveitarfélaganna frá rík- inu, og þá þess að átta þúsund manns væru að baki hvers þjón- ustusvæðis. Í Noregi til dæmis séu uppi raddir um að lögbinda lág- marksfjölda íbúa að baki slökkvi- liðs. „Það er engin spurning í mínum huga að víða á landinu muni verða mjög til bóta að sam- eina slökkvilið í stærri og sterkari einingar, og í raun aðeins tíma- spursmál hvenær í þetta verður ráðist. Nú þegar hefur slökkvilið- um fækkað verulega og atvinnu- slökkviliðum fjölgað. Kröfurnar fara vaxandi og fólk er betur með- vitað um þessa þjónustu. Sveitar- félögin eru líka orðin meðvituð um það að ef þessi þjónusta er ekki ásættanleg þá spyrji bæði stór og lítil fyrirtæki sig þeirrar spurn- ingar hvort fýsilegt sé að setja sig niður á viðkomandi svæði.“ Hröð uppbygging Um þessar mundir er mikil upp- sveifla í ferðaþjónustu, og eins og nauðsyn krefur fylgir uppbygg- ing innviða. Hótel munu spretta upp sem gorkúlur ef áform ganga eftir, en færri ræða hvað verður að fylgja slíkri uppbyggingu. „Það er alltaf hættan í hraðri uppbyggingu að ekki séu allir þættir teknir inn í jöfnuna. Aukin umferð fólks og farartækja skapar Það liggur fyrir að endurmenntun og þjálfun þarf að vera betri hjá öllum. Það liggur í hlutarins eðli að þessir þættir sitja á hakanum þegar glíma þarf við stærri mál. Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðsstjóri höfuðborgarsvæðisins Meirihluti bílaflotans eru fornbílar Bílafloti slökkviliðanna er að stórum hluta kominn til ára sinna, og fellur undir skilgreiningar um fornbíla. Þjálfun er ekki sinnt eins og þörf krefur. Sameining slökkviliða er aðeins tímaspursmál, enda þarf að mæta kalli tímans til að uppfylla sívaxandi kröfur. ELDUR Í HÖFÐA Starf slökkviliðanna er hulið óvissu og verkefnin ólík. Það er því bráð nauðsyn að búnaður þeirra hæfi verkefnunum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON óumflýjanlega aukna áhættu. Þá er alltaf stóra spurningin, ef eitt- hvað kemur fyrir, hvernig við erum í stakk búin til að bregðast við. Það er til dæmis ekkert gefið, þegar nýtt hótel er byggt á nýjum stað út um land, að til staðar séu innviðir í samræmi við það, og geti svarað kallinu,“ segir Jón Viðar og nefnir að í nýrri byggingareglu- gerð er tekið sérstaklega til þess að ef viðbragðstími og burðir við- komandi slökkviliðs á svæði eru ónógir þá skuli gert ráð fyrir því í viðkomandi byggingu – til að vega upp á móti löngum viðbragðstíma eða getu slökkviliðs. Jón Viðar nefnir sem dæmi þegar álver Alcoa Fjarðaáls við Reyðarfjörð var byggt, að þá tóku sveitarfélögin á svæðinu sig saman ásamt fyrirtækinu og byggðu upp atvinnuslökkvi- lið. „Það hefur þegar sannað sig, og það hefur verið nefnt að þegar kviknaði í spennistöð verk- smiðjunnar hafi starfsemin verið í hættu. Það er í raun þrekvirki slökkviliðsins á staðnum að þakka að ekki fór verr.“ Svavar Hávarðsson svavar@frettabladid.is Búnaður og mannafli slökkviliða 2013 Atvinnuslökkviliðsmenn (17%) Hlutastarfandi slökkviliðsmenn (83%) FJÖLDI SLÖKKVIBÍLA Heildarfj öldi slökkvibíla 179 FJÖLDI SLÖKKVILIÐSMANNA Heildarfj öldi tæplega 1300 6-9 ára 221 1,079 6% 15% 35% 25% 19% 10-19 ára 20-29 ára 30-39 ára 40-71 ára Heimilid: Mannvirkjastofnun 26 bílar 11 bílar 34 bílar 44 bílar 62 bílar Notaðir bílar Frábært úrval af notuðum bílum. Veldu þann sem hentar þínum þörfum best. Notaðir bílar Þú finnur bílinn á benni.is Reykjavík Bíldshöfða 10 Sími: 590 2035 Netf: notadir@benni.is Reykjanesbær Njarðarbraut 9 Sími: 420 3330 Netf: svavar@benni.is Opnunartími: Virkir dagar 10-18 og laugardaga 12-16 Hummer H3 Skráningarár 8/2006 | Sjálfskiptur Bensín | Ekinn: 79.000 km. Verð 2.690.000 kr. GÓ Ð KA UP SsangYoung Rexton RX290 Skráningarár 6/2005 | Sjálfskiptur Dísel | Ekinn: 49.000 km. Verð 1.990.000 kr. GÓ Ð KA UP Chevrolet Captiva Skráningarár 10/2008 | Beinskiptur Dísel | Ekinn: 86.000 km. Verð 2.690.000 kr. GÓ Ð KA UP
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.