Fréttablaðið - 13.03.2014, Page 16

Fréttablaðið - 13.03.2014, Page 16
13. mars 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR NEYTENDUR | 16 Íslenska hugbúnaðarfyrirtækið Gebo Kano setur á næstu dögum í loftið nýjan íslenskan þrautaleik fyrir i-Phone og i-Pad. Þrautirnar er í anda hinnar aldagömlu kín- versku tang- ram-þrautar en formin hannar Kristján Sætr- an Bjarnason. Útlit leiksins og yfirbragð er hannað til að vera róandi og hefur fengið mikið lof frá erlendum leikjaútgefendum. Fyrstu hundrað þrautir IKUE eru ókeypis en hægt er að kaupa viðbótarpakka sem inniheldur 400 fleiri þrautir. - ssb Nýr íslenskur app-leikur: Þrautaleikur fyrir lengra komna NEYTENDUR Leitarrisinn Google hefur breytt útliti sínu. Sé leitarorði slegið upp eru auglýsingar ekki lengur aðgreindar frá hefðbundnum leitar niðurstöðum með appelsínu- gulum lit heldur er lítið gult merki látið nægja. Keyptar auglýsingar eru eftir sem áður efstu leitarniðurstöður Google og geta verið villandi fyrir almenna notendur. Google hefur gefið það út að breyting- arnar séu gerðar með það fyrir augum að einfalda útlit þessarar vinsælustu leitarvélar heims. - ssb Auglýsingar ekki aðgreindar: Google breytir útliti sínu Á HRAÐFERÐ Maður við merki leitar- risans Google í Frankfurt í Þýskalandi. Milljarða eignatjón, óþægindi og jafnvel heilsutjón verður vegna vatnsleka, raka og myglu á íslenskum heimilum ár hvert. Sumt af því bæta trygginga- félögin og er kostnaður þeirra við vatnstjón tæpir tveir milljarðar á síðasta ári. Í um þrjátíu prósent tilfella, eða í 1.500 tilfellum af 5.200, er vatnstjónið ekki bótaskylt. Kostnaður vegna tjóns sem ekki fæst bætt er ekki þekktur en ef reiknað er meðaltjón sem tryggingafélögin bæta einstak- lingum, sem er þrjú hundruð þúsund krónur, þá má áætla að einstaklingar þurfi að taka á sig tæplega fimm hundruð milljónir króna á ári vegna vatnstjóna sem ekki eru bóta- skyld. Jafnvel þótt tjón séu bótaskyld þurfa einstaklingar að greiða eigin áhættu, eða sjálfsábyrgð, upp á tæpar þrjú hundruð milljónir á ári. Samstarfshópur um varnir gegn vatnstjóni var stofnaður á síðasta ári vegna þess mikla kostnaðar sem fylgir vatns- tjóni og fjölda tilvika. Til sam- anburðar er kostnaður vegna eignatjóns í eldsvoðum 1.239 milljónir árið 2013 eða tæplega helmingi minni en vegna vatns- tjóna. Samstarfshópurinn hefur gefið út leiðbeiningar fyrir almenning til að draga úr tjóni vegna vatnsleka. Annars vegar leiðbeiningar til að minnka líkur á vatnstjóni, til dæmis með réttu viðhaldi og endur- nýjun lagna með aðstoð fag- manna. Hins vegar með því að leiðbeina um fyrstu viðbrögð við leka; meðal annars loka strax fyrir vatnsinntak, hafa samband við tryggingafélagið og þurrka vel upp eftir vatns- tjón svo ekki myndist raki og mygla í húsum. erlabjorg@frettabladid.is Vatnstjón kostuðu á þriðja milljarð króna á síðasta ári 6.700 vatnstjón urðu árið 2013 eða um 18 tilvik á dag. Það má ætla að einstaklingar hafi þurft að taka á sig samtals 753 milljónir króna vegna vatnsleka á árinu vegna sjálfsábyrgðar og vatnstjóna sem ekki eru bótaskyld. Birna Ásmundsdóttir Olsen og maðurinn hennar lentu í því óláni að vatn lak úr gömlum ofni inni í stofu. „Nágrannar okkar vöktu okkur snemma á sunnu- dagsmorgni og sögðu okkur að vatn læki niður loftið í þeirra íbúð,“ segir Birna. „Ef þau hefðu ekki orðið vör við lekann þá hefði þetta orðið miklu verra.“ Birna segir að miklar skemmdir hafi orðið á parket- inu og það hafi verið rifið upp og þurrkað. Að auki voru stórir, háværir blásarar í stofunni í fleiri daga til að þurrka gólfið og svo þurfti að setja nýja ofna í stofuna og leggja parketið. „Þetta var svakalegt umstang. Við þurftum að tæma alla skápa og færa dót til og frá. Það er ekki gaman að lenda í þessu en sem betur fer var allt tilbúið tveimur dögum fyrir löngu planaða afmælisveislu í húsinu.“ Svakalegt umstang að lenda í vatnstjóni OFNINN LAK Birna Ásmundsdóttir Olsen við ofninn sem lak og eyðilagði parketið í stofunni. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI VATNSTJÓN Það geta fylgt því mikil óþægindi og rask að verða fyrir vatns- tjóni og oft þarf að endurnýja innréttingar, gólfefni og flísar. FRÉTTABLAÐIÐ/VÍS Ef vatn kemur að utan, til dæmis frá svölum eða þaki. Ef tjón verður vegna lélegs viðhalds, til dæmis við bað, sturtu, blöndunar tæki eða flísar. ➜ Tjón sem ekki er bætt af tryggingum 5.200 bótaskyld tilvik eða um 14 á dag 1.500 tilvik sem ekki eru bótaskyld eða um 4 á dag 2.242 milljónir er heildarkostnaður vegna vatnstjóna 300 milljónir er kostnaður einstaklinga vegna eigin áhættu 455 milljónir er áætlaður kostnaður einstaklinga vegna óbætts tjóns einstaklinga 343 tilvik verða á ári sem kosta yfir milljón krónur eða næstum eitt á dag VATNSTJÓN 2013 KOSTNAÐUR OG FJÖLDI TILVIKA Vilborg Arna Gissurardóttir er pólfari og sendiherra SOS barnaþorpanna. Hún er nú búin að klífa sex af sjö hæstu tindum heims og stefnir á að gera heim- ildarmynd um ferðalög sín. „Bestu kaupin voru klárlega kvikmyndatökuvél sem ég keypti í fyrra, alvöru Canon-vél og mikil fjárfesting. Ég keypti hana af því mig langaði til að gera eitthvert efni úr þessum leiðöngrum mínum og stefni á að gera heimildarmynd.“ Vilborg keypti vélina daginn áður en hún kleif fyrsta tindinn af sjö. „Fyrst var ég lengi að klóra mig fram úr hvernig ætti að kveikja á henni og nota hana en síðan þá hef ég lært mikið.“ „Verstu kaupin mín eru hins vegar forláta samfestingur úr Karen Millen sem ég keypti fyrir einhverjum árum, Hann var alltof lítill á mig og var ekki til í minni stærð. Ég hugsaði með mér að ég myndi passa í hann einn daginn og keypti hann númeri of lítinn. Hann var dýr á sínum tíma. Ég á hann enn í dag og hef aldrei farið í hann.“ - áós NEYTANDINN Vilborg Arna Gissurardóttir Keypti kvikmyndatökuvél og sér ekki eftir því VILBORG ARNA GISSURARDÓTTIR
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.