Fréttablaðið - 13.03.2014, Page 18
13. mars 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR VIÐSKIPTI | 18
Virðing
RéttlætiVR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | S. 510 1700 | F. 510 1717 | WWW.VR.IS
Síðustu
forvöð
að kjósa!
Kosningu til stjórnar VR kjörtímabilið 2014 – 2016
lýkur kl. 12:00 á hádegi á morgun 14. mars.
Kosning er á Mínum síðum á www.vr.is
Láttu þig málið varða og hafðu áhrif með því að kjósa!
Forstjórar tveggja af stærstu
íslensku sjávarútvegsfyrir-
tækjum landsins, telja að stjórn-
völd og Seðlabankinn haldi uppi
óeðlilega sterku gengi krónunn-
ar, sem dragi úr tekjum þeirra í
íslenskum krónum. Þetta sögðu
Vilhjálmur Vilhjálmsson, forstjóri
HB Granda, og Eiríkur Tómasson,
forstjóri Þorbjarnar, í viðtali við
fréttastofu Bloomberg í gær.
Eiríkur sagði að gengi
krónunnar væri falsað eftir að
gjaldeyrishöft voru tekin upp
á Íslandi árið 2008. „Við erum
að nota gengi sem er óraun-
hæft og dregur úr tekjum okkar
í íslenskum krónum,“ sagði
Eiríkur. Vilhjálmur sagðist efins
um núverandi gengi krónunnar.
„Seðlabankinn hlýtur einnig að
vera efins, þar sem hann er til-
búinn til að greiða hærra verð
fyrir evruna á uppboði en það
verð sem hún er skráð á opinber-
lega,“ segir Vilhjálmur í viðtal-
inu við Bloomberg.
Í frétt Bloomberg var tekið
fram að evran kostaði aðeins 155
krónur hérlendis en 239 krónur
erlendis.
Undir þetta tekur Kolbeinn
Árnason, framkvæmdastjóri
LÍÚ, sem segir sjávarútveginn
gríðarlega háðan því hvert gengið
á gjaldmiðlinum sé. „Við hljótum
að leggja áherslu á að það sé rétt
skráð,“ sagði Kolbeinn. Hann
sagði hið tvöfalda skráða gengi
krónunnar skapa ástand sem
feli í sér gríðarlega mikla mis-
munun eftir því hvort verið sé að
búa til gjaldeyri í gegnum reglu-
lega starfsemi, líkt og sjávarút-
vegurinn gerir, eða þegar öðrum
aðilum er hleypt inn í landið með
krónur á allt öðru gengi. „Þetta
er birtingarmynd þessara gjald-
eyrishafta sem vonlaust er að búa
við,“ sagði Kolbeinn sem kallar
eftir skýrri stefnu stjórnvalda.
„Það þarf að marka skýra stefnu
í því hvernig á að aflétta þessum
höftum þannig að allir sitji við
sama borð og að gengi gjald-
miðilsins sé rétt skráð. Stöðug-
leiki þarf að ríkja til framtíðar í
gjaldeyrismálum.“
Hafsteinn Gunnar Hauksson,
hagfræðingur hjá greiningar-
deild Arion banka, sagði í samtali
við Fréttablaðið að krónan hefði
sannarlega styrkst að undan-
förnu, það sé að gerast eins og
hreyfingar með krónuna hafa
verið eftir að höft voru sett á, þá
gerist það vegna undirliggjandi
innflæðis og útflæðis af gjald-
eyri sem hefur einkum með
utanríkisverslun að gera. En um
þessar mundir gæti einnig haft
áhrif að greiðslubyrði innlendra
aðila í erlendri mynt er almennt
séð léttari í ár en í fyrra.
„Seðlabankinn er búinn að
vinna heilmikið á móti styrk-
ingu krónunnar, hann er búinn
að vera að kaupa gjaldeyri út
úr bankakerfinu, frá viðskipta-
vökum, þannig að hann er að
leggjast gegn þessari styrkingu
og safna sér í forðann um leið,“
sagði Hafsteinn. fanney@frettabladid.is
Útvegsmenn ósáttir við
of sterkt gengi krónunnar
Forstjórar sjávarútvegsfyrirtækjanna HB Granda og Þorbjarnar segja stjórnvöld og Seðlabankann halda uppi
óeðlilega sterku gengi krónunnar. Hagfræðingur Arion banka segir Seðlabankann þvert á móti vinna gegn
styrkingu krónunnar. Bankinn hafi keypt gjaldeyri út úr bankakerfinu og safnað í eigin gjaldeyrisforða.
HAFSTEINN G.
HAUKSSON
KOLBEINN
ÁRNASON
ÚTVEGSMENN Forstjórar HB Granda og Þorbjarnar segja gengi krónunnar draga úr tekjum fyrirtækjanna. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Hlutafjárútboð Sjóvár-Almennra
trygginga hf. hefst 27. mars og
stendur yfir til 31. sama mánaðar.
Boðnir verða til sölu 366.279.829
hlutir sem samsvarar 23 prósent-
um af útgefnum hlutum í félaginu.
Hermann Björnsson, forstjóri
Sjóvár, segir að það hafi legið fyrir
af hálfu eigenda frá því þeir komu
inn árið 2011 að þeir vildu fara
með fyrirtækið á markað. „Það er
mikil spenna af hálfu bæði stjórn-
enda og starfsmanna fyrirtækisins
enda mikil vinna sem liggur þarna
að baki. Sú vinna er bæði gefandi
og góð, í henni felst oft mikil nafla-
skoðun. Allar áherslur hafa miðað
að því undanfarið að innviðirnir
væru eins og best er á kosið þegar
við færum á markað. Nú er loksins
komið að þessu og okkur líst bara
mjög vel á þetta,“ sagði Hermann í
samtali við Fréttablaðið í gær.
Fjárfestum verða boðnar tvær
áskriftarleiðir, tilboðsbók A, þar
sem 10 prósent af útgefnu hlutafé
stendur til boða. Þar verður fjár-
hæð áskrifta á bilinu 100 þúsund
krónur til 10 milljónir en öllum
hlutum tilboðsbókarinnar verður
úthlutað á sama verði, 10,7 til 11,9
krónur á hlut, sem jafngildir um
17-19 milljarða króna markaðsvirði.
Tilboðsbók B inniheldur 13 pró-
sent af útgefnu hlutafé, þar sem lág-
marksverð er 11,9 krónur á hlut en
hámarksverð er ekkert. Lágmarks-
fjárhæð áskrifta verður 10.000.001
króna og verður hámarksáskrift í
tilboðsbók B 9,99 prósent af útgefnu
hlutafé félagsins. Þá verður öllum
hlutum í tilboðsbók B einnig út-
hlutað á sama verði.
Skráningarlýsing Sjóvár var birt
í gær og hlutafjárútboðið verður
sem fyrr segir frá 27. til 31. mars.
Niðurstöður verða birtar þann 3.
apríl og Kauphöllin birtir í kjöl-
farið svar við umsókn útgefanda
um töku til viðskipta. Eindagi við-
skiptanna verður þann 9. apríl og
hlutirnir afhentir daginn eftir,
þann 10. apríl. Fyrsti mögulegi
viðskiptadagur með bréf í Sjóvá
á aðalmarkaði Kauphallarinnar
verður því þann 11. apríl 2014. - fbj
23 prósenta hlutur í Sjóvá verður boðinn til sölu:
Sjóvá fer á markað
eftir tvær vikur
MIKIL SPENNA Bæði starfsmenn og
stjórnendur Sjóvár eru spenntir fyrir
skráningu félagsins á markað.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Mál slitastjórnar Glitnis gegn
Lárusi Welding og Guðmundi
Hjaltasyni, fyrrverandi stjórn-
endum bankans, vegna Vafnings-
málsins svokall-
aða var fellt
niður í Héraðs-
dómi Reykjavík-
ur í gær.
Um var að
ræða skaða-
bótahluta máls-
ins en Lárus
og Guðmundur
voru sýknaðir
í Hæstarétti í
febrúar vegna
þess.
Slitastjórnin
hafði í skaða-
bótahlutanum
farið fram á að
Lárus og Guð-
mundur greiddu
hátt í sextán milljarða króna en
samþykkti í gær að greiða máls-
kostnað mannanna að fjárhæð 1,5
milljónir fyrir hvorn. - sáp, sks
Slitastjórn Glitnis banka:
Felldu niður
skaðabótamál
Landsbankinn lauk í dag sölu
á óverðtryggðum flokki sér-
tryggðra skuldabréfa sem skráð-
ur er í Kauphöllina.
Samkvæmt tilkynningu frá
bankanum var útgáfan, LBANK
CB 16, stækkuð um 1,5 milljarða
króna á ávöxtunarkröfunni 6,4
prósent. Áður hefur Landsbank-
inn gefið út 1,92 milljarða króna í
sama flokki og nemur því heildar-
stærð flokksins 3,42 milljörðum.
Stefnt er að því að bréfin verði
tekin til viðskipta í Kauphöllinni
þann 18. mars en
Straumur fjár-
festingabanki
sinnir við-
skipta-
vakt.
- fbj
Sala Landsbankans:
Stækka skulda-
bréfaflokk
LÁRUS WELDING
GUÐMUNDUR
HJALTASON