Fréttablaðið - 13.03.2014, Page 21
FIMMTUDAGUR 13. mars 2014 | SKOÐUN | 21
Kæri Illugi.
Ég tel mig hafa dottið
niður á allsherjarlausn
á vandamálum íslenska
menntakerfisins. Ég vona
að þú fyrtist ekki við, að
illa launuð framhalds-
skólakennslukona úti á
landi, ókjörin til þingsetu
og óbreyttur þegn hafi
orðið þér fyrri til.
Lausnin er mjög ein-
föld. Hún felst í því, að
þú gerir starfslokasamn-
ing við alla framhaldsskólakenn-
ara 60 ára og eldri. Ég er ekki
að tala um útbólgna starfsloka-
samninga í anda hvítflibbaræn-
ingjanna sem keyrðu bankana
í þrot og stýrðu þjóðarskútinni
á sker. Mín hugmynd rúmast
innan almenna tugakerfisins
sem óbreyttir þegnar landsins
lifa og hrærast í. Hún gengur út
á, að hver kennari fengi hálfa
milljón í mánaðarlaun til ævi-
loka fyrir að hætta kennslu. Og
það strax. Upphæðin yrði auðvi-
tað að vera tengd við allar mögu-
legar og ómögulegar vísitölur,
vera verðtryggð í bak og fyrir,
með belti og axlabönd, svo verð-
bólgan éti ekki upp hverja krónu
strax á fyrstu önn starfsloka.
Eins og þú veist er kennara-
stéttin í framhaldsskólunum
orðin nokkuð öldruð og starfs-
lokasamningurinn myndi losa
um fjölmargar stöður. Þá væri
lag að skera eitt skólaár ofan af
framhaldsskólanum og fækka
kennurum. Þið þríeykið, þú,
SDG og BB gætuð gert stöður
þeirra verulega eftirsóknarverð-
ar með því að hækka kennara-
launin svo um munar. Annað er
hreinn ómöguleiki. Myndarleg
hækkunin myndi laða að
skólunum ungt, frískt og
drífandi fólk, alið upp á
tækniöld við tölvuleiki.
Flugur steinrotaðar
Með þessu móti yrðu
margar flugur stein-
rotaðar í einu höggi.
Kennarastarfið yrði
aftur eftir sóknarvert og
launað í samræmi við
menntun, eðli og mikil-
vægi starfsins og skóla-
kerfinu yrði loksins fleytt inn í
upplýsinga- og tækniveröld 21.
aldarinnar. Nemendur þyrftu
ekki lengur að velta því fyrir sér
hvort risaeðlur hefðu verið uppi
á unglingsárum kennara þeirra.
Þeir myndu ekki hætta í skóla
vegna leiðinda yfir gamaldags
og hallærislegum kröfum um
læsi og ritfærni.
Upplýsinga- og tæknivæðing
menntakerfisins myndi gjörbylta
skólaumhverfinu og kennsluhátt-
um. Skólahúsnæði yrði næstum
óþarft þannig að rekstur þess
yrði ekki lengur byrði á ríki og
sveitarfélögum. Autt húsnæðið
mætti nota sem fangelsi, sem
stöðugur skortur er á í seinni tíð,
einhverra hluta vegna, og sem
elli- og hjúkrunarheimili fyrir
alla eldri borgara þessa lands
sem glötuðu ævisparnaði sínum í
bankahruninu.
Starfslokakennararnir,
aldraðir en frískir og sprækir,
enda með hálfa milljón á mán-
uði til æviloka, yrðu síður til
vandræða innan velferðarkerfis-
ins; horrim og eymd myndu ekki
gera þá að þungum bagga, hvorki
hjá félagsmálayfirvöldum né
innan heilbrigðisgeirans.
Miklir fjármunir
Með þessa miklu fjármuni milli
handanna – hálf milljón á mán-
uði eru miklir fjármunir í höndum
kennara, skal ég segja þér Illugi
– gætu þeir líka orðið öflug orku-
sprauta inn í verslun og þjónustu.
Þeir gætu farið að eyða í ýmislegt,
bæði þarft og óþarft, sem myndi
hjálpa til við að koma hinum marg-
umtöluðu hjólum efnahagslífsins
í gang í því vesæla og einangraða
kotsamfélagi sem þú og þínir eru
að undirbúa að skapa okkur til
framtíðar hér á hjara veraldar.
Ég fæ ekki betur séð en að þessi
lausn yrði til hagsbóta fyrir alla,
ekki bara fyrir menntakerfið
heldur samfélagið allt. Allir vinna,
allir græða. Við gætum kannski
meira að segja náð svo langt að
aflétta gjaldeyrishöftunum og
þannig notað starfslokalaunin,
vísitölutengd og verðtryggð í bak
og fyrir, til að flytja á suðrænni
slóðir. Jafnvel innan Evrópusam-
bandsins.
Hvað finnst þér, kæri Illugi? Er
þetta framfylgjanlegt? Fyndist þér
frekt ef ég færi fram á einkarétt
á lausninni og einhverja þóknun
fyrir að hafa dottið ofan á hana?
Greidda í gjaldeyri, að sjálfsögðu.
Með bestu kveðjum og von um
skjót svör.
Bréf til Illuga
Samkvæmt fjölmiðlum,
RÚV, Stöð 2 og Frétta-
blaðinu, lofuðu formenn
Sjálfstæðisflokks og Fram-
sóknar fyrir alþingiskosn-
ingarnar 2013 að þjóðar-
atkvæðagreiðsla yrði um
hvort halda ætti viðræðum
við ESB áfram. Ekki var
minnst á að slíta bæri þessu
viðræðuferli. Eftir kosn-
ingarnar endurtóku bæði
Bjarni Ben. og Sigmundur
Davíð (Laugarvatni 22. maí 2013)
þetta fallega loforð.
Á vefnum Vísi.is segir Gunnar
Bragi að Framsóknarflokkurinn
hafi ekki gefið nein loforð um þjóð-
aratkvæðagreiðslu á þessu kjör-
tímabili. Einungis hafi verið um
að ræða þjóðaratkvæðagreiðslu
ef Framsókn lenti í stjórn með
Evrópusinnuðum flokki til að hafa
þannig hemil á honum. Þetta átti
að vera varnagli gegn gallhörðum
aðildarsinnum Samfylkingarinnar,
eins og Frosti Sigurjónsson hafði á
orði. Hér vandast nú málið fyrir
ykkur framsóknarmenn, því hvers
vegna var þá Sigmundur Davíð að
lofa þjóðaratkvæðagreiðslu um
þetta mál eftir kosningar, þegar
fyrir lá að Samfylkingin yrði ekki
með Framsókn í ríkisstjórn heldur
Sjálfstæðisflokkurinn?
Stenst engan veginn
Staðreyndin er því að sjálfsögðu
sú, að þessi varnaglakenning ykkar
stenst engan veginn og er með ein-
dæmum fáránleg í þokkabót. Gátuð
þið ekki fundið eitthvað aðeins trú-
verðugra en þessa endemis þvælu?
Varðandi sannfæringu þing-
manna við atkvæðagreiðslur
á Alþingi, sem Gunnar Bragi
dregur mjög í efa, þá er afar
eðlilegt að spyrja hann um
eftirfarandi vegna grein-
ar Inga F. Vilhjálmssonar í
helgarblaði DV:
1) Hversu mikinn þátt spilar
sannfæring Þórólfs Gísla-
sonar, fyrrverandi yfir-
manns þíns, í ákvarðana-
töku þinni á hinu háa og
virðulega þjóðþingi okkar
Íslendinga?
2) Eru lætin og yfirgangurinn í
þér varðandi slitatillöguna nokkuð
vegna sérstakrar hagsmunagæslu
í þágu hins volduga kvótakóngs á
Sauðárkróki?
Að lokum vil ég geta þess að
framlagningin á þingsályktuninni
um slit á viðræðum við ESB í miðri
umræðu um skýrslu Hagfræði-
stofnunar Háskólans var alls ekki
sjálfsögð og eðlileg eins og Gunnar
Bragi hélt fram. Þetta athæfi hans
var ekki aðeins fautaskapur, heldur
einnig algjör rökleysa, því að þessi
skýrsla átti að vera grundvöllur
fyrir málefnalegri umræðu á þing-
fundum og síðan átti að taka málið
fyrir í þingnefnd, þar sem sér-
fræðingar yrðu kallaðir til að veita
þingmönnum svör við spurningum
þeirra. Þetta þýðir að ákvörðunin
um slitin var tekin áður en forsend-
ur fyrir henni lágu fyrir og þar af
leiðandi var hér um að ræða óhóf-
lega valdbeitingu vegna ótta við
óhagstæðar niðurstöður um skýrsl-
una og til þess að ljúka þessu máli,
áður en hin stórhættulega skýrsla
frá Alþjóðastofnun Háskóla Íslands
birtist.
Varnaglar
og valdbeiting➜ Hvað fi nnst þér, kæri Illugi? Er þetta framfylgjan-
legt? Fyndist þér frekt ef
ég færi fram á einkarétt
á lausninni og einhverja
þóknun fyrir að hafa dottið
ofan á hana? Greidda í gjald-
eyri, að sjálfsögðu.
EVRÓPUMÁL
Tryggvi
Gunnarsson
kennari
KJARAMÁL
Jórunn
Tómasdóttir
framhaldsskóla-
kennari
ISUZU D-MAX ER EINN HAGKVÆMASTI
OG STERKASTI PALLBÍLL SEM UM GETUR
EYÐSLA AÐEINS 7,4 l/1OO km*
•
•
•
•
•
•
•
•
•
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
6
17
7
8
–
*
M
ið
a
st
v
ið
b
e
in
sk
ip
ta
n
b
íl
í
b
lö
n
d
u
ð
u
m
a
k
st
ri
.
BL ehf
Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík
525 8000 / www.bl.is
GE bílar
Reykjanesbæ
www.bilahusid.is
420 0400
Bílasalan Bílás
Akranesi
www.bilas.is
431 2622
Bílasala Akureyrar
Akureyri
www.bilak.is
461 2533
Bílaverkstæði Austurlands
Egilsstöðum
www.bva.is
470 5070
IB ehf.
Selfossi
www.ib.is
480 8080