Fréttablaðið - 13.03.2014, Side 26

Fréttablaðið - 13.03.2014, Side 26
13. mars 2014 FIMMTUDAGUR| SKOÐUN | 26 Hjá Reykjavíkurborg starfa rúmlega þrjátíu sálfræðingar sem sinna sérfræðiþjónustu við leik- og grunnskóla borgarinnar á þjónustumiðstöðvum Reykja- víkurborgar. Starfið er afar margbreytilegt en felur í megin- dráttum í sér skimun, greiningu, ráðgjöf, fræðslu, stuðning, hóp- meðferð, eftirfylgd og aðra aðkomu vegna vanda barna í leik- og grunnskólum. Þjónustumiðstöðvar borgar- innar eru opnar öllum íbúum og þangað geta allir foreldrar og starfsfólk sent inn erindi þegar áhyggjur af barni vakna. Á þjónustumiðstöðvunum er hvert erindi metið vandlega enda mikil vægt að þau séu afgreidd með réttum hætti. Stundum þarf tiltölulega lítið að gera til að leysa vanda en oft á tíðum er um mjög flókin mál að ræða sem krefjast mikillar sérfræðiþekk- ingar sálfræðinga. Unnið er í nánu samstarfi við barnið, for- eldra, starfsfólk skóla, ýmsa sér- fræðinga og aðra oft yfir mjög langan tíma. Stundum þarf að vísa máli barnsins áfram t.d. á Greiningarstöð ríkisins, Barna- og unglingageðdeild, Þroska- og hegðunarstöð, til sjálfstætt starfandi barnalæknis eða á aðrar viðkomandi stofnanir. Greiningar og stuðningur Sálfræðingar sinna einnig endur mati vegna barna sem þegar hafa fengið greiningu en þurfa endurmat á einkennum sínum að vissum tíma liðnum eða vegna beiðni ýmissa aðila svo sem annars fagfólks. Grein- ingar á hegðunarvanda og geð- rænum vanda barna og unglinga eru alltaf töluvert í umræðunni og ekki að ósekju. Þær eru tíma- frekar enda þarf mjög að vanda til verka og margir að koma að. Ekki er nóg að greina vanda barnsins því mestu máli skiptir fyrir barnið sjálft að það fái rétt- an stuðning í kjölfarið. Vönduð og ítarleg greining á flóknum vanda er forsenda þess að hægt sé að veita barninu sem besta viðeigandi þjónustu í kjölfarið en oft er hægt að styðja börn með almennari leiðum þangað til hún liggur fyrir. Í báðum tilvikum sinna sál- fræðingar í sérfræðiþjónustu mikilvægu og víðtæku ráðgjafar- hlutverki fyrir hina ýmsu aðila eins og starfsfólk skóla, for- eldra og börnin sjálf. Einnig sjá sálfræðingar um að halda hóp- námskeið fyrir börn og foreldra þeirra til þess að veita fræðslu og hópmeðferð vegna ýmiss konar vanda eins og til dæmis kvíða eða þunglyndi eða kenna gagnreyndar uppeldisaðferðir. Sálfræðingar sinna einnig mörgum bráðamálum í hverjum mánuði þar sem bregðast þarf tafarlaust við vegna alvarlegs vanda unglinga eða barna. Sá vandi gæti t.d. stafað af ýmiss konar áhættuhegðun, neyslu, sjálfsskaða, slakri skólasókn eða áföllum. Þetta eru einungis helstu verkefni okkar því ekki er hægt að telja þau öll upp í svo stuttum pistli. Gífurleg aukning mála Við sem störfum við sérfræði- þjónustu gegnum afar fjöl- breyttu og skemmtilegu starfi. Eins og víða hefur álag í starfi okkar aukist verulega undan- farin ár, fjöldi mála hefur aukist gífurlega, fleiri mál eru mjög alvarleg, krafan um sífellt víðtækari sérfræðiþekk- ingu eykst stöðugt og í kjölfar þess að aðrar stofnanir hafa takmarkað aðgengi að sér hefur álagið aukist á okkur sem störf- um í framlínunni. Við gerum okkur grein fyrir því að ábyrgð okkar er gríðarleg enda erum við oft fyrsti sérfræðingurinn sem kemur að máli barnsins, greinir vanda þess og höfum úrslitaáhrif um afdrif þess. Það getur haft ómæld áhrif á far- sæld og lífshlaup þess barns og fjölskyldu þess sem við veitum þjónustu hverju sinni. Þessi mikla ábyrgð og flókið hlutverk okkar er því miður í hrópandi ósamræmi við það sem við fáum greitt fyrir störf okkar og það þykir okkur mjög miður. Það hefur leitt til þess að gott og reynslumikið fólk hefur horfið frá störfum hjá Reykja- víkurborg til annarra og betur launaðra starfa. Þessu viljum við breyta. Við viljum að laun okkar endurspegli það mikil- væga hlutverk sem við gegnum þannig að í þessi vandasömu störf veljist einungis afar hæft fólk sem getur unað hag sínum vel um langa tíð í öflugri stétt sálfræðinga við sérfræðiþjón- ustu skóla. Við eigum að bjóða börnunum okkar upp á það besta sem völ er á. Þau eru framtíðin og það er okkur öllum í hag að sú fram- tíð verði sem björtust. Hvað gera sálfræðingar sem starfa í sérfræðiþjónustu? „Ertu með áhættumat fyrir verkið,“ spurði ég málarann sem var að fara að mála þakið hjá mér“. „Áhættumat? Ég kann ekki að gera áhættumat“, sagði hann. „Jú, víst, þú ert alltaf að gera áhættumat“. „Hvað áttu við?“ „Þegar þú ferð í sumarbústaðinn þinn fyrir austan fjall, þá gerir þú áhættumat mörgum sinnum á leið- inni í huganum. Þegar þú tekur fram úr næsta bíl þá gerir þú áhættumat, þú metur hættuna af ástandi vegarins, bílnum sem kemur á móti, aðliggjandi vega- mótum og farartækjum sem koma á eftir þér. Þegar þú hefur fullvissað þig um að líkurnar á því að þú komist heill fram úr bílnum eru yfirgnæfandi þá framkvæmir þú aðgerðina. Ef ekki þá hættirðu við. Þetta er áhættumat“. „Já, þú meinar.“ Þessi tilbúna saga hér að ofan er sögð til að sýna fram á að einfaldasta slysavörnin, gerð áhættumats, er ekki flókin aðgerð. Telja má fremur ólíklegt að áhættumat sé gert fyrir við- haldsvinnu í heimahúsum eða öryggismál yfir höfuð rædd í því samhengi. Oft eru þeir sem vinna á þessum vettvangi ein- yrkjar eða fyrirtæki með fáa starfsmenn sem ekki eru vön því að gera áhættumat starfa. Í Reglum 547/1996 segir: „Verkkaupi, skal ,…, gera ráðstafanir sem tryggja að við fram- kvæmd verksins verði unnt að gæta fyllsta öryggis.“ Athuga ber að það er ekkert í lögum og reglum sem undan- skilur verkkaupa frá þessum reglum í þeim tilvikum sem verktakavinna fer fram á persónulegri eign verkkaupa eins og t.d. íbúðarhúsi. Siðferðisleg skylda En hvaða kröfur gerum við sem verkkaupar þegar við erum að fá einhvern til að vinna fyrir okkur verk sem felur í sér margvísleg- ar hættur? Ef það er svona lítið mál að gera áhættumat af hverju er það þá ekki gert? Nú er það auðvitað svo að almenningur er ekki sérfróður um öryggismál og getur í mörgum tilfellum ekki metið hvort öryggisráðstafanir eru fullnægjandi. Hins vegar er það oft svo aug- ljóst mál að ekki er rétt staðið að framkvæmdum að hver leik- maður getur séð að hér er ekki allt í lagi. Hver kannast ekki við að hafa séð ótrygga stiga eða vinnupalla samsetta af van- efnum einhvers staðar þar sem vinna við íbúðarhúsnæði fer fram? Hvað gerist ef verktaki sem er að vinna í heimahúsi slasast við vinnu sína? Ef í ljós kemur að allar öryggisreglur hafa verið brotnar við vinnuna og verkkaupi hefur látið undir höfuð leggjast að krefjast þess af verktaka að lágmarkskröfum um öryggi hafi verið sinnt, hver er þá ábyrgð verkkaupans? Mér vitandi hafa engir dómar fallið í slíkum málum en það er kannski bara tímaspursmál hvenær það gerist. Það er siðferðileg skylda okkar að láta vita ef við verðum vitni að því að augljóslega er verið að vinna á óöruggan hátt og skiptir þá ekki máli hvar sú vinna fer fram. Vinnueftirlitið getur ekki verið með sína eftir- litsmenn alls staðar en það er hægt að hringja inn til þeirra ef við verðum vitni að slíkum vinnubrögðum og láta vita. Munum að slíkt símtal getur bjargað mannslífi. Vinnuslys í heimahúsum Náttúruvitund og nátt- úruvernd hefur tekið stórstígum framförum á undanförnum áratugum. Umhverfismál eru inn í dag – ofarlega eða jafnvel efst í umræðunni. Þrátt fyrir það veita því fáir athygli hve miklum skaða maðurinn veldur í náttúru og lífríki með athöfnum sínum í dýraeldi. Það er þegjandi samkomulag um að þegja um slíkt, þegjandi samkomulag um að vera óupplýst, þegjandi samkomulag um að loka augum fyrir því sem fram fer í eldisbúum landsmanna. Margir eru illa að sér um umhverfi, náttúru og dýralíf, eru óupplýstir og ólesnir, sjá ekki og heyra ekki, er einfaldlega sama – láta sér örlög náttúru og dýralífs í léttu rúmi liggja. Svo eru aðrir sem eru upplýstir en vilja ekki vita, vilja ekki spilla matarlystinni. Heitfengir náttúruverndarsinnar láta sig dýravelferðarmál jafn- vel engu skipta. Telja fyrirhafnar- minna að bera umhyggju fyrir hinni dauðu náttúru en þeirri lif- andi og ekki líklegt að sá sem er áhugasamur um vernd sanda og mela þurfi að fórna nokkru af „lífs- ins lystisemdum“ vegna hugsjóna sinna, þurfi að breyta neysluvenj- um sínum, þurfi að huga að því skaðræði sem hann veldur í dýra- ríkinu, þurfi að kljást við nagandi samviskubit vegna umhverfishegð- unar sinnar. Slíkir eru viljandi óupplýstir um aðstæður eldisdýra. En baráttan gegn óásættanlegri meðferð dýra í eldisiðnaðinum snýst ekki eingöngu um dýravel- ferð, umhverfismál spila þar stóra rullu. Veit hinn óupplýsti það? Veit hinn óupplýsti að það kostar tíu kaloríur að framleiða eina kaloríu í dýraafurðum, t.d. kjöti? Veit hinn óupplýsti að 18% þeirra loft- tegunda sem valda gróðurhúsa- áhrifum verða til við framleiðslu dýraafurða sem er meira en öll samgöngu- og flutningskerfi spúa frá sér? Og þá er allt með talið, bílar, lestar, skip, flugvélar, vinnu- vélar, já bara öll samgöngu- og flutningskerfi leggja einungis til 13% þeirra mengandi lofttegunda sem valda gróðurhúsaáhrifum á móti þeim 18% sem framleiðsla dýraafurða gerir. Samt er lögð megin áhersla á að draga úr meng- andi útblæstri í samgöngum. Grimmd og skeytingarleysi Með tilliti til skaðlegra umhverfis- áhrifa eldisiðnaðarins, þ.e. vegna mengunar, gríðar- legrar vatnsnotkunar og umfangs ræktarlands, sem nú þegar er takmarkað, er líklegt að innan næstu 100 ára verði allt nauðeldi dýra (e. Intensive Factory Farming) bannað í okkar heimshluta og að innan 150 ára verði neysla dýraafurða að mestu aflögð af siðferðisástæðum. Nú þegar er til tækni sem gerir kleift að framleiða hluta þeirra afurða sem fást með dýraeldi og innan næstu 50 ára er líklegt að hægt verði að framleiða allar slíkar afurðir án milligöngu dýranna blessaðra hvort sem það er í nauð- eldi eða hefðbundnum landbúnaði. Þar fyrir utan mun aukin fræðsla um skaðsemi nauðeldis og illa meðferð dýra valda því að neyt- endur munu rísa upp og andmæla þeirri ósiðlegu og óboðlegu skelf- ingariðju sem þar er stunduð. Í opnum og lýðræðislegum upplýs- ingasamfélögum framtíðar mun hægt og bítandi verða flett ofan af þeim ósóma sem fram fer í eldis- iðnaði og hann opnaður upp á gátt svo allir megi sjá það sem þar fer fram. Umhverfis- og náttúruverndar- fólki er tíðrætt um umhyggju sína fyrir komandi kynslóðum, ekki megi rýra möguleika þeirra til að njóta þeirrar „óspilltu“ náttúru sem núlifandi kynslóðir njóta. Ekki er síður ástæða fyrir umhverf- is- og náttúruverndarfólk að hafa áhyggjur af því hvað komandi kynslóðir muni segja um skaðlega umhverfishegðun núlifandi kyn- slóða, t.d. vegna þeirrar stórfelldu mengunar sem stafar frá eldis- iðnaði. Eitt er víst, sú illa meðferð dýra sem nú er tíðkuð í nauðeldi með þegjandi samþykki fjöldans mun ekki njóta velþóknunar kom- andi kynslóða. Til þess er með- ferð dýranna of vægðarlaus og grimmdarleg. Að óþörfu eru þau varnarlaus látin þola ólýsanlega áþján og kvalræði til þess eins að svala nautnahyggju núlifandi kyn- slóða með lágmarks tilkostnaði. Í því samhengi munu komandi kyn- slóðir líta með hryllingi og skömm til skefjalausrar grimmdar og skeytingarleysis núlifandi kyn- slóða. Þeir óupplýstu Heilmikið hefur verið rætt og ritað um ýsu- vandamál smábáta. Vandinn er öllum ljós en minna er um lausnir. Samtök smærri útgerða, SSÚ, hafa ítrekað rætt um leiðir sem leyst geta þennan vanda. Þar er m.a. um að ræða svokall- aða ígildaleið. Ígildaleiðin þýðir í raun enga breytingu á úthlutun á veiðiheim- ildum frá því sem er í dag. Línubátar geta hins vegar veitt þann fisk sem er til staðar á þeirra heimamiðum og ígildi aflans reiknuð eftir hverja lönd- un. Það eru nú þegar notaðir ígildisstuðlar fyrir allan fisk og miðað er við að þorskur sé eitt ígildi. Síðan eru ígildi tegunda reiknuð út frá verðmæti á hverju fiskveiðiári, nú er ýsa t.d. 1,15 þorskígildi, skötuselur 1,98, ufsi 0,82 og steinbítur 0,95 svo nokkrar tegundir séu nefnd- ar. Þannig að ef veidd eru eftir ígildaleið 100 kg af ýsu þarf að leggja til 115 kg þorskkvóta. Ég tel hættuna á ofveiði ein- hverra tegunda hverfandi þó að ígildaleiðin væri farin. Ígilda- leiðin myndi öllu heldur endurspegla ástandið á miðunum hverju sinni og gæti verið góð viðbót í gagnagrunn Hafrann- sóknastofnunar og styrkt stofn- unina til að meta ástand fiski- stofna hverju sinni. Ýsuvandamál smábáta er mikið og getur haft alvarleg áhrif á útgerð þeirra. Nú skiptir máli að bregðast við ástandinu, sjá tækifærin sem eru fyrir hendi og nýta þau. Ígildaleiðin er góður kostur í stöðunni og vel þess virði að láta á hana reyna. Ígildaleiðin er umhverfis- væn, sýnir vel stöðu og breytingar á fiskistofnum á hverju svæði fyrir sig og engum er betur ljóst og treystandi en smábátasjómönnum, hversu nauðsynlegt er að ganga vel um fiskimiðin sem þeir sækja. Ígildaleiðin ÖRGGISMÁL Kristján Kristinsson öryggisstjóri Landsvirkjunar ➜ Hvað gerist ef verktaki sem er að vinna í heimahúsi slasast við vinnu sína? ➜ Heitfengir náttúru- verndarsinnar láta sig dýravelferðarmál jafnvel engu skipta. ➜ Ýsuvandamál smábáta er mikið og getur haft alvarleg áhrif á útgerð þeirra. Nú skiptir máli að bregðast við ástand- inu. ➜ Þessi mikla ábyrgð og fl ókið hlutverk okkar er því miður í hrópandi ósamræmi við það sem við fáum greitt fyrir störf okkar og það þykir okkur mjög miður. Það hefur leitt til þess að gott og reynslumikið fólk hefur horfi ð frá störfum hjá Reykjavíkurborg til annarra og betur launaðra starfa. Þessu viljum við breyta. Við viljum að laun okkar endur- spegli það mikilvæga hlut- verk sem við gegnum. SAMFÉLAG Edda Sif Gunnarsdóttir Kristbjörg Þórisdóttir Sandra Guðlaug Zarif Tryggvi Ingason fyrir hönd sálfræðinga í sérfræðiþjónustu skóla hjá Reykjavíkurborg SJÁVARÚT- VEGUR Bárður Guð- mundsson formaður Samtaka smærri útgerða DÝRAVERND Óskar H. Valtýsson félagi í Dýra- verndarsambandi Íslands
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.