Fréttablaðið - 13.03.2014, Page 34

Fréttablaðið - 13.03.2014, Page 34
KYNNING − AUGLÝSINGFermingar FIMMTUDAGUR 13. MARS 20142 Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000. Forsíðumynd: Daníel Rúnarsson. Ritstjórn: Vera Einarsdóttir, Sólveig Gísladóttir. Blaðamenn: Elín Albertsdóttir, Lilja Björk Hauksdóttir, Starri Freyr Jónsson, Ragnheiður Tryggvadóttir, Sólveig Gísladóttir, Vera Ein- arsdóttir, og Þórdís Lilja Gunnarsdóttir. Umsjónarmaður auglýsinga: Kolbeinn Kolbeinsson, kkolbeins@365.is, s. 512-5442 Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal. Meirihluti íslenskra ungmenna ferm-ist og segir séra Hildur Eir Bolla-dóttir, prestur í Akureyrarkirkju, þau gera það af þremur ástæðum. „Þau vilja hafa Jesú sem leiðtoga í lífi sínu og þekkja hann sem sína aðalfyrirmynd, þau vilja halda veislu og gleðjast með mikilvægasta fólkinu í lífi sínu og svo vilja þau fá gjafir og í þessari röð er markmiðum fermingarstarfs- ins náð. Einhver gæti spurt sig hvort það sé markmið að fá gjafir og því svara ég til að gjafir séu eitt tjáningarform af mörgum sem við höfum til að tjá elsku okkar og þakklæti fyrir fólkið okkar. Eina sem við þurfum er að vera vakandi fyrir að gjafirnar séu keyptar og gefnar á réttum forsendum.“ Fjölbreyttara val fyrir ungmenni Hildur segir að sem betur fer lifum við í fjöl- menningarsamfélagi og því hafi eðli málsins samkvæmt þeim sem láta ferma sig eitthvað fækkað á undanförnum árum enda fleiri Íslendingar sem tilheyra nú öðrum trúar- brögðum og kirkjudeildum. „Einnig býður Siðmennt upp á fræðslu í siðfræði og heim- speki sem er góð viðbót því þá hafa krakk- arnir fjölbreyttara val. Það að hafa val þýðir að við þurfum að hugsa og taka meðvitaðar ákvarðanir.“ Kirkjan bregst við breytingum Tímarnir hafa breyst hratt undanfarin ár og eru áskoranir unglinga í dag talsvert ólíkar þeim sem kynslóðirnar á undan þurftu að fást við. „Kirkjan bregst vissulega við breytt- um tímum þótt boðskapur Jesú sé tíma- laus. Kirkjan stendur auðvitað alltaf fyrir sömu gildin, þau sem Jesús gerði að algild- um sannleika með lífi sínu og dauða, sem er kærleikurinn með öllum sínum greinum en það sem kannski var talið kærleiksríkt að gera fyrir fimmtíu árum telst ef til vill meðvirkni í dag og jafnvel þöggun. Þannig að við þurfum alltaf að vera að hugsa þessi gildi í nýju samhengi og það er áskorun fermingarfræðarans. Guðfræðin er ótrúlega lifandi fag og eiginlega getur maður aldrei talist fullnuma í henni,“ segir Hildur Eir. Heyra um Jesú og líf hans Hún segir fermingarfræðslu vera misjafna eftir prestum og öðrum fermingarfræður- um en að grunnstefið í öllum kirkjum sé að segja krökkunum frá Jesú, lífi hans og starfi. „Það er bæði gert með því að segja sögurn- ar af honum og sögurnar sem hann sagði til að kenna okkur að vera góðar manneskjur. Svo er áskorun að tengja kristindóminn við það sem krakkarnir eru að fást við í lífi sínu í dag. Annars kom líka mjög flott ferming- arefni frá biskupsstofu í ár en það er mynd- diskur með trúðunum Barböru og Úlfari, sem leikin eru af Halldóru Geirharðsdótt- ur og Bergi Þór Ingólfssyni, en þar fjalla þau um nokkrar biblíusögur og gera það með sínum einlæga og húmoríska hætti.“ Kynfræðingur í fræðslunni Foreldrar eru virkjaðir meira með í ferming- arfræðslunni nú en tíðkaðist á árum áður. „Hér hjá okkur í Akureyrarkirkju höfum við bæði fengið foreldrana til að mæta í guðs- þjónustur með börnunum og eins köllum við þau á tvo fundi, annars vegar við upphaf vetrar og svo á miðjum vetri. Þá bjóðum við upp á einhvers konar fræðslu til að styðja við uppeldið. Kirkjan lofar nefnilega að vera slíkur stuðningsaðili þegar barn er fært til skírnar og það er mikilvægt að hún standi við það. Við höfum fengið kynfræðing til að tala um kynlíf unglinga og sálfræðing til að tala um það að ala upp ungling í nútíma- samfélagi og svo höfum við fengið heim- sóknir frá meðferðarheimilum og margt f leira. Foreldrar hafa brugðist mjög vel við þessu og verið þakklátir, það er auðvitað ekkert einfalt að ala upp barn.“ Fermingarkjóllinn eldist vel Faðir Hildar Eirar var prestur eins og hún, séra Bolli Gústavsson heitinn. Hún segir sína upplifun af fermingunni hafa mót- ast mjög mikið af því. „Ég hafði fylgst með fermingarstörfum í mörg ár áður en kom að mér. Ég var búin að hlakka alveg of- boðslega lengi til, þetta var gríðarlega stór dagur í mínu lífi. Ég man hvað ég upplifði það sterkt að allir væru að skipuleggja og snúast í kringum mig og minn dag, mér fannst ég vera svo mikilvæg. Ég fékk Ís- lendingasögurnar og Sturlungu frá foreldr- um mínum í fermingargjöf en þess hafði ég óskað mér frá því ég var tíu ára. Ég fermdist í mjög flottum kjól sem var keyptur í Sautj- án og hefur elst svo vel að systurdóttir mín sem er 26 ára gömul fór í honum á árshátíð fyrir um tveimur árum. Það er ekki slæmt,“ segir Hildur Eir og hlær. Jesús, veisla og gjafir ástæðurnar Séra Hildur Eir Bolladóttir segir ungmenni fermast því þau vilji hafa Jesú sem leiðtoga í lífi sínu, þau vilji halda veislu og fá gjafir. Fermingarbörn í dag standa frammi fyrir fjölbreyttara vali en eldri kynslóðir og þurfa því að hugsa og taka meðvitaðar ákvarðanir um hvort og hvernig þau vilja fermast. Fermingarfræðslan hefur breyst í takt við tímann þótt boðskapur Jesú sé tímalaus. Hildur Eir hlakkaði mikið til sinnar eigin fermingar og var dagurinn gríðarlega stór í hennar lífi. MYND/BJARNI EIRÍKSSON RITNINGARVERSIN VALIN Hvert fermingarbarn velur sér ritningarvers úr Biblíunni sem það, eða presturinn, fer með í fermingunni. Á vefsíðunni ferming.is má sjá nokkur vers sem algengt er að fermingarbörn velji sér. Úr Gamla testamentinu: Í upphafi skapaði Guð himin og jörð. (1. Mósebók. 1.1) Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert bresta. (Sálm. 23.1) Fel Drottni vegu þína og treyst honum, hann mun vel fyrir sjá. (Sálm. 37.5) Nýja testamentið Sælir eru miskunnsamir, því að þeim mun miskunnað verða. (Matt. 5.7) Biðjið, og yður mun gefast, leitið og þér munuð finna, knýið á og fyrir yður mun upp lokið verða. (Matt. 7.7) Allt sem þér viljið, að aðrir menn gjöri yður, það skuluð þér og þeim gjöra. Þetta er lögmálið og spámennirnir. (Matt. 7.12) 7.990 kr 8.990 kr 9.990 kr
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.