Fréttablaðið - 13.03.2014, Page 42
KYNNING − AUGLÝSINGFermingar FIMMTUDAGUR 13. MARS 201410
Axel Björn Clausen, yfirmatreiðslumaður á Fiskmark-aðnum, starfaði á námsárunum á Grand hóteli þar sem fermingarveislur eru algengar. Minna er um þær á nú-
verandi vinnustað en Axel segist hafa heyrt að fólk kjósi frem-
ur léttari veitingar í fermingarveislur í dag en áður tíðkuðust.
„Mér sýnist að fólk vilji frekar útbúa matinn heldur en að kaupa
hann tilbúinn af veisluþjónustum, enda er það ódýrara. Það
er einfalt að ná sér í góðar uppskriftir á netinu. Það er hins
vegar hægt að kaupa mjög góðar og fallegar fermingartertur
tilbúnar,“ segir Axel.
„Léttar snittur, pinnamatur, kjúklinga- og lambaspjót er
mjög vinsælt á veisluborðið núna þótt alltaf séu margir sem
kjósa rjóma- og brauðtertur,“ segir hann. „Algengt er að fólk
bjóði í léttar veitingar stuttu eftir hádegi en þá er sniðugt að
bjóða upp á matarmikla og bragðmikla súpu ásamt heitum
brauðréttum,“ segir hann enn fremur.
Axel Björn er alinn upp á Akureyri og segir sína fermingar-
veislu hafa verið með hefðbundnu kaffihlaðborði með heitum
brauðréttum, pönnukökum og rjómatertum. „Mamma réð veisl-
unni, enda var ég ekki byrjaður að hugleiða kokkinn á þessum
tíma,“ segir hann. Sautján ára flutti hann til Reykjavíkur og fór
í kokkanám. Nú hefur hann starfað hjá Fiskmarkaðnum í tæp
fimm ár. Axel Björn er í Íslenska kokkalandsliðinu sem er að
undirbúa heimsmeistaramótið sem verður í nóvember.
„Ef ég mætti ráða veislunni minni í dag myndi ég hafa létta
súpu, til dæmis indverska bauna- og tómatsúpu sem ég gef
uppskrift að hér. Síðan væru heitir brauðréttir, heitt rúllubrauð,
snittur og spjót,“ segir hann. „Ég er mjög hrifinn af indverskum
mat og margvíslegum kryddtegundum,“ segir Axel.
Indversk bauna- og tómatsúpa (Uppskrift miðast við 6
manns)
1 tsk. olía, til steikingar
1 stór laukur, fínt skorinn
3 hvítlauksgeirar, rifnir niður með rifjárni
4 cm af engifer, rifið með rifjárni
1-2 jalapeño, smátt skorið
1 tsk. mulið cumin
1 tsk. mulin koríanderfræ
¼ tsk. kanill
¼ tsk. túrmerik
1 dós af niðursoðnum tómötum, um það bil 450 ml, skornir gróft
niður, safinn líka notaður
2 bollar af elduðum linsubaunum
2 bollar af elduðum kjúklingabaunum
½ l af vökvanum sem baunirnar voru eldaðar í
Salt
250 ml grískt jógúrt
Um það bil 20 kvistir af graslauk, fínt saxaðir
Olían hituð í potti og laukurinn settur út í, steiktur þar til
hann er byrjaður að mýkjast og brúnast. Þá er engifer, jalapeño
og allt þurrkryddið sett saman við og hrært vel þar til góður
ilmur berst frá kryddinu, um það bil 2 mín. Þá er tómötunum
bætt út í ásamt vökvanum og helmingnum af baununum, bæði
linsu- og kjúklingabaunum, og vökva af baununum. Lækkið
hitann og látið malla í 10 mínútur. Því næst er súpan maukuð
í blandara eða með töfrasprota þar til hún verður flauelsmjúk.
Setjið aftur í pottinn og bætið restinni af baununum saman-
við. Smakkið til með salti.
Saxið graslauk og setjið saman við grísku jógúrtina. Gríska
jógúrtin er síðan sett út í súpuna.
Bakaður camembert með mango chutney,
hunangi og pekanhnetum (Uppskrift fyrir 6)
2 camembert-ostar
100 ml mango chutney
100 ml dökkt hunang
150 g pekanhnetur
Osturinn skorinn í sneiðar og þeim raðað í grunnt eldfast
mót. Þunnu lagi af mango chutney er smurt yfir ostinn með
skeið. Hnetum og hunangi er blandað saman í skál en síðan
sett yfir ostinn og chutney. Bakið í ofni í 180°C í 15 mínútur.
Borið fram með kexi. elin@365.is
Ljúffeng indversk súpa á veisluborðið
Hvernig væri að breyta til og hafa bragðgóða súpu og góða brauðrétti í fermingarveislunni? Axel Björn Clausen matreiðslumaður
gefur hér girnilegar uppskriftir að indverskri bauna- og tómatsúpu og bökuðum camembert með mango chutney og hnetum.
Axel Björn Clausen, yfirmatreiðslumaður á Fiskmarkaðnum, segir að
margir kjósi að bjóða upp á léttar veitingar í fermingarveislum. MYND/GVA
Kjúklingaspjót eru mjög vinsæl á
hlaðborðum í fermingarveislum.
Þau henta fyrir allan aldur. Bæði
er hægt að bjóða upp á satay-
sósu með kjúklingnum og súr-
sæta sósu.
Þessi uppskrift er miðuð við
þrjátíu manns. Hafa skal í huga
að hér er um að ræða einn rétt af
mörgum á borðinu. Flestir fá sér
kjúkling.
15 kjúklingabringur
15 hvítlauksrif
3¾ dl sweetchili-sósa
8 msk. sojasósa
8 msk. ólífuolía
salt og pipar
sesamfræ
tréspjót (þurfa að liggja í bleyti í
að minnsta kosti 15 mínútur fyrir
notkun)
Skerið hverja bringu eftir endi-
löngu í fjórar lengjur. Blandið
öllu sem upp er talið hér fyrir
ofan saman í skál fyrir utan
sesamfræin. Leggið kjúklinga-
strimlana í blönduna og látið
standa í um það bil tvo tíma í
kæliskáp. Þræðið kjúklingalengj-
urnar upp á spjótin og stráið
sesamfræjunum yfir. Grillið eða
steikið í um það bil þrjár mínútur
á hverri hlið.
Berið fram með súrsætri sósu,
sweetchili-sósu og hnetusósu.
Hægt er að kaupa sósurnar til-
búnar eða gera sjálfur.
Einföld hnetusósa
(hægt að stækka uppskriftina eftir
þörfum)
3 dl apríkósusulta
2 msk. hnetusmjör
1 msk. ferskt kóríander, fínt skorið
Súrsæt sósa
(hægt að stækka uppskrift eftir
þörfum)
⅓ bolli hvítvíns- eða hrísgrjónaedik
4 msk. púðursykur
1 msk. tómatsósa
1 tsk. sojasósa
2 tsk. maísmjöl blandað með 4 tsk.
af vatni
Blandið saman ediki, púður-
sykri, tómatsósu og sojasósu í
pott og látið suðuna koma upp.
Hrærið maísmjöl og vatn saman
við til að þykkja.
Gott er að setja ananasbita út í
sósuna ef einhver vill breyta til.
Kjúklingaspjót vinsæl
Kjúklingaspjót eru vinsæl á hlaðborð fermingarveislunnar.
Burt’s Bees vörurnar fást t.d. í Lyfjum & heilsu
Kringlunni og í Fríhöfninni. náttúran og ég
NÁTTÚRULEGIR OG MILDIR
LITIR FYRIR FERMINGUNA