Fréttablaðið - 13.03.2014, Page 44
KYNNING − AUGLÝSINGFermingar FIMMTUDAGUR 13. MARS 201412
Mikil tilhlökkun ríkir á heimili
Halldórs Benedikts Haraldsson-
ar, 14 ára Breiðholtsbúa, sem ferm-
ist í apríl. Halldór gengur í Selja-
skóla og fermingarundirbúning-
ur hans og jafnaldra hans hefur
staðið yfir í allan vetur. Hann seg-
ist alltaf hafa verið ákveðinn í að
fermast en flestir jafnaldrar hans
í Seljaskóla fermast nú í ár.
„Við byrjuðum að hittast viku-
lega í Seljakirkju síðasta haust en
þar hefur fermingarhópurinn hist
alla þriðjudaga í vetur. Þar fer fjöl-
breytt fræðsla fram en við lærum
um kristna trú og ferminguna
auk þess sem við fáum fræðslu á
ýmsum öðrum sviðum sem snerta
ekki beint kristna trú heldur lífið
almennt.“ Auk fermingarfræðsl-
unnar í Seljakirkju fór hópurinn
í Vatnaskóg í október og gisti þar
eina nótt. Einnig tekur Halldór
mikinn þátt í starfi KFUM. Stóri
dagurinn verður 6. apríl næst-
komandi í Seljakirkju þegar Hall-
dór fermist ásamt skólafélögum
sínum. „Athöfnin verður með
hefðbundnu sniði, geri ég ráð fyrir,
og ég hlakka mikið til dagsins.“
Veislan verður haldin í húsnæði
Hjallastefnuleikskólans Laufás-
borgar þar sem móðir Halldórs
vinnur. Hann býst við fjölda gesta
og skemmtilegum degi. „Við erum
búin að bjóða um 120 manns
þannig að það verður mikið fjöl-
menni. Við erum búin að panta
tertur frá Tertugalleríi Myllunn-
ar og mat frá veitingastaðnum
Habibi. Ég fékk að hafa skoðun á
tertunni en foreldrar mínir réðu
meira um matinn sjálfan.“
Aðspurður um fermingartísk-
una hjá drengjum í ár segir Hall-
dór ekkert eitt sérstakt vera vin-
sælt heldur sé hún nokkuð blönd-
uð. Flestir klæðist jakkafötum og
ýmist með bindi eða slaufu en þó
séu slaufurnar heldur vinsælli í ár.
Halldór á vafalaust eftir að fá
margar fallegar og nytsamlegar
gjafir en hann segist ekkert vita
hvað hann fær. „Ég held að for-
eldrar mínir séu að hugsa um nýtt
golfsett en samt veit ég ekkert hvað
þau eða aðrir gefa mér.“
Stór dagur framundan
„Ég fékk að hafa skoðun á tertunni en foreldrar mínir réðu meira um matinn sjálfan,“
segir Halldór Benedikt Haraldsson. MYND/GVA
Sunna Hlín Eggertsdóttir Í hvaða
kirkju fermist þú? Í Lindakirkju í
Kópavogi
Hvar verður veislan haldin?
Veislan verður haldin heima hjá
okkur.
Hvernig verður veislan? Veisl-
an verður seinnipartinn og við
verðum með smárétti, pinnamat
og kökur.
Koma margir í veisluna? Já, ég
á stóra fjölskyldu, það eru 125 á
gestalistanum.
Verða skemmtiatriði? Nei, það
verða engin skemmtiatriði
Hvernig eru fermingarfötin? Við
erum ekki búin að kaupa ferm-
ingarfötin en mig langar í hvítan
kjól og ballerínuskó.
Hvað langar þig í í fermingar-
gjöf? Foreldrar mínir gefa mér
utanlandsferð með vinkonum
mínum. Annars er ekkert sér-
stakt á óskalistanum.
Hvernig hefur fermingarfræðsl-
an verið? Fermingarfræðslan
hefur verið ágæt, við mætum í
hverri viku í kirkjuna og svo var
skemmtileg ferð í Vatnaskóg síð-
asta haust.
Tekur þú þátt í undirbúningn-
um fyrir ferminguna? Ég tek smá
þátt en pabbi og mamma sjá um
þetta að mestu leyti.
Ertu stressuð fyrir stóra dag-
inn? Nei, ekkert sérstaklega.
Af hverju ætlar þú að fermast?
Það er orðin hefð að 8. bekkingar
fermist. Alveg eins og það er ekk-
ert spurt að því hvort þú viljir fara
í 8. bekk þá er ekkert endilega
spurt að því hvort þú viljir ferm-
ast, það fermast bara allir.
Utanlandsferð með
vinkonum í fermingargjöf
Sunna Hlín Eggertsdóttir fermist í Lindakirkju í Kópavogi. Veislan verður fjölmenn enda fjölskyldan stór.
Sunna fær utanlandsferð með vinkonum í fermingargjöf frá foreldrum sínum.
Sunna Hlín verður
með fermingar-
veisluna heima og
býður upp á smá-
rétti og kökur.
MYND/DANÍEL
SÆTUR BITI Í BUDDUNA
Spenna og fiðringur getur
komið í veg fyrir góða matarlyst
á fermingardaginn. Í marg-
menni getur orðið heitt og
loftlaust í kirkjunni og ferming-
arathöfnin dregist á langinn. Því
er mikilvægt að fermingarbarn-
ið nærist og drekki vel áður en
stóra stundin rennur upp. Gott
er að hafa meðferðis vatnsbrúsa
og léttan millibita í kirkjuna og
á hátíðisdegi sem þessum má
alveg bjóða upp á ljúffengt og
sætt nesti undir tönn sem gefur
tafarlausa orku í kroppinn.
Verndarengill
Fermingargjöf sem gefur
Fermingarskeyti eða gjafabréf frá Hjálparstarfi kirkjunnar er
gjöf sem heldur áfram að gefa. Fermingarbarnið
fær skeytið eða bréfið í hendurnar en
andvirðið rennur til jafnaldra fermingar-
barnsins sem býr við fátækt.
Sendu skeyti, það kostar 1.990 kr. Eða gefðu
fermingargjafabréf að upphæð 5.000 kr.
Þú færð skeytin og gjafabréfin á
www.gjofsemgefur.is eða pantar þau á
skrifstofunni okkar, 528 4400. Þú prentar út,
sækir til okkar – eða við sendum fyrir þig. Einfalt og gleðilegt.
Óskalistinn minn:
Rúm
Myndavél
Svefnpoki
iPod
Vefmyndavél
Teppi
Orðabók
Hálsmen
Svo væri gaman
að fá pening og
„Gjöf sem gefur“.
Mig langar til að
einhver sem er
ekki eins heppinn
og ég fái að njóta
með mér.
www.gjofsemgefur.is
Við systkinin erum
munaðarlaus. 1.990 kr.
fermingarskeyti á Íslandi
dugar fyrir 3 hænum.
Þær gefa okkur fullt
af eggjum.
5.000 kr. gjafabréf á
Íslandi myndi gefa
okkur geit.
Eða kannski reiðhjól.
Þá kæmist ég á markað
með uppskeruna okkar
og við fengjum pening.
Óskalistinn minn: