Fréttablaðið - 13.03.2014, Qupperneq 46
KYNNING − AUGLÝSINGFermingar FIMMTUDAGUR 13. MARS 201414
Jakob Fjólar Gunnsteinsson fermist hinn 6. apríl næstkomandi. Honum
finnst líklegt að það verði einhver óvænt skemmtiatriði í fermingarveisl-
unni sem verður væntanlega skemmtileg fyrir fullorðna fólkið. Hann býst
við að þurfa að heilsa einhverjum sem hann hefur aldrei hitt.
Í hvaða kirkju ferm-
ist þú? Ég fermist í Bessa-
staðakirkju á Álftanesi
Hvar verður veislan
haldin? Ég er ekki alveg
búinn að ákveða það en
það verður örugglega
heima
Hvernig verður veisl-
an? Hún verður örugg-
lega skemmtileg fyrir full-
orðna, en litlu krökkun-
um mun líklega fara að
leiðast á meðan ég heilsa
einhverjum sem ég hef
aldrei hitt.
Koma margir í veisl-
una? Já, ég held það komi
svona 50 manns eða fleiri.
Verða skemmtiatriði?
Það verða örugglega ein-
hver óvænt skemmtiat-
riði þar.
Hvernig eru ferming-
arfötin? Ég er ekki kom-
inn með fermingarföt en fæ þau fljótlega, allavega held ég að ég þurfi
kannski fermingarföt.
Hvað langar þig í í fermingargjöf? Mig langar í borðtölvu, PS4-
leikjatölvu og iPad. Og svolítið af peningum líka.
Hvernig hefur fermingarfræðslan verið? Hún hefur verið skemmti-
leg, gaman að hitta krakkana og presturinn okkar er alveg æðislega
skemmtilegur.
Tekurðu þátt í undirbúningnum fyrir ferminguna? Auðvitað geri
ég það. Ég held að allir vilji það. Maður fermist nú aðeins einu sinni.
Ertu stressaður fyrir stóra daginn? Svolítið, en þetta er dálítið líkt
afmæli ef maður hugsar um það.
Af hverju ætlarðu að fermast? Ja, flestallir krakkar fermast, svo af
hverju ætti ég ekki að gera það? Ég trúi á Guð og Jesú en ég fatta ekki af
hverju maður þarf að sanna það með því að fermast. Ég þekki nokkra
sem trúa ekki á Guð en eru samt að fermast. Það er skrýtið, finnst mér.
Örugglega óvænt
skemmtiatriði
Jakob tekur fullan þátt í fermingarundirbúningnum.
Það er áskorun að mynda ung-linga. Fermingarmyndir skrá-setja mikilvæg tímamót í lífi
fermingarbarnsins og kúnst að ná
fram einstöku samspili sakleysis í að-
draganda fullorðinsára.
❖ Takið myndirnar þegar ungling-
urinn er ánægður, vel nærð-
ur og sofinn. Sé fermingarbarnið
taugaóstyrkt og trekkt birtist það
í neikvæðni og tregðu framan við
myndavélina. Skapið því þægilegt
andrúmsloft þar sem barninu líður
vel og nýtur sín óþvingað.
❖ Leyfið fermingarbarninu að velja
hverju það klæðist. Unglingar eru
á viðkvæmum aldri og mjög með-
vitaðir um sjálfa sig. Íklæddir uppá-
haldsfötunum sínum verða þeir
sjálfsöruggari í framkomu.
❖ Gott er að hafa hugfast að ungling-
ar sýna gjarnan á sér aðrar hliðar
þegar foreldrarnir eru fjarri og því
verða viðbrögð þeirra í myndatök-
unni afslappaðri.
❖ Unglingar hafa sterkar skoðanir á
því hvernig þeir birtast á myndum.
Þeir vilja fá að vera þeir sjálfir og
ekki breyta sér fyrir myndatökuna.
Reynið því að ná fermingarbarninu
eins og það er í stað falskrar mynd-
ar sem sýnir annan mann.
❖ Komið fram við táninginn eins og
hann sé fullorðinn. Sýnið honum
hvatningu og virðingu sem eykur
honum sjálfstraust. Myndatak-
an verður þá bæði auðveldari og
ánægjulegri.
❖ Spjallið við fermingarbarnið áður
en myndataka fer fram. Hvert er
áhugamál þess? Er það kannski fót-
bolti eða að hangsa með vinum í al-
menningsgarðinum? Farið þá með
út á fótboltavöll eða í garðinn og
fáið unglinginn til að klifra í trjám
eða leggjast í grasið. Því afslappaðra
sem umhverfið er því meiri verður
orkan og tjáningin.
❖ Sumir eru hræddir við myndavélar
og vitaskuld óþarfi að allar mynd-
ir sýni bros og gleði. Frábær leið til
að virkja táninga er að ná mynd þar
sem þeir dunda við áhugamál sitt
og vita ekki af myndavélinni. Þegar
óvænt útkoman kemur í ljós verða
þeir vísast til í enn frekari mynda-
tökur.
❖ Nú til dags eru börn mynduð oftar
en eldri kynslóðir því nær allir
símar eru búnir myndavélum. Enn
er þó mikill munur á Instagram-
mynd og myndum úr alvöru ljós-
myndavélum sem geta stýrt hraða,
dýpt og urmul annarra atriða.
❖ Unglingar elska fjör og framan við
myndavélina gefst frábært tækifæri
til að ná því á mynd. Hleypið pers-
ónuleika þeirra út og leyfið þeim
að grínast og glensa en munið þó
að taka líka alvarlegri portrett sem
sýna önnur svipbrigði.
Minning um sakleysi og fjör
Fermingarmyndin er dýrmætur minnisvarði um æskuljóma og æviskeið þegar barnslegt sakleysi er enn við lýði en fermingarbarnið
er þó að komast nær því að verða fullorðið. Eftirfarandi heilræði gagnast vel þegar teknar eru ljósmyndir af fermingarbarninu.
Er fermingarbarnið kannski náttúruunnandi eða á sér einhvern uppáhaldsstað? Þá er tilvalið að taka fermingarmyndirnar líka á
þeim stað því það sýnir vel persónuleika barnsins.
Okkar bakarí í Garðabæ er bakarí í stöðugri þróun sem byggir á gömlum
grunni. Bakaríið hefur alla tíða
lagt mikla áherslu á vandað og
gott vöruúrval þegar kemur að
fermingarveislum auk persónu-
legrar þjónustu. Að sögn Árna
Þorvarðarsonar, bakara í Okkar
bakaríi, er eftirspurnin sífellt að
aukast eftir vörum og þjónustu
þeirra þegar fermingarveislur eru
skipulagðar. „Við bjóðum upp á
ýmsar tegundir af kökum og tert-
um, í öllum stærðum og gerðum.
Kransahornið okkar er til dæmis
mjög vinsælt, Rice Crispies-turn-
inn vekur alltaf lukku hjá yngstu
kynslóðinni og síðan bjóðum við
upp á skúffubita en þar er búið að
skera stærri tertur í smærri bita
sem eru þægilegir í uppstillingu
og snyrtilegir á borði.“ Af öðrum
vörum nefnir Árni marsípanbók-
ina sem er marsípanterta sem
hægt er að fá með letri og mynd,
franska súkkulaðitertu og hefð-
bundna súkkulaðitertu.
Að sögn Árna leggur Okkar
bakarí mikla áherslu á persónu-
lega þjónustu. „Við veitum við-
skiptavinum okkar góð ráð og
hlustum á hugmyndir þeirra.
Þeir sem leita til okkar hafa ólík-
ar þarfir og skoðanir en stundum
þarf líka að hlusta á fagmennina.
Við vitum oft betur hvað pass-
ar saman og ekki saman enda
komið nálægt skipulagningu
margra veislna. Stundum kemur
fyrir að viðskiptavinir velja eitt-
hvað sem þeim þykir gott en
höfðar ef til vill ekki til breiðs
hóps gesta. Þá er það okkar að
koma með aðrar tillögur.“
Það er misjafnt að sögn Árna
hversu mikið er keypt í ferming-
arveislurnar. Hann segir f lesta
útbúa einhvern mat heima fyrir
en kökur og tertur sem sé tíma-
frekt að baka, og jafnvel f lóknari
í framleiðslu, séu frekar keyptar
hjá þeim. „Það er auðvitað allur
gangur í því. Sumar kaupa allar
veitingar hjá okkur á meðan aðrir
láta duga að kaupa tvær til þrjár
kökur, til dæmis kransahornið og
marsípankökuna.“
Nánari upplýsingar má finna
á www.okkarbakari.is og á Face-
book-síðu bakarísins.
Persónuleg þjónusta
Vandað vöruúrval og góð þjónusta einkennir Okkar bakarí. Þótt margir útbúi
einhverjar veitingar sjálfir kjósa þeir að kaupa stærri og betri kökur og tertur.
ND/GVA
„Við veitum viðskiptavinum okkar góð ráð og hlustum á hugmyndir þeirra,“ segir Árni
Þorvarðarson hjá Okkar bakaríi. MYND/GVA