Fréttablaðið - 13.03.2014, Qupperneq 48
KYNNING − AUGLÝSINGFerming FIMMTUDAGUR 13. MARS 201416
Glæsileg fermingartilboð
eru nú í gangi hjá Dún og
fiðri á sængum og öllum
sængurverasettum. Dún
og fiður framleiðir flest-
allar söluvörur sínar svo
sem sængur, kodda, púða
og pullur. „Ég get stað-
fest það að við erum með
sængur í hæsta gæða-
flokki,“ segir Anna Bára
Ólafsdóttir, einn af eig-
endum Dúns og fiðurs.
„Sængurnar okkar eru
með þúsund gramma
fyllingar og er meðalaldur sænganna átján til tuttugu ár. Við end-
urnýjum einnig sængurnar og erum þau einu í Evrópu sem gerum
það. Meðallíftími dúnsins í sængum er um það bil átján til tutt-
ugu ár. Verið dugar hins vegar í tíu til tólf ár. Því er gott að skipta
um ver og bæta við dúninn eftir þann tíma. Þannig endist sæng-
in mun lengur. Erlendis er ætlast til þess að ný sæng sé keypt á um
það bil sex ára fresti. Allar sængur er hægt að endurnýja hjá okkur
þegar verin eru orðin slitin og þá endist sængin mun lengur. Því
dýrari sem dúnninn er því frekar borgar sig að endurnýja hann.“
„Ástæðan fyrir því að sængurnar okkar eru með þúsund grömm
af dúni er einfaldlega sú að þá verður endingin meiri.“
Dún og fiður er fjölskyldufyrirtæki sem hefur starfað í 55 ár.
Á þessum tíma hefur safnast saman mjög mikilvæg þekking og
reynsla á öllu sem lýtur að dúni og fiðri, efnum því tengdum og
meðhöndlun sængurfatnaðar. Dún og fiður framleiðir vörur sínar
úr mismunandi dúni og fiðri, það er æðardúni, snjógæsadúni,
svana dúni, andardúni og eru gæðin í þeirri röð sem hér er talið.
„Sæng frá okkur er fjárfesting til framtíðar og erum við með frábær
fermingartilboð þessa dagana. Snjógæsadúnsæng er á 49.800 krónur,
svanadúnssæng á 33 þúsund krónur og andadúnssæng á 21 þúsund.
Einnig erum við með tilboð á öllum sængurverum,“ segir Anna Bára.
Fjárfesting til framtíðar
Malen Þorsteinsdóttir, kjólaklæð-
skeri hjá Eðalklæðum, segir að
alltaf séu nokkrar fermingar-
stúlkur sem vilji láta sérsauma
á sig kjólinn. „Ástæðurnar geta
verið margvíslegar,“ segir Malen.
„Stundum er það stærðin sem
verður þess valdandi að kjóll-
inn þarf að vera sérsaumaður, oft
langar fermingarstúlkuna í eitt-
hvað annað en fæst í búðum eða
hún vill láta búa til sinn eigin
draumakjól. Margar hafa eytt
miklum tíma á netinu í
að spá og spekúlera
hvað sé f lottast.
Þær hafa ákveðn-
ar hugmyndir um
snið og liti,“ segir
Malen sem hefur
s a u m a ð m a r g a
fermingarkjóla og
ek k i síður brúðar-
kjóla.
Leita á netinu
„Sumar ferm-
ingarstúlk-
ur hafa mjög
sterkar skoð-
anir og það er
mjög gaman að
sauma fyrir þær.
Svo eru aðrar sem hafa engar hug-
myndir og biðja um hjálp sem er
sjálfsagt að veita og skemmtilegt
fyrir okkur. Þetta er því fjölbreytt
starf,“ segir Malen.
Kjóllinn sem hún saumaði fyrir
Dagbjörtu er „sixties“-kjóll. „Hún
var búin að leita að svona kjól á net-
inu og kom með full-
mótaðar hugmynd-
ir. Einnig var hún
með ákveðinn lit í
huga, kóralrauðan.
Oftast vilja ferming-
arstúlkur ljósa kjóla
og ömmur hafa
gjarnan áhrif
á að kjóllinn
eigi að vera
með hv ít r i
blúndu,“ segir
hún.
„Við leitumst
við að gera kjólana úr
vönduðum efnum og sér-
saumaður kjóll er því dýr-
ari en sá sem er keyptur
í búð. Í staðinn er engin
önnur stúlka í eins kjól.
Stúlkurnar koma líka
með hug my nd i r að
efnum sem við síðan út-
vegum ef með þarf.“
Ekki of stutt eða flegið
Þegar Malen er spurð um sídd
á kjólum segist hún vilja hafa
þá langleiðina niður að hnjám.
„Auðvitað fá þær að ráða hversu
stuttur kjóllinn er en ég reyni
að hafa áhrif. Það er leiðinlegt
ef fermingarstúlkan beygir sig
og það sést í nærbuxurnar. Mér
finnst fermingarkjóll ekki eiga
að vera of f leginn né heldur of
stuttur.“
Malen segir að margar mæður
fermingarbarna láti einnig sauma
á sig kjól. Þegar fermingum lýkur
taka brúðkaupin við hjá Eðal-
klæðum og þau standa fram á
haustið, greinir hún frá. „Þá taka
vorlitirnir við hjá mæðrunum.“
Ánægð með kjólinn
Dagbjört Lilja er nemandi í Voga-
skóla en hún segist vera mjög
ánægð með sérsaumaða kjólinn.
„Þetta er kjóllinn sem mig hefur
dreymt um,“ segir hún og nú er
hann tilbúinn fyrir ferminguna
13. apríl sem fram fer í Langholts-
kirkju. Dagbjört segist hlakka
mikið til dagsins en hún ætlar
að bjóða gestum í kvöldmat. „Ég
var virkilega ánægð þegar ég var
komin í kjólinn minn,“ segir hún.
Fékk draumakjólinn
Margar fermingarstúlkur hafa sjálfstæðan smekk og vilja ráða sjálfar hvernig
fermingarkjóllinn eigi að líta út. Dagbjört Lilja Magnúsdóttir er ein þeirra.
Lokahönd hefur verið lögð á kjólinn. Kjólameistararnir og eigendur Eðalklæða, Ása Lára Axelsdóttir og Malen Þorsteinsdóttir. MYND/GVA
Snyrtivörurnar frá Kardashian Beauty
er komin til landsins
Kíktu www.verdia.is
Eftirtalin Apótek og heilsubudin.is selja Proactiv® Solution
AKUREYRARAPÓTEK, Kaupangi - LYFJAVER, Suðurlandsbraut 22
BORGARAPÓTEK, Borgartúni 28 - GARÐSAPÓTEK, Sogavegi 108
URÐARAPÓTEK, Grafarholti - ÁRBÆJARAPÓTEK, Hraunbæ 115
APÓTEK GARÐABÆJAR, Litlatúni 3 - REYKJAVÍKURAPÓTEK,
Seljavegi 2, APÓTEK HAFNARFJARÐAR, Tjarnarvöllum 11
Heildsölubirgðir, Konkord ehf. S. 568 9999, heilsubudin@heilsubudin.is
Í Proactiv® Solution eru efni sem hreinsa húð þína
og eyða bólum. Með daglegri notkun koma efnin í
veg fyrir að nýjar bólur myndist. Við lofum því!