Fréttablaðið - 13.03.2014, Blaðsíða 62
KYNNING − AUGLÝSINGFermingar FIMMTUDAGUR 13. MARS 201430
Í vor verða 70 ára síðan Sverrir Hermannsson, fyrrverandi ráðherra, þingmaður og banka-
stjóri, fermdist ásamt fimm öðrum
jafnöldrum sínum. Fermingin fór
fram í Ögurkirkju í Ögurvík, sem
er á milli Skötufjarðar og Mjóa-
fjarðar við Ísafjarðardjúp. „Það var
Óli Ketilsson sóknarprestur sem
sá um fermingarundirbúninginn
sem tók um tíu daga. Hann var
ágætur maður og ágætur prestur
sem var ekki að ónáða menn með
messum í tíma og ótíma en tal-
aði vel og lengi þegar hann hafði
messur.“
Þrír drengir og þrjár stúlkur
tóku þátt í fermingarundirbún-
ingnum þetta árið en Óli Ketilsson
dvaldi í Ögurvík á meðan hann
stóð yfir. „Hann kenndi okkur
meðal annars trúarjátninguna og
við lásum úr Nýja testamentinu.
Reyndar höfðum við lært ýmislegt
heima hjá okkur, til dæmis vísur
Hallgríms Péturssonar.“
Dýrmæt gjöf
Athöfnin fór vel fram að sögn
Sverris þótt hún væri alllöng og
kirkjan var þéttsetin. Að henni
lokinni var slegið upp veislu á
heimili Sverris fyrir heimilisfólkið
þar sem boðið var upp á súkkulaði
og sætar kökur. Sverrir fékk arm-
bandsúr frá foreldrum sínum í
fermingargjöf sem honum þótti
mjög vænt um. „Á þessum tíma
voru fermingarbörn nýbyrjuð að
fá dýrar gjafir. Úrið kostaði minn-
ir mig 300 krónur og hafði stóran
litla vísi. Mér þótti afskaplega
vænt um þessa gjöf enda áttu ekki
margir armbandsúr á þessum
slóðum þegar ég var að alast upp.“
Engin fermingarmynd var tekin
af Sverri og fermingarsystkinum
hans enda enginn ljósmyndari á
þessum slóðum á þeim tíma. Ári
síðar f lutti fjölskylda Sverris til
Ísafjarðar þar sem fjögur yngstu
systkini hans fermdust.
Mikil tímamót
Margt hefur breyst á 70 árum
varðandi fermingarundirbúning-
inn, ferminguna sjálfa og veislu-
höldin. Sverrir segir að þótt ferm-
ingar séu meira umfangs en áður
var sé hún þó mikil tímamót fyrir
ungt fólk sem hugsi um trú sína
og guð sinn. „Fyrir mitt leyti þá
trúi ég og veit þannig að ég fer
ekki í neinar grafgötur með þessa
hluti. Það á alls ekki að gera lítið úr
fermingum.“
Sverrir fæddist á bænum
Svalbarði í Ögurvík og ólst þar
upp ásamt stórum systkina-
hópi. Hann segir að gott hafi
verið að alast upp í Ögurvík en
á þeim tíma var nokkuð þétt-
býlt á þessum slóðum, til dæmis
var barnaskóli og læknissetur
þar öll bernskuár Sverris. „Kall-
inn átti trillu og gerði hana út á
vorin og haustin. Ég var sjóveikur
í fyrstu og fór oft að æla áður en
ég fór um borð. Svo lagaðist það
síðar þegar ég fór á síldina. Ég
sinnti líka kindunum heima en
við áttum margar kindur og kú.
Þar lærði ég að mjólka áður en ég
fermdist. Svo passaði ég við ær-
burð og missti bara eitt lamb á
fjórum árum.“
Tímarnir breytast og siðirnir með
Miklar breytingar hafa orðið á fermingum undanfarna áratugi. Sverrir Hermannsson fermdist fyrir 70 árum í Ögurkirkju í Ögurvík
ásamt fimm jafnöldrum sínum. Fermingarundirbúningurinn tók tíu daga og veislan var eingöngu fyrir heimilisfólkið.
„Það á alls ekki að gera lítið úr fermingum,“ segir Sverrir Hermannsson, fyrrverandi ráðherra, þingmaður og bankastjóri. MYND/VALLI
Franskar makkarónur eru
ekki aðeins bragðgóðar
heldur einnig afar fallegar
á að líta. Þær má útbúa
í ýmsum litum og með
margvíslegu bragði. Á
vefsíðu sjónvarpskokksins
Evu Laufeyjar Kjaran
Hermannsdóttur, www.
evalaufeykjaran.com, er að
finna uppskrift að þessum
bragðgóðu kökum.
3 eggjahvítur
210 g flórsykur
125 g möndlur, fínt
hakkaðar.
30 g sykur
Dálítill matarlitur
Möndlurnar eru settar í
matvinnsluvél og malaðar
þar til þær eru orðnar að
fínu mjöli. Þá er flór-
sykrinum blandað saman við og þeytt í eina til tvær mínútur. Opnið mat-
vinnsluvélina, skafið meðfram hliðunum, setjið lokið aftur á og þeytið í
um það bil tvær mínútur. Möndlumjölið er sigtað og grófu möndlunum
sem verða eftir í sigtinu er hent eða geymdar til betri tíma.
Nú skal þeyta eggjahvíturnar, sykri er bætt út í í þremur pörtum og
blandan þeytt þar til hún er stíf. Matarlit að eigin vali er bætt út í.
Bætið þurrefnum saman við eggjahvíturnar í þremur skömmtum með
sleif og hrærið vel á milli.
Teiknið hringi á stærð við tíkalla á bökunarpappírinn. Sprautið deiginu
í hringina. Sláið plötunni nokkrum sinnum í borðið svo kökurnar verði
sléttar og fínar og látið þær síðan standa í um 25 til 30 mínútur.
Bakið við 150°C í 10-12 mínútur.
Rjómakrem
2 dl rjómi
1 msk. flórsykur
1/2 tsk. vanilla-extract
Þeytið rjóma, bætið flórsykrinum og vanillu-extractinu saman við í lokin. Þetta
krem er einfalt en möguleikarnir eru endalausir þegar kemur að bragði og áferð
kremsins. Mismunandi uppskriftir má finna víða á veraldarvefnum.
Litfagrir unaðsbitar