Fréttablaðið - 13.03.2014, Page 68

Fréttablaðið - 13.03.2014, Page 68
KYNNING − AUGLÝSINGFermingar FIMMTUDAGUR 13. MARS 201436 „Ég hef verið kallaður maðurinn með róluna,“ segir Jón Páll og hlær en í stúdíóinu hans, sem hann flutti nýlega í Síðumúla 3-5, er hann meðal annars með gamaldags trérólu sem kemur vel út á mynd. „Ég hef verið að þróa þennan stíl í nokkur ár en þar spilar saman bakgrunnur, gólf, lýsing og eftirvinnsla. Ég vinn svolítið útfrá húðlit og þannig næst þetta hlýja yfirbragð sem kemur mjög vel út í stækkunum á vegg og striga.“ Jón Páll er þaulvanur fermingarmyndatökum. Hann segir f lesta sækjast eftir hressilegum og skemmtilegum myndum og rúllar yfirleitt ákveðnu prógrammi í gegn til að ná fram því besta. Hann segir fermingarbörnin gjarnan koma með eitthvað sem tengist áhugamálum í tökuna og að mörg láti mynda sig í mis- munandi fatnaði; bæði spari og hversdags. „Eins nota flestir tækifærið og taka fjölskyldumynd í leiðinni. Þetta eru ákveðin tímamót í lífi hverrar fjölskyldu og myndi ég ætla um það bil ⅔ geri það.“ Allar nánari upplýsingar er að finna á www.jon- pall.com Hlýlegar myndir sem fara vel á vegg Ljósmyndarinn Jón Páll Vilhelmsson hefur markað sér nokkra sérstöðu í fermingarmyndatökum. Myndir hans hafa yfir sér hlýlegan blæ og notar hann auk þess ýmsa leikmuni til að gefa þeim aukið líf. Flestir vilja hressilegar og skemmtilegar myndir. Í stúdíóinu er Jón Páll með gamaldags trérólu sem kemur vel út á mynd. Margir taka með sér fatnað eða fylgihluti sem tengjast áhugamálinu í tökuna. Jón Páll segir hlutfall stráka og stelpna sem láta mynda sig fyrir ferminguna alveg jafnt. M oroccanoil-hárvörulínan er olíurík og nærandi blanda, gerir hárið mýkra og gefur því aukinn glans,“ segir Fríða Rut Heimisdóttir hjá Regalo, sem er umboðsaðili MOROCCAN- OIL á Íslandi. Moroccanoil-hárvörulínan er heimsþekkt vörumerki sem ein- kennist af blágrænum, appelsínu- gulum og bláum litum, innblásn- um frá Miðjarðarhafinu. Argan-olían sem notuð er í vörurnar hefur vakið heimsathygli en hún á uppruna sinn að rekja til Marokkó. „Margir rugla saman vöru- merkinu og olíunni,“ segir Fríða. „Í raun er ekkert til sem heitir Moroccanolía, heldur er það vöru- merkið. Vörumerkið inniheldur hins vegar tvær olíur sem eru mjög nærandi og styrkjandi fyrir allt hár. Eini munurinn á þeim er að light-olían hentar fíngerðu, af- lituðu hári betur.“ Olíurnar má nota einar og sér eða blanda útí djúpnæringar- maska frá merkinu, til að fá enn meiri árangur en þessar ein- stöku olíur unnu til 17 verð- launa um allan heim árið 2013 og hafa í raun umbylt hárvöru- iðnaðinum. „Merkið hefur einnig verið áberandi á tískuvikum um allan heim og nú er fagteymi á vegum Moroccanoil-hárvörumerkisins á leiðinni hingað til lands til að vinna með f lottum íslenskum fagmönnum sem sjá um hárið á Reykjavík Fashion Festival nú í mars.“ Moroccanoil l ínan fæst á hágæða h ársnyrtistofum. Styrkjandi hárvörur Moroccanoil-hárvörulínan er heimsþekkt vörumerki innblásið af Miðjarðarhafinu. Moroccanoil-vörurnar næra og styrkja hárið og hafa unnið til verðlauna um allan heim. Sextíu ár eru liðin síðan íslensk ferming- arbörn klæddust fyrst hvítum kyrtlum. Það var vorið 1954, fyrir tilstuðlan séra Jóns M. Guðjónssonar á Akra- nesi. Hugmynd Jóns var að öll fermingar- börn klæddust eins til að enginn munur sæist á efnahag fjöl- skyldna þeirra. Eftir að fermingar- börn séra Jóns klædd- ust hvítum kyrtli á fermingardaginn breiddist siðurinn fljótt út meðal fermingar- barna á Ísland. Fram að því hafði ferming- artískan frá því um 1920 verið á þann veg að stúlkur klæddust hvítum síðkjólum og drengir dökkum jakkafötum. Þegar líða tók á 20. öldina fór slíkur klæðaburður að þykja hallærislegur og tóku stúlkur upp á því að lita fermingarkjóla sína og nota sem ballkjóla. Spruttu fljótt upp háværar raddir sem sögðu nánast helgispjöll að nota fermingarkjólinn á dansleik og færðist mjög í vöxt að börn fengju þá einnig eftirfermingar- föt, sem þýddi tvöföld útgjöld fyrir foreldra. Hvítur kyrtill var því kærkomin og falleg lausn á miklum merkis degi og er kyrtillinn boðberi þess að allir séu jafnir fyrir guði. Allir jafnir fyrir guði Moroccanoil-hárvörulínan er olíurík og nærandi blanda sem gerir hárið mýkra og gefur aukinn glans.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.