Fréttablaðið - 13.03.2014, Blaðsíða 72

Fréttablaðið - 13.03.2014, Blaðsíða 72
KYNNING − AUGLÝSINGFermingar FIMMTUDAGUR 13. MARS 201440 KORNFLEX FYRIR KRAKKA Ef það eru einhverjar kökur sem mælast alltaf vel fyrir hjá krökkum í veislum eru það kornflex/Rice Krispies-kökur. Annar stór kostur er hve auðvelt er að búa þær til. Til dæmis mætti nýta krafta fermingar- barnsins í þessu verkefni. 75 g ósaltað smjör 150 g suðusúkkulaði 6 msk. síróp ¼ tsk. gott sjávarsalt 5 bollar kornflex eða Rice Krispies Súkkulaði, smjör og síróp brætt saman í potti við vægan hita. Kornflexi eða Rice Krispies blandað saman við með sleif. Sett í form og látið kólna í ísskáp. Þessa uppskrift má líka nota til að gera til dæmis kökubotn. GÓÐIR OSTAR ERU ÓMISSANDI Ostar eru alltaf vinsælir. Ef boðið er upp á nokkra rétti í veislunni er frábært að hafa osta með, sér- staklega ef veislan er í hádeginu eða á kaffitíma. Raðið mis- munandi ostum á fallegan bakka og skreytið með jarðarberjum og vínberjum. Þetta gæti verið brie, camembert, gráðostur, til dæmis ítalskur gorgonzola, geitaostur og parmesan eða aðrir eftir smekk. Með ostunum er yfirleitt borið fram niðursneitt snittubrauð og sykurlaust kex og góð sulta eða hunang. Þar sem margir réttir eru í boði má reikna með um 80 g af osti á mann. Þá finnst mörgum ómissandi að hafa álegg með eins og salami eða parmaskinku. Öðrum finnst best að hafa hnetur með ostunum. Takið ostana úr kæliskáp minnst klukkutíma áður en veislan hefst. Hafið einn hníf fyrir hvern ost svo bragðmikill ostur smiti ekki þá sem eru mildari. KOMIST TIL MANNS Að fermast er stór atburður í lífi ungrar manneskju. Þar mætist margt í sama brennidepli: barnið er á tímamótum, að breytast úr barni í ungling og ferming er yfirlýsing um lífsstefnu og að fermingarbarnið vilji leitast við að fylgja í fótspor Jesú Krists. Ferming er líka hátíð ættarinnar. Unga manneskjan stígur fyrstu sporin í átt að því verða fullorðin og sjálfráða og fjölskyldan kemur saman í þeim tilgangi að styðja hana og styrkja í því verki að komast til manns. Af öllum þessum ástæðum er eðlilegt að koma saman, gera sér glaðan dag og nesta barnið á hófstilltan hátt til fararinnar út í lífið. Fyrir foreldra er ferming tækifæri til að eiga samræður við fermingar- barnið um það sem gerist í fermingarundirbúningnum, um kristinn arf og hvaða sess hann skipar í lífi okkar, og um stóru spurningar lífsins: hvernig manneskja vil ég vera og hvernig vil ég lifa lífinu. Heimild: Þjóðkirkjan (ferming.is) Gefðu sparnað í fermingargjöf Gjafakort Landsbankans er góður kostur fyrir þá sem vilja gefa sparnað í fermingargjöf. Landsbankinn greiðir 6.000 króna mótframlag þegar fermingarbörn leggja 30.000 krónur eða meira inn á Framtíðargrunn. Kortið er gjöf sem getur lagt grunn að traustum árhag í framtíðinni. Það er í fallegum gjafaumbúðum og fæst án endurgjalds í útibúum Landsbankans. landsbankinn.is 410 4000Landsbankinn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.