Fréttablaðið - 13.03.2014, Síða 80

Fréttablaðið - 13.03.2014, Síða 80
þarf frekari orða við? KOMIN Í KILJU Þjóðminjasafnið opnar í dag sýningu á einstökum kjólum sem Aðalbjörg Jónsdóttir prjónaði fyrir nokkrum áratugum. Þeir eru allir úr eingirni. Á sýn- ingunni eru líka kjólar sem Héléne Magnússon textíl- hönnuður hefur prjónað eftir kjólum Aðalbjargar úr annars konar efniviði, meðal annars silkiblandaðri japanskri ull og lambsull sem unnin er í Frakklandi. „Þó aðferð og mynstur sé það sama og í kjólum Aðal- bjargar þá er áferðin allt önnur,“ segir Héléne um sína kjóla og segir ekki lengur hægt að fá eingirni hér á landi, eða annað sambærilegt ullarband. Sýningin er við hlið kaffihússins á jarðhæð Þjóð- minjasafnsins. Þær Aðalbjörg sem nú er 97 ára og Héléne verða báðar viðstaddar þegar hún verður opnuð. - gun Einstakir kjólar Aðalbjargar Kjólar prjónaðir af Aðalbjörgu Jónsdóttur og eft ir fyrirmyndum hennar eru á sýningu sem opnuð verður í dag klukkan 15.30 í Þjóðminjasafninu. KJÓLASÝNINGIN Fínleg mynstrin njóta sín vel í fisléttri ullinni. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR EKKERT SLOR Hver kjóll er módel. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR „Markmiðið var að öðlast skilning á því hvað gerir börn að lestrar- hestum,“ segir Herdís Anna Frið- finnsdóttir leikskólakennari um rannsókn sem gerð var af Barna- bókasetri Íslands á Akureyri. Hún segir niðurstöðurnar gefa mikil- vægar vísbendingar um hvernig efla megi áhuga barna á lestri og mun gera grein fyrir þeim á ráð- stefnunni Kveikjum eld í Gerðu- bergi á laugardaginn. Sjálf starfar Herdís Anna í barnabókadeild Amtsbókasafns- ins á Akureyri sem hefur staðið fyrir sumarlestri barna. Rann- sóknin náði til barna úr slíku sumarlestrar námskeiði og við- miðunarhópurinn var í öðru tóm- stundastarfi. „Munurinn milli þessara hópa var einkum fólginn í fyrirmyndum á heimilunum,“ segir Herdís Anna. „Bókaormar- nir sjá foreldra og systkini lesa sér til ánægju og foreldrarnir lásu báðir fyrir börnin sem fóru síðan að lesa fyrir sjálfa sig og aðra.“ Anna Herdís telur unga bóka- orma lítið tjá sig um bækur og lestur við önnur börn. „Börn sem lesa mikið telja að það sé ekki töff að vera bókaormur.“ Herdís Anna segir börnin kvarta undan skorti á nýjum bókum á skólabókasöfnum. Þeim finnist líka vanta auglýsingar á barnabókum. „Sú hugmynd kom upp að börn kynntu bækur fyrir öðrum börnum í skólunum. Það hefur verið prófað hér á Akureyri og komið vel út.“ Bókaormar eru meðvitaðir um að lesturinn hjálpi þeim í námi, að sögn Herdísar Önnu. Hún segir þá oft velja bækur af kost- gæfni. „Þeir óvönu velja frekar bækur af handahófi og flokka þær eftir kynjum, yfirleitt er það kápan sem kemur inn hugmynd- um hjá þeim. Bleik kápa fælir til dæmis stráka frá. Öllum krökkum finnst nauðsynlegt að bækur séu skemmtilegar og helst vilja þeir framhald því þá er eitthvað sem bíður. Mörg börn segja mikil vægt að gefast ekki strax upp heldur lesa fleiri blaðsíður en allt gerist svo hratt í öðrum miðlum að sum mega ekki vera að því að bíða eftir að sagan grípi þau.“ Ráðstefnan í Gerðubergi stendur frá 10.30 til 13.30 á laugar daginn. Auk Herdísar Önnu halda rithöfundarnir Yrsa Sigurðar dóttir, Davíð Stefáns- son, Marta Hlín Magnadóttir og Birgitta Elín Hassell erindi. Aðgangur er ókeypis. gun@frettabladid.is Ungir bókaormar tala lítið um sinn lestur Herdís Anna Friðfi nnsdóttir leikskólakennari lýsir rannsókn á lestrarvenjum ungra bókaorma á barnabókaráðstefnunni Kveikjum eld í Gerðubergi á laugar- daginn. Niðurstöðurnar gefa vísbendingar um hvernig efl a megi áhuga á lestri. FYRIRLESARI „Mörg börn segja mikilvægt að gefast ekki strax upp heldur lesa fleiri blaðsíður en allt gerist svo hratt í öðrum miðlum að sum mega ekki vera að því að bíða eftir að sagan grípi þau,“ segir Anna Herdís. MYND/AUÐUNN NÍELSSON HÖNNUÐIR Hélén og Aðalbjörg ná vel saman. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI MENNING 13. mars 2014 FIMMTUDAGUR
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.