Fréttablaðið - 13.03.2014, Síða 84

Fréttablaðið - 13.03.2014, Síða 84
13. mars 2014 FIMMTUDAGUR| MENNING | 36 Þýsk kvikmyndaveisla hefst í dag í Bíói Paradís á Hverfisgötu en hátíðin er haldin í samstarfi við Goethe Institut og Þýska sendiráðið og stendur til 23. mars. Sex nýjar kvikmyndir verða kynntar til leiks að þessu sinni. Opnunarkvikmynd hátíðarinnar er engin önnur en hin marglofaða Zwei Leben en hún hefur hlotið gífurlegt lof gagnrýnenda og farið sannkallaða sigurför um heiminn og var meðal annars tilnefnd til Óskarsverðlauna á dögunum. Af öðrum eftirtektarverðum myndum að má nefna kvikmyndina Finsterworld eftir leikstjórann Frauke Finsterwalder, en í myndinni tekst hún á við þá til- vistarkreppu sem þýskt þjóðarstolt stóð frammi fyrir í kjölfarið á seinni heimsstyrjöldinni. Kvikmyndin varpar bæði súrrealísku og kankvíslegu ljósi á þung- bært ástand. Einnig verður í sýningu heimildarmynd eftir leik- stjórann David Sieveking en í myndinni sem ber nafnið Vergiss mein nicht (Forget me not) fylgist hann með alzheimersjúkri móður sinni og veitir inn- sýn í heim alzheimersjúkdómsins og hvernig hann birtist aðstandendum sjúklinga. Kvikmyndaveislan er frábært tækifæri til að kynnast þýskri menningu og rjómanum af þýskri kvikmyndagerð. Hægt verður að kaupa tíu klippa klippikort sem gildir á kvikmynda- hátíðina. - jm Fór sigurför um heiminn allan Þýsk kvikmyndaveisla hefst í dag en kvikmyndin Zwei Leben opnar hátíðina. ➜ Í kvikmyndinni Vergiss mich nicht veitir kvikmyndagerða- maðurinn David Seiveking innsýn í heim alzheimersjúkra með því að fylgjast með móður sinni sem glímir við þann hvimleiða sjúkdóm. FIMMTU HVAÐ? HVENÆR? HVAR? Sýningar 14.00 Í dag klukkan 14.00 býðst foreldrum í fæðingarorlofi leiðsögn um grunnsýningu Þjóðminjasafns- ins, Þjóð verður til - Menning og samfélag í 1200 ár. Víða eru starf- ræktir svokallaðir foreldramorgnar en með leiðsögn fyrir foreldra í fæðingarorlofi vill Þjóðminjasafnið taka þátt í þjónustu fyrir þennan hóp fólks. Leiðsögnin er ókeypis og allir foreldrar í fæðingarorlofi boðnir velkomnir. 15.30 Í dag klukkan 15.30 opnar sýning á kjólum eftir Aðalbjörgu Jónsdóttur sem hefur í áratugi prjónað kjóla úr íslenskri ull. Kjólarnir eru hannaðir af miklu listfengi og telja yfir eitt hundrað. Hélène Magnússon textílhönnuður vinnur nú að útgáfu bókar um verk Aðalbjargar. 17.00 Velkomin á opnun á sýningu til minningar um Óla G. Jóhanns- son, í dag, á milli klukkan 17 og 19. Íþróttir 11.15 Ókeypis tímI í heilsu qi-gong í boði Konfúsíusar- stofnunarinnar og Heilsudrek- ans. Staður og tími: Íþrótta- hús HÍ alla þriðjudaga og fimmtudaga kl. 11.15- 12.00. Kynningar 14.00 Á Íslandi eru töluð yfir hundrað tungumál af fólki sem hefur annað mál en íslensku að móðurmáli. Í dag klukkan 14.00, gefst tækifæri til að kynnast hluta af þessum heimsmálum í Café Lingua á Háskólatorgi Háskóla Íslands, þar sem nemendur, sem eru að læra íslensku sem annað mál, og aðrir áhugasamir, munu kynna tungumál sín á lifandi hátt. Kynn- ingin fer fram á íslensku og gefst gestum svo kostur á að spreyta sig á tungumálum eins og rússnesku, kínversku, frönsku, ítölsku, norsku, sænsku, dönsku, úkraínsku, þýsku og georgísku og kynnast um leið fjölbreyttri menningu. Tónlist 17.00 Sígildar, íslenskar dægur- flugur munu hljóma á Bókasafni Seltjarnarness þegar Gamlir Fóst- bræður ásamt tenórnum Þorgeiri Andréssyni halda þar tónleika, en tónleikarnir eru liður í Tónstöfum, samstarfi Bókasafnsins og Tónlistar- skóla Seltjarnarness. 20.00 Í kvöld leiða saman hesta sína böndin Slowsteps og Blær. Þó ólík séu í eðli sínu þá spila þau hlustendavæna tónlist sem allir ættu að geta haft gaman af. Tón- leikarnir byrja klukkan 20.00 og það er ókeypis inn. 20.00 Í kvöld heldur kvennakórinn Kyrjurnar tónleika í Seltjarnarnes- kirkju klukkan 20.00. Gestur kórsins Í GRAFARVOGI J A N Ú A R
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.