Fréttablaðið - 13.03.2014, Side 94
13. mars 2014 FIMMTUDAGUR| LÍFIÐ | 46
BAKÞANKAR
Bergs Ebba
Benediktssonar
EITT hef ég lært. Mannskepnan býr yfir
mikilli þrá eftir vitneskju. Það er óumdeild
staðreynd hvar sem maður kemur niður.
Það nægir að skoða könnunarsögu veraldar-
innar. Allir heimsins krókar og kimar hafa
verið kortlagðir og menn voru búnir að því
löngu áður en hægt var að taka myndir úr
flugvélum eða gervihnöttum. Menn hrein-
lega börðu sér leið gegnum frumskóga,
yfir eyðimerkur og upp á fjallstinda til að
eyða óvissunni. Á kortinu mátti ekki vera
nein gloppa.
HEIMURINN er þó enn fullur af
leyndar dómum. Við vitum ekki einu sinni
fyrir víst af hverju kettir mala. En það er
önnur saga.
EN ÞÓ þrá mannsins eftir vitneskju
sé óumdeild þá er þráin eftir leyndar-
dómum jafnvel enn sterkari. Þetta
virkar þversagnarkennt, en
gefum þessu séns.
ÞRÁTT fyrir að vera alinn upp
af vísindalega þenkjandi fólki þá
hverfðust allar sögurnar sem ég
heyrði í barnæsku um leyndar-
dóma. Allt var gert að leyndardómi: týndir
lyklar, opnunartími banka, heimsókn frá
ættingjum. Þegar hverfisbúðin fór á hausinn
(líklega vegna þess að keðjur eins og Bónus
voru að ryðja sér til rúms) var það presen-
terað eins og ráðgáta. Eins og líklegri skýr-
ing væri að eigandi búðarinnar væri haldinn
illum anda eða að einhver úr hverfinu hefði
móðgað hann. Engum datt í hug að spyrja
eigandann. Það hefði skemmt leyndar-
dóminn.
VIÐ þráum leyndardóma. Stundum hjálpa
þeir okkur að sættast við erfið skilyrði. Í
fleiri áratugi var verðbólga, hátt vöruverð
og háir vextir leyndardómur íslensks sam-
félags. Eitthvað sem ekki var hægt að gera
neitt í. Nú vitum við flest að okkar litla efna-
hagskerfi með sína handstýrðu örmynt, sem
verndar fyrst og fremst sérhagsmunahópa
og braskara, er um að kenna. Verðbólgan er
ekki meiri leyndardómur en það.
ÉG er undir sömu sök seldur. Stundum
finnst mér heimurinn of upplýstur. Ég þrái
leyndardóma, leyndardóma sem vekja upp
ímyndunaraflið, sefa hugann og syngja mig í
svefn. Ég þrái þá jafn mikið og hver annar.
Þráin eft ir leyndardómum
300: RISE OF AN EMPIRE 3D
300: RISE OF AN EMPIRE 3DLÚXUS
Ý Í ÍÆVINT RI HR. PBODYS SL. TAL 2D
ÆVINTÝRI HR. PÍBODYS ÍSL. TAL 3D
THE MONUMENTS MEN
RIDE ALONG
ROBOCOP
SKÝJAÐ MEÐ KJÖTBOLLUM 2 2D
SAVING MR. BANKS
ÆVINTÝRI HR. PÍBODYS 2D
Ý ÍÆVINT RI HR. PBODYS 3D
3 DAYS TO KILL
THE MONUMENTS MEN
NYMPHOMANIAC PART 1
AUGUST OSAGE COUNTY
KL. 5.40 - 8 - 10.20
KL. 5.40 - 8 - 10.20
KL. 3.30 - 5.45
KL. 3.30 - 5.45
KL. 8 - 10.35
KL. 5.45 - 8 - 10.15
KL. 8 - 10.35
KL. 3.30
Miðasala á: og
KL. 6 - 9
KL. 5.50
KL.5.50
KL. 8 - 10.30
KL. 8 - 10.30
KL. 8 - 10.30
KL. 5.30
NÁNAR Á MIÐI.IS
3 DAYS TO KILL
ÆVINTÝRI HR. PÍBODYS 3D
THE MONUMENTS MEN
RIDE ALONG
KL. 8 - 10.10
KL. 6
KL. 10.10
KL. 6 - 8
ENTERTAINMENT WEEKLY
EMPIRE
THE CONGRESS DARK TOUCH
SJÁ FLEIRI SÝNINGAR Á WWW.BIOPARADÍS.IS - Miðasala: 412 7711 - Hverfisgata 54 - bioparadis.is - Hluti af Europa Cinemas
3 DAYS TO KILL 8, 10:20
THE MONUMENTS MEN 8, 10:25
RIDE ALONG 6, 10:25
ÆVINTÝRI HR. PÍBODYS 3D 6
DALLAS BUYERS CLUB 5:45, 8
ÁLFABAKKA
AKUREYRI
EGILSHÖLL
KRINGLUNNI
KEFLAVÍK
AFTENBLADET EXPRESSEN
VARIETY ENTERTAINMENT WEEKLY
Ábendingahnappinn má
finna á www.barnaheill.is
Óskarsverðlaunahafinn Lupita
Nyong‘o hefur verið að deita sóm-
alska rapparann K‘Naan síðan í
september samkvæmt heimildum
tímaritsins Us Weekly.
K‘Naan á tvo syni með fyrr-
verandi konu sinni, Deqa
Warsame, en að sögn vina Lupitu
fara þau K‘Naan hægt í sakirnar.
„Hún hefur ekki hitt börnin
hans,“ segir vinur Lupitu sem
hlaut Óskarinn fyrir stuttu fyrir
leik sinn í kvikmyndinni 12 Years
a Slave. - lkg
Deitar rappara
Á UPPLEIÐ Lupita er ein skærasta
stjarna heims um þessar mundir.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
„Við viljum koma því til skila
að okkar skipulag hefur komið
mjög vel út og viljum að svipuðu
skipulagi verði komið á í fleiri
skólum,“ segir Ásta Laufey Aðal-
steinsdóttir, framhaldsskóla-
kennari og forvarna- og félags-
málafulltrúi Borgarholtsskóla.
Borgarholtsskóli hefur endur-
skipulagt dansleikjamál skólans
og hefur nýja skipulagið komið
ákaflega vel út á þessu skólaári.
„Á árshátíðinni hjá okkur var
húsið opnað klukkan 19.00 og
húsinu var lokað klukkan 20.30.
Nemendur fengu ekki að fara út
og koma aftur inn eftir klukkan
20.30. Þetta gerir það að verkum
að nemendur eru ekki að fara í
partí á milli matar og balls til
þess að drekka áfengi,“ útskýrir
Ásta Laufey.
Það hefur tíðkast í sumum
skólum, og þá helst á árshátíð-
um skólanna, að nemendur mæta
í matinn og fara svo í partí þar
sem gjarnan er drukkið eins
mikið magn áfengis og hægt
er fyrir ballið, sem hefst síðar
sama kvöld. Það verður til þess
að nemendur mæta gjarnan mjög
drukknir og við vitum öll hverjir
fylgifiskar ofneyslu áfengis geta
verið, líkt og ofbeldi og önnur
brot.
Aðstandendur dansleikja í
Borgarholtsskóla nota áfengis-
mæla til þess að láta þá blása
sem grunaðir eru um ölvun.
„Við byrjuðum að nota áfengis-
mæla árið 2009 og notuðum þá
mjög mikið. Þá var fólk látið
blása þegar það mætti á ballið.
Við lentum í þeim vandræðum
að sjúkraherbergið varð fullt af
fólki,“ segir Ásta Laufey. Í dag
eru þeir sem grunaðir eru um
ölvun látnir blása. „Það voru
fimm nemendur á árshátíðinni
sem voru látnir blása og þá var
hringt í foreldra þeirra og nem-
endurnir sóttir. Ef upp kemst um
ölvun nemenda á balli hjá okkur
fær sá aðili ekki aðgang að næsta
balli,“ útskýrir Ásta Laufey.
Hún segir ástandið aldrei
hafa verið eins gott og í vetur í
Borgar holtsskóla. „Á busaballinu
í haust komu upp tíu tilvik á 700
manna balli. Það voru svo bara
fjórir einstaklingar með vesen og
voru þeir aðilar ekki einu sinni í
skólanum.“
Borgarholtsskól i kaupir
öryggisgæslu hjá fyrirtækinu
Go Security og ber því vel sög-
una. „Starfsmenn fyrirtækis-
ins hafa flestir reynslu og hafa
margir hverjir unnið í tengslum
við áfengisráðgjöf. Þeir fylla út
skýrslu með upplýsingum um
ölvaða einstaklinginn. Foreldrar
barnanna kvitta svo undir þegar
þeir sækja ölvaða einstaklinginn.
Eins og fyrr segir fær sá aðili
ekki aðgang að næsta balli.“
Ásta Laufey vill gjarnan að
fleiri skólar taki upp skipu-
lag Borgarholtsskóla og banni
partíin sem eru á milli matar og
balls á árshátíðum og biðji for-
eldra vinsamlega um að leyfa
ekki eftirlitslaus partí í kringum
skólaböllin. „Margir foreldrar
unglinga hafa áhyggjur af því
að börnin þeirra hefji áfengis-
drykkju í framhaldsskóla. Við
viljum minnka líkurnar á því að
það gerist og halda þeim góða
árangri sem náðst hefur í grunn-
skólum og samræma reglur í
framhaldsskólum í tengslum við
áfengisneyslu,“ segir Ásta Laufey
og bætir við að ástandið hafi ekki
alltaf verið svona gott í Borgar-
holtsskóla.
gunnarleo@frettabladid.is
Ekkert ballbann í Borgó
Borgarholtsskóli hefur á undanförnu ári endurskipulagt dansleikjamál skólans. Einungis tíu tilvik um ölvun
komu upp á 700 manna dansleik fyrir skömmu. Ásta vill samræma reglur í tengslum við áfengisneyslu.
GAMAN SAMAN Hér er Ásta Laufey Aðalsteinsdóttir önnur frá hægri, og Guðný María
Jónsdóttir önnur frá vinstri, með hressa nemendur með sér. Þær eru félagsmálafull-
trúar Borgarholtsskóla ásamt Sigurði Þóri Þorsteinssyni. MYND/EINKASAFN
BORGARHOLTSSKÓLI
Eins og Fréttablaðið greindi frá
í gær hafa stjórnendur Mennta-
skólans við Sund sett á dans-
leikjabann. „Ástæðan fyrir þessu
dansleikjabanni er að okkur
hefur fundist hlutirnir ekki hafa
gengið nógu vel og það hefur
verið allt of mikið um ölvun,“
sagði Már Vilhjálmsson, rektor
Menntaskólans við Sund, í viðtali
við Fréttablaðið. Mikil drykkja
og önnur brot á árshátíð MS
sem fram fór í Gullhömrum fyrir
skömmu fylltu mælinn og hefur
því verið sett á svokallað dans-
leikjabann.
➜ Ölvun nemenda
á skólaböllum er
mikið vandamál