Fréttablaðið - 13.03.2014, Qupperneq 98
13. mars 2014 FIMMTUDAGUR| SPORT | 50
FÓTBOLTI „Við getum ekki verið
mikið léttari á því en eftir svona
sigur,“ sagði Dóra María Lárus-
dóttir, landsliðskona í knattspyrnu,
kampakát við Fréttablaðið í gær
eftir að stelpurnar okkar lögðu
Svíþjóð, 2-1, í leiknum um brons-
verðlaunin á Algarve-mótinu. Sara
Björk Gunnarsdóttir og Harpa
Þorsteinsdóttir skoruðu mörk
Íslands á þriggja mínútna kafla í
fyrri hálfleik en þetta er í annað
skiptið sem Ísland vinnur til verð-
launa á mótinu (silfur 2011).
„Við settum á þær grimma
hápressu sem kom þeim á óvart.
Þér héngu meira á boltanum en
við en við náðum að skora eftir
góða pressu og annað mark fylgdi
svo í kjölfarið. Þær sköpuðu sér
eiginlega ekkert fyrir utan þetta
mark. Mér fannst sigurinn aldrei í
hættu,“ sagði Dóra María sem bar
fyrirliðabandið í leiknum í sínum
100. A-landsleik.
Dóra María viðurkennir fúslega
að stelpunum leiddist nákvæmlega
ekki neitt að leggja Svíþjóð að velli
eftir flenginguna sem þær fengu í
8 liða úrslitum EM í fyrra þar sem
Svíarnir völtuðu yfir okkar stelpur,
4-0. Í heildina vann Svíþjóð lið
Íslands þrisvar sinnum á síðasta ári.
„Það var yndislegt að þagga
aðeins niður í þeim. Nógu kok-
hraustar eru þær sænsku eftir að
hafa flengt okkur þrisvar á síðasta
ári. Þær urðu svo pirraðar þegar
við skoruðum fyrsta markið að
þær komust aldrei yfir það. Þetta
var afskaplega ljúfur sigur,“ sagði
Dóra María alsæl.
Leikmenn nýtt tækifærin
Ísland byrjaði Algarve-mótið ekki
vel og tapaði fyrir Evrópumeist-
urum Þýskalands, 5-0. Stelpurnar
voru fljótar að hrista það af sér
og unnu þrjá leiki í röð og hirtu
bronsið. „Eins furðulegt og er að
segja frá því gekk margt upp sem
við lögðum upp með taktískt gegn
Þýskalandi. Það er náttúrlega fullt
af nýjungum sem við erum að læra
inn á með fleiri leikjum og meiri
tíma sem við eyðum saman,“ sagði
Dóra María.
Hún er ánægð með dvölina á
Algarve og hvernig nýir og yngri
leikmenn liðsins hafa komið sterkir
inn. Þjálfarinn lofaði þeim spiltíma
og ábyrgðinni fögnuðu þeir.
„Það er mjög mikilvægt að
stækka hópinn og gefa fleirum
tækifæri. Leikmenn hafa líka nýtt
þetta tækifæri mjög vel. Við höfum
æft tvisvar á dag fyrir utan að spila
leikina og farið mikið í taktík. Svo
er þessi íslenska geðveiki og liðs-
heildin alltaf til staðar,“ sagði hún.
Aðspurð hvort þessar ungu
stelpur í dag séu betri eða öðru-
vísi leikmenn en Dóra og fleiri á
hennar aldri þegar þær komu inn í
liðið sagði hún:
„Það er erfitt að leggja mat á
það hvort þær séu betri en margar
þarna eru rosalega öflugar. Þær
koma sterkar inn og eru alveg
ófeimnar. Þessar stelpur í dag
hafa að meiru að stefna. Landsliðið
er núna búið að fara tvisvar á stór-
mót og fleiri stelpur fara í atvinnu-
mennsku núna og góða háskóla.
Þetta var ekki alveg svona þegar
ég var að byrja.“
Stolt af metinu
Dóra María er sú yngsta í sögunni
sem nær að spila 100 A-landsleiki.
„Ég hef ekkert verið að spá í þessu
en svo þegar maður er búinn að ná
þessu er maður stoltur og þakk-
látur. Það hefur hvarflað að mér
stundum hvort það sé ekki tími
til að leggja knattspyrnuferilinn
til hliðar en guð minn almáttugur
hvað ég er fegin núna að hafa ekki
gert það. Nú vil ég halda áfram
endalaust á meðan líkaminn
leyfir,“ sagði hún en Dóra er þó
meðvituð um að metið gæti fallið
á næstu árum. Sara Björk Gunn-
arsdóttir spilaði t.a.m. sinn 69.
landsleik í gær, 24 ára gömul. „Ég
nýt þessa Íslandsmets á meðan ég
á það.“
Íslenska liðið fór ekki vel af
stað í haust í undankeppni HM
og tapaði illa fyrir Sviss á heima-
velli. Smá bölsýni var komin í liðið,
viður kennir Dóra, en hún er á bak
og burt.
„Ég viðurkenni það alveg að við
vorum örlítið svartsýnar. Það voru
breytingar á hópnum og þjálfar-
inn fékk auðvitað skamman tíma.
Okkur vantar marga sterka leik-
menn líka og svona. En þessir leik-
ir á Algarve hafa kennt okkur það
að við getum alveg staðið okkur
gegn þeim bestu sem er mikilvægt
upp á sjálfstraustið,“ sagði Dóra
María Lárusdóttir, 100 leikja kona.
tom@frettabladid.is
Nýt metsins á meðan ég á það
Dóra María Lárusdóttir spilaði sinn 100. landsleik fyrir Ísland er liðið lagði Svíþjóð, 2-1, í leiknum um bronsið á Algarve-mótinu í gær. Dóra
viðurkennir að smá svartsýni hafi verið í stelpunum eft ir fyrstu leikina í undankeppni HM í haust en nú er allt annað upp á teningnum.
FÓTBOLTI „Ég er mjög sáttur.
Þetta er frábær árangur og
svo erum við búin að vinna svo
marga litla sigra á leiðinni sem
eru ekki síður mikilvægir,“ segir
Freyr Alexandersson, landsliðs-
þjálfari kvenna í knattspyrnu, í
samtali við Fréttablaðið.
Hann stýrði stelpunum okkar
til sigurs gegn Svíþjóð í leiknum
um þriðja sæti á Algarve-mótinu
í gær og vann því til bronsverð-
launa í sinni fyrstu ferð á þetta
sterka mót sem þjálfari.
„Það sem ég tek fyrst og
fremst með okkur út úr þessu
móti er að við náðum tökum á
leikfræðilegum atriðum eins og
hápressunni sem er búin að skila
okkur gríðarlega miklu. Við
náðum einnig tökum á sóknar-
leiknum og héldum boltanum
betur. Þá lesum við veikleika
andstæðinga okkar betur og
nýtum okkur þá, sem ég er mjög
ánægður með. Svo er alltaf í
þessu liði þessi íslenska geðveiki
og samkennd sem er svo gaman
að vera hluti af,“ segir Freyr.
Hann fór inn í mótið með mjög
markvissar hugmynd um hvað
hann vildi gera. Í viðtali við
Fréttablaðið fyrir fyrsta leik
sagðist hann líta á riðlakeppnina
sem þrjú verkefni. Eins ætlaði
hann að gefa fleiri leikmönnum
tækifæri sem hann og gerði.
„Í fljótu bragði held ég að allt
sem við lögðum upp með hafi
heppnast. Öll þau markmið sem
við settum okkur gengu eftir og
svo bættum við ofan á það. Þessi
árangur sem við náum er ekki
það sem við einbeittum okkur
að. Hann er bara risabónus,“
segir Freyr sem hóf ferilinn
sem landsliðsþjálfari með vondu
tapi gegn Sviss eftir að vera með
liðið í stuttan tíma.
„Sviss-leikinn upplifði ég sem
erfitt verkefni, ég get alveg við-
urkennt það. Það var búið að
vera langt ár hjá stelpunum og
í raun alveg ómarktækt enda
mikið gengið á. Við þjálfara-
teymið vitum alveg hvert við
ætlum með hópinn og trúum
að það sem við erum að gera sé
rétt.“
- tom
Þessi góði árangur okkar er bara risabónus
Freyr Alexandersson náði í bronsverðlaun í sinni fyrstu ferð sem landsliðsþjálfari á Algarve-mótinu.
BRONS Í FYRSTU TILRAUN Freyr
Alexandersson fagnar góðum úrslitum
ásamt Hallberu Gíslasdóttur. MYND/KSÍ
ÍSLENSKI 100 LANDSLEIKJA KLÚBBURINN
FÓTBOLTI Það eru enn 477 dagar þangað til Dóra María Lárus-
dóttir heldur upp á þrítugsafmælið sitt og ætti því að eiga
mörg ár eftir í viðbót til að bæta við landsleikina hundrað sem
hún hefur spilað með kvennalandsliði Íslands.
Dóra María lék sinn fyrsta landsleik í 10-0 sigri á Póllandi
13. september 2003 og var búin að skora sitt fyrsta mark
fimm mínútum eftir að flautað var til leiks. Síðan hefur
íslenska kvennalandsliðið spilað 107 landsleiki og Dóra María
hefur komið við sögu í 100 þeirra auk þess að sitja á vara-
mannabekknum í þremur til viðbótar. Í raun hefur ekki verið
valinn íslenskur landsliðshópur án Dóru Maríu Lárusdóttur
síðan fyrir vináttulandsleik við Bandaríkin 24. júlí 2005 en
hún var þá ásamt fleiri A-landsliðskonum upptekin á Norður-
landamóti með 21 árs landsliðinu.
Síðasti landsliðsþjálfarinn sem leit fram hjá Dóru Maríu í
vali á A-landsliðshópi kvenna var Helena Ólafsdóttir, núverandi
þjálfari hennar hjá Val, sem valdi hana ekki í hópinn fyrir
leik í Póllandi 27. september. Dóra María missti þá sætið sitt
til Eddu Garðarsdóttur sem lék ekki leikinn á undan, fyrsta
A-landsleik Dóru Maríu, þar sem hún var upptekin í námi í
Bandaríkjunum.
Dóra María lék í gær sinn 36. landsleik í röð og einu tveir
leikirnir sem hún hefur misst af frá og með árinu 2007 (af
83) voru tveir fyrstu leikirnir á Algarve-mótinu en hún glímdi
þá við meiðsli. Dóra María spilaði þriðja leikinn og skoraði þá
sigurmarkið sem tryggði íslenska liðinu sæti í úrslitaleiknum.
- óój
DÓRA MARÍA FYRST ÍSLENSKRA KNATTSPYRNUMANNA TIL AÐ SPILA HUNDRAÐ A-LANDSLEIKI FYRIR ÞRÍTUGT
DÓRA MARÍA
LÁRUSDÓTTIR
28 ÁRA - 8 MÁNAÐA - 10 DAGA
Fædd: 2. júlí 1985
Hundraðasti leikurinn 12. mars 2014
2-1 sigur á Svíþjóð í Portúgal
RÚNAR KRISTINSSON
33 ÁRA - 9 MÁNAÐA - 6 DAGA
Fæddur 5. september 1969
Hundraðasti leikurinn 11. júní 2003
3-0 sigur á Litháen í Vilnius
EDDA GARÐARSDÓTTIR
33 ÁRA - 7 MÁNAÐA - 24 DAGA
Fædd 15. júlí 1979
Hundraðasti leikurinn 11. mars 2013
0-1 tap fyrir Kína í Portúgal
KATRÍN
JÓNSDÓTTIR
35 ÁRA - 22 DAGA
Fædd 31. maí 1977
Hundraðasti leikurinn 22. júní 2010
3-0 sigur á Króatíu á Laugardals-
vellinum. Sú eina sem hefur skorað
mark í hundraðasta leiknum.
ÞÓRA BJÖRG
HELGADÓTTIR
32 ÁRA - 10 MÁNAÐA - 2 DAGA
Fædd: 5. maí 1981
Hundraðasti leikurinn 7. mars 2014
2-1 sigur á Noregi í Portúgal