Fréttablaðið - 13.03.2014, Síða 102
13. mars 2014 FIMMTUDAGUR| LÍFIÐ | 54
„Á veturna er það heitt kakó, ég
drekk ekki kaffi en finnst mjög kósý
á kvöldin að setjast niður við arin-
inn með heitt kakó sem er útbúið
úr flóaðri mjólk. Á sumrin eru svo
léttir ávaxtadrykkir í uppáhaldi og
þá fá arininn og kakóið hvíld.“
Ásdís Rósa Ásgeirsdóttir lögfræðingur
DRYKKURINN
„Ég kannast við fólk í Skáksam-
bandi Íslands og fékk að hitta
á kallinn. Hann valdi sér hring
sem ég gaf honum ásamt lykla-
kippu úr silfri með mynd af gömlu
Íslandskorti,“ segir gullsmiðurinn
Jóhannes Ottósson, maðurinn á bak
við skartgripamerkið NOX. Hann
gaf skákmeistaranum Garry Kaspa-
rov hönnun sína enda hefur hann
ávallt borið virðingu fyrir honum.
„Ég átti ekki margar hetjur þegar
ég var yngri en þetta er eitt af nöfn-
unum sem ég þekkti. Ég er ekkert
á kafi í skák en ég hef fylgst með
honum reglulega í gegnum tíðina.
Hann flutti til Bandaríkjunum fyrir
tveimur árum og getur aldrei snúið
aftur heim til Rússlands þannig að
hann er pólitískur flóttamaður. Það
kemur fyrir marga snillinga þegar
þeir opna á sér munninn og grýta
sér í kerfið. Ég ber mikla virðingu
fyrir honum, bæði fyrir það sem
hann er sem skákmeistari og líka
vegna þess sem hann stendur fyrir
sem aðgerðasinni,“ segir Jóhannes.
Hann segir Kasparov hafa viljað
fræðast mikið um land og þjóð sem
og hringinn sem hann valdi sér
sem er innblásinn af íslensku land-
vættunum.
„Hann var mjög hrifinn af sög-
unni um íslensku landvættirnar
og vildi fá útskýringar á hverjum
hring. Hann vildi ekki drekann því
hann stendur fyrir austur – hann
vildi ekkert úr austri. Það endaði á
því að hann valdi örninn sem stend-
ur fyrir vestur. Hann var mjög hrif-
inn af sögu Íslendinga og spurði
mikið. Það var skemmtilegt að ræða
við hann. Hann var ekki með neina
stjörnustæla og gaf sér tíma til að
spyrja út í hlutina þótt hann hefði í
nægu að snúast.“ Aðspurður hvort
þeir félagar hafi tekið skák segir
Jóhannes það ekki vera.
„Ég held að við hefðum ekki þurft
að spyrja að leikslokum í þeirri
skák,“ segir hann glaður í bragði.
Jóhannes hefur líka komist í
kynni við tónlistarmanninn og
Íslandsvininn John Grant, sem
einnig á hring eftir hann.
„Ég var rosalega ánægður þegar
ég heyrði að hann væri að þvæl-
ast á Íslandi. Ég fór út að borða
með honum, hann valdi sér hring
og síðan hittumst við síðar á tón-
leikum í Hörpu. Hann er mjög kúl
persóna og bað meira að segja um
að fá að koma heim á verkstæðið
mitt og smíða eitthvað sjálfur,“
segir Jóhannes sem stefnir á að taka
hann á orðinu í nánustu framtíð.
„Akkúrat í augnablikinu hef ég
ekki mikinn tíma til að leika mér
á verkstæðinu,“ bætir Jóhannes
við, enda nóg að gera hjá honum
að undir búa sýningu á Hönnunar-
mars sem fer fram í Hörpu síðustu
helgina í mars.
„Það verður skemmtilegt sam-
spil þar sem 23 til 25 gullsmiðir
taka þátt en þeir eru allir í Félagi
íslenskra gullsmíða sem er fagfélag.
Þar mun ég sýna risastóran módel-
hlut úr nýju kvenmannslínunni
minni Berg. Ég er að klára línuna
núna og óvíst hvenær hún fer í sölu
en það verður innan skamms. Ég
vil að allt sem kemur frá mér sé 110
prósent. Ef ég er ekki ánægður þá
verða viðskiptavinir mínir það ekki
heldur.“ liljakatrin@frettabladid.is
Heillaðist af íslensku
landvættunum
Gullsmiðurinn Jóhannes Ottósson gaf skákmeistaranum Garry Kasparov hring
og lyklakippu úr skartgripalínu sinni þegar hann heimsótti landið í vikunni.
SKÁKMAÐUR FÆR SÉR SKART Vel fór á með Garry Kasparov
og Jóhannesi. MYND/EINKASAFN
KÚL PERSÓNA John Grant vill ólmur fá að smíða sína eigin
skartgripi hjá Jóhannesi einhvern tímann.
Ég ber mikla virðingu
fyrir honum, bæði fyrir
það sem hann er sem
skákmeistari og líka vegna
þess sem hann stendur
fyrir sem aðgerðasinni.
Jóhannes Ottósson
„Maður á að hugsa meira um mat sem
áhrifavald á líkamann,“ segir hönnuðurinn
Embla Vigfúsdóttir, sem ásamt kollega
sínum, Auði Ösp Guðmundsdóttur, býður
upp á nýstárlega upplifun á veitingastaðnum
Satt í tengslum við Hönnunarmars dagana
25.-30. mars.
Um er að ræða verkefni sem stöllurnar
byrjuðu að þróa er þær stunduðu nám við
Listaháskóla Íslands og hlutu Nýsköpunar-
verðlaun forseta Íslands fyrir árið 2011.
Verkefnið nefnist Pantið áhrifin og er svo-
kallaður upplifunarmatseðill en í stað þess
að panta mat út frá innihaldi eða bragði
er valið út frá því hvernig áhrif maturinn
hefur á líkamann. Til dæmis aðalrétt fyrir
heilann og eftirrétt fyrir augun. Matseðill-
inn er unninn í samvinnu við matreiðslu-
menn og næringarfræðing.
„Þetta er þriggja rétta matseðill plús lyst-
auki. Við erum mjög ánægðar með að verk-
efnið sé loksins að verða að veruleika,“ segir
Auður Ösp, sem hlakkar til að sjá viðbrögð
fólks við þessu. „Líkaminn er vél sem þarf
að hugsa vel um og það er mikilvægt að vera
meðvitaður um hvaða áhrif matur hefur því
hann hefur mikið að segja fyrir okkur.“
Hægt er að finna upplýsingar um mat-
seðilinn og verkefnið á heimasíðunni Satt-
restaurant.is - áp
Matseðill hannaður fyrir húð, hjarta og heila
Embla Vigfúsdóttir og Auður Ösp Guðmundsdóttir hanna matseðil fyrir sérstaka líkamsparta.
ÁHRIF MATAR Embla og Auður Ösp gefa
gestum veitinga staðarins SATT tækifæri
til að panta mat fyrir sérstaka líkamsparta.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Matseðill:
FORRÉTTIR:
Ónæmiskerfið
Húð
Hjarta
AÐALRÉTTIR:
Heili
Vöðvar
Blóðstyrkjandi
DESERT:
Sjón og augu
Bein
Fjölmargir erlendir blaðamenn hafa staðfest komu sín
á tískuhátíðina Reykjavík Fashion Festival í ár. Meðal
þeirra miðla sem senda blaðamenn hingað til lands í ár
til að skoða strauma og stefnur íslenskrar fatahönnunar
er þýska Vogue, Nowfashion.com, Grey Magazine og
Interview Magazine. Hátíðin fer fram með pomp og pragt
í fimmta sinn laugardaginn 29. mars næstkomandi.
Skandinavía sendir einnig sína fulltrúa á hátíðina.
Signy Fardal, ritstýra norska Elle, mætir ásamt kollega
sínum fyrir sænska Elle, Hermine Coyet-Ohlen. Báðar
voru þær á RFF í fyrra og hefur greinilega líkað vel.
Einnig kemur tískuritstjóri danska blaðsins Euroman,
Frederik Lentz Andersen.
Átta fatahönnuðir sýna fatalínur sínar á hátíðinni
en það eru Farmers Market, Sigga Maija, Rey, Ella,
Magnea, Zizka, Jör by Guðmundur Jörundsson og
Cintamani. - áp
Vogue, Euroman og Elle á RFF
Erlenda tískupressan fj ölmennir á Reykjavik Fashion Festival í lok mars.
GÓÐIR GESTIR Erlendir blaðamenn ætla að fylgjast með
nýjustu straumum og stefnum hjá þeim hönnuðum sem taka
þátt í Reykjavík Fashion Festival.
LEIKTÆKNISKÓLI
Magnúsar Jónssonar & Þorsteins Bachmann
Leiktækniskólinn er á Facebook, þar má nálgast frekari upplýsingar.
Skráning og fyrirspurnir á leiktaekniskolinn@gmail.com.
Námskeið í hagnýtri og skapandi leiklist
Grunnnámskeið fyrir 16 til 18 ára
7. apríl til 12. maí frá kl. 17.00 til 20.00
Grunnnámskeið fyrir 18 ára og eldri
8. apríl til 13. maí frá kl. 19.30 til 23.00
Ert þú að glíma við einkenni
streitu, depurðar
eða kvíða?
Hugarlausnir
er námskeið sem byggir á hreyfingu,
fræðslu og núvitund
Hefst 17. mars
Þjálfun 3x í viku kl. 13:00
Að námskeiðinu standa sálfræðingar,
sjúkraþjálfari og heilsufræðingur
www.heilsuborg.is
Innskot í Fréttablaðið skilar árangri!
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
Fréttablaðið er mest lesna dagblaðið landsins
með glæsilegt forskot á keppinautana.
Meðallestur Fréttablaðsins í
aldurshópnum 25-54 ára er 73%
á höfuðborgarsvæðinu.*
Við bendum auglýsendum á að notfæra
sér forskotið þegar þeir velja dreifingarleið
fyrir fjölpóst sinn. Við dreifum sex daga
vikunnar til heimila á stærsta markaðssvæði landsins.
Kannaðu dreifileiðir og verð í síma 512 5448
eða í tölvupóstfangi fjolpostur@frettabladid.is
*P
re
nt
m
ið
la
kö
nn
un
C
ap
ac
en
t o
kt
ób
er
–d
es
em
be
r 2
01
2
–
hö
fu
ðb
or
ga
rs
væ
ði
2
5-
54
á
ra
HAFÐU FJÖLPÓSTINN ÞINN
Í FRÉTTABLAÐINU