Fréttablaðið - 05.04.2014, Síða 24
5. apríl 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN | 24
KONUR
Rjúfum þögnina
Ég hvet þá sem eiga við
ófrjósemi að rjúfa þögnina.
Þetta er allt of mikil byrði að ganga
með einn eða ein.
Ásta Sól Kristjánsdóttir
Grét sig í svefn
Ég held ég hafi grátið mig í
svefn þriðju hverju nótt alla
meðgönguna og bað allan tímann:
„Leyfðu mér að eiga hana.“
Jessica Leigh Andrésdóttir
Ellefu meðferðir og níu milljónir
Ég hef farið í ellefu meðferðir og mitt ferli hefur kostað mig níu millj-
ónir. Ég fór að lokum í rannsókn í Bretlandi og fór að taka lyf sem bæla
niður ónæmiskerfið, í kjölfarið varð ég ólétt. Meðferðin er ekki viðurkennd á
Íslandi en vonandi mun hún verða aðgengilegri fyrir þá sem á eftir mér koma.
Berglind Ósk Birgisdóttir
Par sem á ekki barn saman
Hver meðferð
Önnur til fjórða meðferð
Fimmta meðferð eða meira
Glasafrjóvgun Smásjárfrjóvgun
376.055 kr. 449.660 kr.
171.721 kr. 204.811 kr.
376.055 kr. 449.660 kr.
Par sem á barn saman
Hver meðferð 376.055 kr. 449.660 kr.
KARLAR
Um 30% árangur er
af frjósemismeð-
ferðum.
Að meðaltali þurfa pör
að fara í 3-4 meðferðir
áður en árangur næst.
Sumum tekst að verða
barnshafandi í fyrstu
tilraun og öðrum tekst
það aldrei þrátt fyrir
ítrekaðar tilraunir.
BARNLEYSI HÁIR UM 15% PARA OG ER ÓFRJÓSEMI SKILGREINT SEM SJÚKDÓMUR
Helstu ástæður ófrjósemi Dæmi um kostnað Hvað kostar glasafrjóvgun?
Eftir margra ára baráttu eru þær allar loksins búnar að eignast barn og því bíða þeirra allra hvít-voðungar á meðan á við-talinu stendur. Tveir bíða
heima en dóttir Jessicu er enn á
vökudeild því hún fæddist eftir ein-
göngu 25 vikna meðgöngu. Fyrsta
merki þess að þær eru nýbakaðar
mæður er að þær sleppa varla sím-
unum úr hendi sér og kíkja reglu-
lega á þá. Eitthvað sem flestar
mæður kannast við og þær hafa
látið sig dreyma um í fjöldamörg
ár. Ásamt andvökunóttum, bleyju-
skiptingum, að deila reynslusögum
af brjóstagjöf og meðgöngu.
Skilgreining á ófrjósemi er þegar
par hefur reynt að eignast barn í
eitt ár án árangurs. Ásta Sól hefur
verið í ferlinu í níu ár en meðferð
hefur aldrei gengið upp hjá henni
– synir hennar tveir komu báðir
undir heima. Jessica og Berglind
fóru í meðferð eftir meðferð í sex
ár áður en þær eignuðust sitt fyrsta
barn. Þær hafa allar misst fóstur á
þessum tíma og fengið ítrekað hið
ömurlega „nei“ eftir misheppnaðar
meðferðir.
Konur virkari í baráttunni
Þær sitja saman í stjórn Tilveru
sem stendur fyrir vitundarvakn-
ingu um ófrjósemi í næstu viku.
Henni er ætlað að vekja athygli á
hversu mikið andlegt og líkamlegt
álag fylgir því að eiga í erfiðleikum
með að eignast barn auk fjárhags-
áhyggja. Það eru fjórar aðrar konur
með þeim í stjórninni og því vakn-
ar strax upp spurningin hvort ófrjó-
semi sé kvennavandi?
Berglind: Jafnvel þótt líkamlegi
vandinn liggi hjá karlmanninum
þá virðast konur taka virkari þátt
í baráttunni. Þær virðast líka eiga
auðveldara með að tjá sig um vand-
ann. Rannsóknir sýna að karlmenn
mælist tveimur árum á eftir konum
á kvíða- og þunglyndisskala vegna
ófrjósemi. Þeir finna sem sagt sömu
tilfinningar en bara seinna.
Jessica: Það er líka lítið sem
karlmaðurinn getur gert. Konan
þarf að fara í meðferðirnar, fara í
mikla hormónagjöf og það er ekkert
gaman að búa með manni á meðan á
því stendur. Mennirnir finna mögu-
lega til hjálparleysis því þeir geta
lítið gert annað en að vera stuðn-
ingur við konuna. Ég held að þetta
annað hvort styrki sambandið eða
það brotnar.
Ásta Sól: Við hjónin höfum bæði
verið mjög samtaka og ósamtaka
í þessu ferli sem getur valdið tog-
streitu í hjónabandinu. Eftir mis-
heppnaða meðferð vildi hann
kannski hætta en ég vildi ólm vaða
áfram í næstu meðferð.
Óviðeigandi athugasemdir
Fyrir utan álagið sem fylgir með-
ferðunum, hvað er erfiðast við að
eiga erfitt með að eignast barn?
Berglind: Skilningsleysið sem
maður mætir í samfélaginu. Það er
ekki tekið tillit til að maður sé að
Óttuðust að verða aldrei mæður
Þær eiga þrennt sameiginlegt: þær börðust í mörg sársaukafull ár við að verða óléttar, eru nýbúnar að eignast barn og sitja sam-
an í stjórn Tilveru, samtaka um ófrjósemi. Ásta Sól Kristjánsdóttir, Jessica Leigh Andrésdóttir og Berglind Ósk Birgisdóttir
tala um ófrjósemi og allar þær tilfinningar sem fylgja því að þurfa að berjast fyrir því sem öðrum þykir sjálfsagt – að eignast barn.
MEÐ
BÖRNUNUM
Ásta Sól
með tveggja
mánaða
syninum,
Nóa Hrafni,
Jessica er í
miðjunni en
dóttir henn ar,
Elísabet Anna,
er enn á
vökudeild og
gat því ekki
verið með í
myndatöku og
Berglind með
mánaðar-
gamla dótt-
urina Köru.
FRÉTTABLAÐIÐ/
DANÍEL
syrgja og líði illa. Fáir spyrja beint
út hvernig manni líði og hvern-
ig ferlið gangi, sem er betra en að
maður þurfi sífellt að setja upp
grímu.
Jessica: Svo koma óviðeigandi ráð
og athugasemdir frá sjálfskipuðu
sérfræðingunum.
Ásta Sól: Já, góðu ráðin. Maður er
nýbyrjaður í meðferð og er spurð-
ur hvort maður hafi íhugað ætt-
leiðingu. Það er ekki eitthvað sem
maður vill heyra þegar maður er í
miðri baráttu. Svo á maður að slaka
á því þá kemur þetta frekar en ég
held ég hafi aldrei verið jafn illa
haldin af streitu þegar eldri sonur-
inn kom loks undir.
Berglind: Já, eða fá sér hund. Það
er eitt ráðið, örugglega eina ráðið
sem ég hef ekki prófað.
Jessica: Mér fannst líka erfitt að
sitja undir barnatalinu þar til ég
leitaði mér hjálpar hjá sálfræðingi.
Eftir það breyttist allt því það var
svo gott að fá viðurkenningu á að
allar tilfinningar sem ég upplifði
væru eðlilegar og ég væri svo sann-
arlega ekki sú eina.
Ásta: Stundum gat líka verið
drullusárt að heyra af pari sem
átti algjörlega óvænt von á barni
og maður sjálfur búinn að reyna
mjög lengi. Ég samgladdist alveg
en maður spurði sjálfan sig „hve-
nær kemur að mér?“. Það er hræði-
leg tilfinning að óttast að verða
aldrei móðir. Maður byrjar í ferlinu
fullur af von og trú. Síðan þegar
ekkert gengur, meðferð eftir með-
ferð, verður þetta sífellt erfiðara.
Ég held þó að það erfiðasta sem ég
upplifði í þessu ferli hafi verið þegar
mér var ráðlagt að fara að huga að
gjafaeggi – og þurfa mögulega að
gefa upp vonina um að eignast mín
eigin börn.
Barnleysið verður að hugsýki
Þær eru sammála um að lífið snú-
ist eingöngu um að eignast barn á
meðan á ferlinu stendur.
Berglind: Ég tók ekki frí frá
vinnu í fimm ár nema það væri í
tengslum við glasameðferðir. Svo
hefur mastersnámið setið á hakan-
um. Þetta er sett í algjöran forgang.
Jessica: Ég hef ekki farið í það
nám sem ég hefði viljað því ég ein-
beitti mér bara að því að eignast
barn. Það eru fimm ár sem ég gerði
bara ekki neitt annað en að hugsa
um þetta.
Ásta Sól: Mér var boðið til Kúbu
en ég hafnaði tilboðinu því ég var
mögulega með egglos á sama tíma.
Hvað ef þetta er eggið? Ég gat ekki
tekið sjénsinn.
Berglind: Sama á við um með-
gönguna. Maður var alveg hugsjúk-
ur og ég þorði ekki að leyfa mér að
vona að þetta myndi ganga upp fyrr
en í lokin. Ég var með hlustunar-
tæki að hlusta á hjartsláttinn henn-
ar á hverjum degi og átti erfitt með
að slaka á og njóta.
Jessica: Ég held ég hafi grátið
mig í svefn þriðju hverju nótt alla
meðgönguna og bað allan tímann:
„Leyfðu mér að eiga hana.“
Ásta Sól: Það er ekki á það bæt-
andi að hafa misst fóstur áður. Þá er
maður meðvitaðri um að maður geti
misst aftur. Mér finnst að tala megi
meira um fósturlát í samfélaginu
vegna sársaukans og leyndarinnar
sem fylgir þeim. Mér var til dæmis
ekki boðið upp á neina ráðgjöf,
ekki einu sinni þegar ég hringdi og
spurði um það.
Ferlið hefur kostað níu milljónir
Á Íslandi er eingöngu ein læknastöð
sem sérhæfir sig í ófrjósemismeð-
ferðum. Þær eru sammála um að
samkeppnin mætti vera meiri eða
sérfræðingarnir opnari fyrir nýj-
ungum í fræðunum.
Jessica: Mig grunaði alltaf að ég
væri með PCOS (fjölblöðrueggja-
stokkaheilkenni). Það var ekki fyrr
en ég leitað álits hjá þriðja kvensjúk-
dómalækninum að það var hlustað
almennilega á mig og mína verkja-
sögu. Eftir það fékk ég viðeigandi
meðferð og varð ólétt í kjölfarið. Í
mörg ár var mér sagt að verkirnir
stöfuðu af ofþyngd minni.
Berglind: Ég endaði á að leita til
lækna erlendis. Ég hef farið í ellefu
meðferðir og mitt ferli hefur kostað
mig níu milljónir. Ég er með legslí-
muflakk og öll fjölskyldan lagðist í
rannsóknir og greinar á netinu. Við
fundum út að ég væri með mörg ein-
kenni sjálfsofnæmis, sem veldur því
að varnarkerfi líkamans heldur að
fósturvísirinn sé krabbameinsfrum-
ur og ræðst á hann. En enginn var
tilbúinn að rannsaka mig með tilliti
til þessa galla, mér var sagt að þetta
væru bara kenningar og engar rann-
sóknir styddu þær. Ég fór að lokum í
rannsókn í Bretlandi og fór að taka
lyf sem bæla niður ónæmiskerfið,
í kjölfarið varð ég ólétt. Meðferðin
er ekki viðurkennd á Íslandi en von-
andi mun hún verða aðgengilegri
fyrir þá sem á eftir mér koma.
Út úr skápnum með ófrjósemi
Baráttumál Tilveru eru meðal ann-
ars endurskoðun á niðurgreiðslu
ríkisins vegna ófrjósemismeð-
ferða. Einnig að opna umræðuna
til að ófrjósemi hætti að vera tabú
í samfélaginu.
Berglind: Ófrjósemin hefur líka
áhrif á marga, og alla fjölskyldu
þeirra sem eiga við vandann. Þetta
er ekki bara spurning „verð ég
aldrei mamma“ heldur líka „verð
ég aldrei amma“.
Ásta Sól: Ég hvet þá sem eiga við
ófrjósemi að stríða að rjúfa þögnina.
Þetta er allt of mikil byrði að ganga
með einn eða ein.
Jessica lítur á símann sinn í miðri
setningu Ástu Sólar og þýtur upp.
„Ég verð að fara,“ segir hún enda
kominn tími á brjóstagjöf á vöku-
deildinni. Það vakna allir upp úr
djúpum samræðum og hugurinn fer
beinustu leið til litlu óskabarnanna
sem leyfðu þessum þremur konum
að upplifa stærsta draum sinn.
Erla Björg
Gunnarsdóttir
erlabjorg@frettabladid.is
Par þarf 3 tæknisæð-
ingar, 3 glasa meðferðir og 1 upp-
setningu á frystum fósturvísum.
Kostnaður fyrir meðferðir og lyf
er að lágmarki um 1.060.000 kr.
Ef þau vilja eignast annað barn eru þær
meðferðir ekkert niðurgreiddar. Ef þau
þurfa tvær meðferðir er kostnaðurinn
um 805.000 kr. Einn skammtur af gjafasæði kostar 37.500 kr. og gjafaeggjameðferð 250.000 kr.
● Æðagúlpur eða
æðaflækja við
eistu
● Lélegt eða van-
skapað sæði
● Vanþroska
sæði
● Ekkert sæði
● Legslímuflakk (e. endometriosis)
● Fjölblöðru eggjastokkaheilkenni
● Hormónaójafnvægi
● Snemmbúin tíðarhvörf
● Stíflur eða samgróningar
í eggjaleiðurum
● Síendurtekin fósturlát
● Léleg eða engin egg