Fréttablaðið - 05.04.2014, Side 42
FÓLK|HELGIN
Við viljum ekki aðeins höfða til hestamanna heldur til allra þeirra sem áhuga hafa á hestum,“ segir Helga Björg Helga dóttir, formaður æskulýðsnefndar Landssambands hestamanna, sem
kemur að skipulagningu sýningarinnar Æskunnar og hestsins. Æskan
og hesturinn hefur verið fastur liður í starfi hestamannafélaganna á
höfuðborgarsvæðinu í hartnær tuttugu ár, en þá er öllum áhugasöm-
um boðið að koma og njóta skemmtiatriða án endurgjalds.
„Þegar mest var voru fjórar sýningar sömu helgina en nú bjóðum
við upp á tvær á sunnudaginn, klukkan 13 og 16. Að sjálfsögðu verð-
ur frítt inn eins og venjulega,“ segir Helga Björg, en iðulega er fullt út
úr dyrum og því um að gera að koma tímanlega til að fá sæti.
Á sýningunni, sem stendur í um tvo tíma, er margt skemmtilegt
að sjá. „Krakkarnir sjálfir finna upp á atriðunum og æfa þau, en
síðustu ár hefur æ meiri áhersla verið lögð á grín og glens,“ segir
Helga Björg og bendir á að Pollapönk muni skemmta krökkum
strax eftir hlé. „Svo fáum við gesti úr Reiðskóla fatlaðra sem sýnir
vel breiddina í hestamennskunni. Við fáum gestaatriði alla leið frá
Sindra í Vík í Mýrdal og svo má nefna töltslaufur, þrautabrautir og
leiksýninguna Skúlaskeið sem krakkarnir í Herði í Mosfellsbæ setja
upp,“ telur hún upp en í sýningunni taka þátt krakkar allt frá nokk-
urra ára gömlum og upp í ungmenni.
SPILA HESTAFÓTBOLTA
Eitt af þeim atriðum sem sýnt verður á Æskunni og hestinum er
hestafótbolti sem krakkarnir í hestamannafélaginu Fáki sjá um.
„Það verða fjórir í hverju liði og fótboltinn er svokallaður jóga-
bolti,“ segir Hilmar Guðmannsson hjá æskulýðsnefnd Fáks. „Svo
verða tvö mörk sitt hvorum megin í reiðhöllinni en einn dómari
og eitt lukkudýr munu hjálpa til ef boltinn festist úti í horni,“ lýsir
hann. Hilmar segir æfingu atriðisins hafa gengið vel en mesta vinn-
an var fólgin í því að venja hestana við boltann. „Það eru ekki allir
hestar sem þola svona og því fórum við varlega til að byrja með,“
segir Hilmar en mikil spenna ríkir hjá krökkunum fyrir sýningunni.
„Það hefur verið mikið fjör á síðustu æfingum og þetta verður
örugglega mjög skemmtilegt.“
HESTAFÓTBOLTI, GLENS OG GLEÐI
FRÍ HESTASÝNING Sýningin Æskan og hesturinn verður haldin á sunnudaginn í Reiðhöllinni í Víðidal. Þar sýna krakkar úr ýmsum
hestamannafélögum fjölbreytt atriði auk þess sem Pollapönk spilar. Krakkarnir úr Fáki munu til að mynda spila fótbolta á hestbaki.
FRÍTT INN
Tvær sýningar verða á
sunnudaginn, klukkan 13 og
16. Frítt er inn á þær báðar.
Með hækkandi sól og bjartari og
lengri dögum eru margir farnir
að huga að ræktun kryddjurta í
heimahúsum. Ræktun kryddjurta
bætir matargerðina og sparar
peninga, auk þess að gefa góðan
ilm í eldhúsið. Þær eru auk þess
mjög hollar og því allt sem mælir
með ræktun þeirra.
Hægt er að rækta ýmsar
kryddjurtir allt
árið um kring en
flestir hefja ræktun
snemma vors.
Nokkrar tegundir
af basilíku fást og
þær er tilvalið
að rækta í eld-
húsglugganum
þar sem hún
þolir illa að vera
úti við. Af öðrum
kryddjurtum sem
henta vel til inni-
ræktunar má nefna
timjan, óreganó og
rósmarín.
Kryddjurtir sem þríf-
ast vel úti hérlendis eru til dæmis
steinselja, graslaukur, kóríander,
dill, piparmynta og salvía.
Það er ágætis byrjun að for-
rækta kryddjurtir inni við áður en
þær eru settar út. Fyrstu dagana
er síðan skynsamlegt að taka þær
inn yfir nóttina svo þær venjist
kuldanum smátt og smátt. Eftir
það ættu kryddplönturnar
að lifa góðu lífi fram á
haust.
Fyrir þá sem hafa
ekki þolinmæði til að
bíða eftir að fræin
verði að fullvaxta
kryddplöntum er
einfalt mál að kaupa
kryddjurtir í pottum.
Þær fást víða, til dæm-
is í garðyrkjustöðvum
og stórmörkuðum.
Þeim er þá umpottað
í hentugri potta með
aukamold og komið fyrir
á björtum stað, til dæmis
í eldhúsglugganum eða
settar beint út.
TÍMI FYRIR KRYDD
sýnir listir sínar í miðbæ Hafnarfjarðar
Færeyskir dagar á Fjörukránni frá 12- 17
Tískusýning og tónleikar með Lailu Av Reyni kl 15.
Norræna ferðaskrifstofan með kynningu,
færeyskt smakk, kaffi- & vöfflusala o.m.fl.
Tónleikar um kvöldið með Lailu Av Reyni
og Sometime á Fjörukránni.
K
ra
ft
av
er
k