Fréttablaðið - 05.04.2014, Síða 57
Staða aðstoðarleikskólastjóra við leikskólann Álfastein
er laus til umsóknar. Leitað er að metnaðarfullum
einstaklingi sem er tilbúinn til að leiða áfram og taka þátt í
góðu faglegu samstarfi í skólanum og hafa að leiðarljósi að
gott leikskólastarf má ávallt bæta. Unnið samkvæmt SMT
skólafærni.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Leikskólakennarapróf
• Framhaldsmenntun og/eða reynsla á sviði stjórnunar
æskileg
• Frumkvæði og samstarfsvilji.
• Góðir skipulagshæfileikar.
• Hæfni í mannlegum samskiptum.
• Sé reiðubúinn til að leita nýrra leiða í leikskólastarfi.
• Hafi áhuga og/eða reynslu til að leiða þróunarstarf
Umsókninni skal fylgja greinargóð skýrsla um störf um-
sækjanda og menntun, stjórnunarreynslu og hver þau
verkefni sem hann hefur unnið við og varpað geta ljósi á
færni hans til að sinna stjórnunarstarfi.
Allar upplýsingar um stöðuna veitir Inga Líndal
leikskólastjóri í síma 555 6155/ 664 5839
alfasteinn@hafnarfjordur.is
Umsóknarfrestur til og með 22. apríl 2014.
Fræðslustjórinn í Hafnarfirði
Skólaskrifstofa Hafnarfjarðar
Aðstoðarleikskólastjóri
Fulltrúi í þjónustuver
Staða fulltrúa í þjónustuver
Tollstjóra er laus til umsóknar
Hjá Tollstjóra starfar hópur hæfileikaríks
starfsfólks sem hefur það að markmiði að
veita góða og skilvirka þjónustu og standa
vörð um hagsmuni almennings og atvinnulífs.
Lögð er áhersla á símenntun starfsmanna,
heilsueflingu og góðan aðbúnað.
Starf fulltrúa felur m.a. í sér:
• Afgreiðslu og þjónustu við viðskiptavini.
• Upplýsingagjöf og úrlausn mála í
tengslum við almenn tollamálefni og
innheimtu skat ta og gjalda.
• Símsvörun í þjónustuveri og/eða
skiptiborði.
• Afgreiðslu aðsendra erinda í gegnum
síma, tölvupóst eða svarbox.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Stúdentspróf eða samsvarandi menntun.
• Staðgóð almenn tölvukunnát ta.
• Got t vald á íslensku.
• Hæfni í mannlegum samskiptum.
• Kurteisi og þjónustulund.
• Nákvæmni, traust vinnubrögð
og stundvísi.
• Hreint sakavot torð.
Um er að ræða fjölbreyt t verkefni sem
hæfa jafnt körlum sem konum. Við upphaf
starfs er boðið upp á markvissa þjálfun í
sérhæfðum þát tum sem tengjast tolla- og
innheimtumálum. Launakjör eru samkvæmt
kjarasamningum opinberra starfsmanna. Um
starfskjör, rét tindi og skyldur gilda að öðru
leyti lög um rét tindi og skyldur starfsmanna
ríkisins nr. 70/1996.
Nánari upplýsingar um starfið veitir
Unnur Ýr Kristjánsdót tir, forstöðumaður
mannauðssviðs, í síma 560-0300.
Umsóknarfrestur er til 22 apríl nk. Æskilegt
er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Umsóknir merktar „fulltrúi þjónustuver“
ásamt ferilskrá skal skila til mannauðssviðs
embættisins að Tryggvagötu 19, 101 Reykjavík
eða í gegnum tölvupóst: starf@tollur.is
Öllum umsóknum verður svarað þegar
ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Athygli er
vakin á að umsóknir gilda í 6 mánuði frá því að
umsóknarfrestur rennur út.
störf hjá hjá eimskip flytjanda
á norður- og austurlandi
www.eimskip.is
J
A
N
Ú
A
R
Hjá Eimskip Flytjanda starfar öflugur hópur fólks sem hefur gildi fyrirtækisins; árangur, samstarf og traust
að leiðarljósi. Nú leitum við að nýjum liðsmönnum á Norður- og Austurland. Um er að ræða tímabundin störf
við sumarafleysingar á Egilsstöðum, Reyðarfirði og Húsavík og eitt framtíðarstarf á Húsavík.
húsavík
vöruhúsaþjónusta
– sumarafleysing
Helstu verkefni eru vörumóttaka og vöruafgreiðsla. Almennt gildir að fastur vinnutími
er frá kl. 08:00–16:00 alla virka daga en viðkomandi aðili þarf að hafa sveigjanleika til
að geta unnið lengur ef verkefnastaða er þannig. Æskilegt er að umsækjendur hafi
lyftararéttindi (J).
akstur – sumarafleysing
og framtíðarstarf
Eimskip Flytjandi leitar að tveimur bílstjórum, annars vegar í sumarafleysingu og hins
vegar í framtíðarstarf, við akstur dráttar- og flutningabíla. Hefðbundinn vinnutími er
frá kl. 08:00–16:00 alla virka daga en viðkomandi aðilar þurfa að hafa sveigjanleika til
að geta unnið lengur ef þörf er á. Meirapróf (C) er skilyrði fyrir ráðningu og réttindi til
að aka með tengivagn (CE) eru æskileg.
Nánari upplýsingar um störfin veitir Þorgrímur Friðrik Jónsson, verkstjóri Eimskips
á Húsavík í síma 525 7853, tfj@eimskip.is.
egilsstaðir og reyðarfjörður
akstur – sumarafleysing
Eimskip Flytjandi leitar að bílstjórum í sumarafleysingar við akstur dráttar- og
flutningabíla.
Helstu verkefni eru lestun og losun bíla, útkeyrsla, vörumóttaka og vöruafgreiðsla.
Um er að ræða bæði dag- og vaktavinnu. Meirapróf (C) er skilyrði fyrir ráðningu,
réttindi til að aka með tengivagn (CE) og lyftararéttindi (J) eru æskileg.
Nánari upplýsingar um störfin veitir Rúnar Már Gunnarsson, þjónustustjóri Eimskips
á Austurlandi í síma 525 7977, rmg@eimskip.is.
Umsjón með ráðningunum hefur Erla María Árnadóttir, sími 525 7131, era@eimskip.is.
Tekið er á móti umsóknum í gegnum heimasíðu Eimskips, www.eimskip.is til og með 12. apríl.
Öllum umsóknum verður svarað og farið með þær sem trúnaðarmál.
Hreint sakavottorð og 18 ára aldur er skilyrði fyrir ráðningu hjá Eimskip.