Fréttablaðið - 05.04.2014, Qupperneq 80
5. apríl 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN | 44
snillingum, en í þá daga, beint í kjölfarið á
Íslendingasögunum, þá fannst mér persónur
eins og kapteinn Vallery og Starr flotafor-
ingi bæði djúpir og magnaðir karakt-
erar.
Vallery, Starr, hver er þá
bókin? Jú, kannski rumska
þessi nöfn í minni fleiri gam-
alla lesenda: hér er auðvitað
um að ræða Skip hans hátignar
Ódysseif. Bók sem fjallar um
áhöfnina á bresku beitiskipi
sem fer í sína hinstu för á stríðs-
árunum seinni, Ódysseifur á að
fylgja stórri skipalest um Norður-
íshafið frá Íslandi til Múrmansk á
Kólaskaga, framhjá Noregi sem þá er
undir stjórn Þjóðverja – og í norsku
fjörðunum bíða þýskir kafbátar,
þýskar sprengjuflugvélar og síð-
ast en ekki síst hið tröllaukna
orrustuskip Tirpitz. Skipin í
lestinni flytja skriðdreka, flug-
vélar og önnur bráðnauðsynleg
hergögn handa Sovétmönnum
í baráttu þeirra gegn þýskum
nasistum Hitlers. Ef kafbátarnir,
flugvélarnar og þó einkum Tirpitz
komast í færi við skipalestina verður
tjónið ægilegt fyrir stríðsreksturinn
gegn Þjóðverjum.
En áhöfninni á HMS Ódysseifi er ætlað að
verjast Tirpitz og öðrum tólum Hitlers fram
í rauðan dauðann. Sem hún og gerir.
Ég komst að því löngu eftir að ég var hætt-
ur að lesa Alistair MacLean að bókin hans
um beitiskipið Ódysseif var fyrsta skáldsaga
hans, hún var því væntanlega skrifuð af svo-
lítið öðrum hvötum en hinar seinni bækur
sem hann framleiddi eins og af færibandi til
að eiga fyrir salti í grautinn og líka öllu því
viskíi sem hann mun hafa drukkið ótæpilega
fram á grafarbakkann. Ætli láti ekki nærri
að bókina um Vallery, Starr og þá félaga hafi
MacLean skrifað af einhvers konar innri
þörf, það held ég sé augljóst, enda kom líka
á daginn að þarna var hann reyndar að lýsa
sínu eigin lífi á stríðsárunum, bókin er sann-
söguleg.
Beitiskipið HMS Ódysseifur er sagt í
hinni samnefndu bók MacLeans vera af
Dido-gerð en það voru um 7.000 tonna skip,
156 metrar að lengd (tveir Hallgrímskirkju-
turnar!) og vopnuð ýmist átta eða tíu fall-
byssum með hlaupvídd 133 millimetrar.
Bretar brúkuðu sextán svona skip í seinni
heimsstyrjöldinni og fimm þeirra var sökkt.
Ekkert þeirra hét HMS Ódysseifur, en eitt
þeirra hét hins vegar HMS Royalist og á því
sigldi ungur sjóliði að nafni Alistair Mac-
Lean. Og hann var meðal annars um borð
veturinn 1943-44 þegar Royalist var í hópi
herskipa sem fylgdu nokkrum skipalestum
frá Íslandi til Múrmansk. Hann kynntist því
sjálfur þeim aðstæðum sem sjómennirnir
í þessum íshafssiglingum máttu búa við,
hinum hrikalegu veðrum yfir vetrartímann,
kuldanum, ísingunni, loftárásum sprengju-
flugvéla og tundurskeytaárásum kafbáta, og
síðast en ekki síst: óttanum við Tirpitz.
Tirpitz var 45.000 tonna orrustuskip, syst-
urskip Bismarcks sem sökkti HMS Hood,
stolti breska flotans, í fimm mínútna orr-
ustu djúpt út af Reykjanesi í maí 1941. Þjóð-
verjar höfðu komið Tirpitz fyrir í Noregi
til að freista þess að stöðva skipalestirnar
til Múrmansk og í byrjun júlí 1942 bárust
fregnir um að Tirpitz hefði lagt úr höfn í
Altafirði nyrst í Noregi og ætlaði að ráðast
á skipalestina PQ-17 sem þá var komin
langleiðina frá Íslandi til Múrmansk.
Svo mikill ótti greip um sig meðal
Breta við þessar fréttir að skipa-
lestin var leyst upp með hraði og
urðu kaupskipin síðan auðveld
bráð fyrir kafbáta og flugvélar
Þjóðverja, en Tirpitz gat snúið
aftur til hafnar án þess að þurfa
að beita byssum sínum.
Hin skelfilega reynsla af PQ-17
varð til þess að Bretar lögðu næstu
misserin allt kapp á að gera Tirpitz
skaðlausan og voru gerðar stöðugar
loftrásir á stöðvar hans í Noregi og
í eitt skiptið meira að segja beitt
dvergkafbátum. En þessar árásir
tókust þó ekki sem skyldi og
veturinn sem Alistair MacLean
sigldi þessar slóðir með HMS
Royalist, þá var Tirpitz ennþá
stöðug ógn fyrir skipalestirnar
og fylgdarskip þeirra.
Og nú fer ég að komast að
kjarna málsins. Í fyrradag voru
nefnilega liðin rétt 70 ár frá afdrifa-
ríkri árás sem breski flotinn gerði á
Tirpitz í Altafirði. Öflug bresk flota-
deild sigldi langt norður í íshaf, sex flug-
vélamóðurskip studd rúmlega 20 öðrum her-
skipum, og síðan voru í morgunsárið 3. apríl
1944 gerðar loftárásir á þýska orrustuskipið
sem leyndist í þröngum Kåfirðinum út af
Altafirði.
Vel heppnaðar árásir
Þessi mikla og djarfa aðgerð kallast Opera-
tion Tungsten í munni Breta og bresku skip-
unum var skipt í tvo flokka. Í öðrum flokkn-
um voru fimm flugvélamóðurskip og þrjú
beitiskip, og síðan tíu tundurspillar – þar á
meðal einn pólskur, Piorun, sem hafði tekið
þátt í árásum Breta á Bismarck tæpum þrem
árum fyrr. Þessum flokki herskipa var stýrt
af flotaforingjanum Arthur La Touche Bis-
set og lýsti hann því síðar að það hefði verið
fögur sjón að sjá flugvélar af flugvélamóð-
urskipum hans hefja sig á loft og stefna svo
til árásar gegn rísandi sólu.
Árásirnar tókust mjög vel. 120 flugvélar
réðust að Tirpitz og margar sprengjur hittu
mark sitt. 123 þýskir sjóliðar létu lífið, 329
særðust og skemmdir á Tirpitz voru svo
miklar að það tók hálft ár að gera við þær.
Og þá tóku við nýjar loftárásir og að lokum
var Tirpitz endanlega sökkt síðar á árinu,
12. nóvember 1944.
En það sem ég vildi sagt hafa: Meðan
Arthur La Touche Bisset stóð og horfði í
aðdáun af beitiskipinu, þar sem hann hafði
aðsetur, á eftir flugvélunum stefna til árása
á Tirpitz fyrir réttum 70 árum, þá var líka
niðrá dekki að fylgjast með vélunum fara
rétt rúmlega tvítugur sjóliði sem átti að
annast um tundurskeytin og hafði því litlu
að sinna akkúrat þessa stund – þar var
Alistair MacLean kominn, því flaggskip
La Touche Bisset í óperasjón Tungsten var
einmitt HMS Royalist, og rúmum áratug
seinna reisti sjóliðinn ungi íshafssiglingun-
um og áhöfn bresku fylgdarskipanna þann
bautastein sem bókin um Skip hans hátignar
Ódysseif óneitanlega er.
FLÆKJUSAGA
Illugi Jökulsson
uppgötvaði að rétt
70 ár eru liðin frá
afdrifaríkri loftárás
á þýska orr-
ustuskipið
Tirpitz sem
metsöluhöf-
undurinn
Alistair
MacLean
tók þátt í.
Þegar ég var á aldrinum 11-14 ára og hættur að lesa Íslendingasög-urnar, þá fór ég að lesa Alistair MacLean. Þá voru komnar út á íslensku eitthvað um tíu tólf bækur eftir þennan skoska höf-
und sem var þá áreiðanlega meðal vinsæl-
ustu spennubókahöfunda heimsins, og naut
alveg sérstakra vinsælda á Íslandi. Í tíu eða
fimmtán ár voru bækurnar hans undan-
tekningarlaust meðal þeirra allra söluhæstu
í hverju jólabókaflóði, þær vinsælustu fóru
í tíu þúsund eintökum og voru svo endur-
prentaðar margoft, sumum fannst það hálf-
gerð niðurlæging fyrir „bókaþjóðina“ hvað
Árásirnar
tókust
mjög vel.
120 flugvél-
ar réðust
að Tirpitz
og margar
sprengjur
hittu mark
sitt. 123
þýskir sjó-
liðar létu
lífið, 329
særðust og
skemmdir á
Tirpitz voru
svo miklar
að það tók
hálft ár að
gera við
þær.
METSÖLUHÖFUNDURINN
SEM RÉÐST Á ORRUSTUSKIPIÐ
ARTHUR LA
TOUCHE BISSET
ALISTAIR
MACLEAN
HMS ROYALIST ÖÐRU NAFNI ÓDYSSEIFUR.
hann seldist ótrúlega vel, en fyrir aðdá-
endur Skotans var alltaf tilhlökkunarefni að
fá nýja bók eftir hann í hendurnar, og titlar
þeirra flestra gleymast ekki: Byssurnar í
Navarone, Nóttin langa, Til móts við gull-
skipið, Arnarborgin, Spyrjum að leikslokum,
Síðasta skip frá Singapore …
Ég hef ekki þorað að líta í bækur Mac-
Leans síðan ég hætti að lesa þær á unglings-
aldri, það væri náttúrlega frekar vandræða-
legt ef ég kæmist að því að hafa eytt tíma
mínum og smekk í eitthvert algjört rusl,
jafnvel þó svo ég hafi verið ungur að árum,
en í rauninni held ég að bækurnar hans
hafi verið afskaplega heiðarlegir karlareyf-
arar eins og þá tíðkuðust: drifnar áfram af
hröðum söguþræði, óvæntum atburðum,
engum málalengingum, hnefahöggin glumdu
og mikið bitið á jaxlinn og karlmennskan
löðrandi upp um alla veggi. Sumar gerðust í
seinni heimsstyrjöldinni og maður kynntist
Schmeisser-handvélbyssum náið, en aðrar í
kalda stríðinu og illskeyttir sovéskir útsend-
arar gátu leynst hvarvetna.
Djúpir og magnaðir karakterar
En hvort sem bækur MacLeans myndu telj-
ast læsilegar nútildags eða ekki, þá fannst
mér þá að ein þeirra skæri sig nokkuð frá
hinum. Hún var ekki drifin áfram af for-
vitni lesanda um hvað myndi gerast næst,
því frá því var greint strax á fyrstu blaðsíð-
unum hvernig hún myndi enda. Og persónu-
sköpunin var alls ekki eins einföld í sniðum
og í öðrum bókum MacLeans, þarna voru
ekki á ferð einfaldar hetjur og enn einfald-
ari skúrkar, heldur manneskjur sem reyndu
af vanmætti að takast á við hinar ferleg-
ustu aðstæður. Ég veit svo sem ekki hvort
sú persónusköpun myndi hafa dugað mér á
seinni árum, eftir að hafa kynnst meiri rit-