Fréttablaðið - 05.04.2014, Qupperneq 96
5. apríl 2014 LAUGARDAGUR| MENNING | 60
LAUGARDAGUR
HVAÐ?
HVENÆR?
HVAR?
05. APRÍL 2014
Leiklist
20.00 Leikfélagið Hugleikur frumsýnir
nýjan íslenskan söngleik í Tjarnarbíói í
kvöld, um er að ræða 30 ára afmælis-
sýningu félagsins. Sýningin hefst
klukkan 20.00.
Dansleikir
22.00 Hinir einu sönnu Greifar ætla
skemmta á skemmtistaðnum Spot í
kvöld. Húsið opnar klukkan 22.00.
23.30 SSSól, hin frábæra tónleika- og
ballhljómsveit ætlar að slá upp balli á
Græna hattinum í kvöld klukkan 23.30
Málþing
13.00 Málþing verður haldið á Land-
námssýningunni í Aðalstræti 16 og
hefst klukkan 13.00 og stendur til
16.00.
Tónlist
16.00 Ragnar Bjarnason, Jón Ólafsson
og Valgeir Guðjónsson fletta í söngbók
og ferilskrá Ragga, spá í spilin, spila
lögin, spjalla og slá á létta strengi ef
einhverjir finnast. Tónleikarnir fara
fram í Eyrarbakkakirkju.
16.00 Við slaghörpuna í hálfa öld.
Tónleikaröð Jónasar Ingimundarsonar
í Salnum. Tónleikaröðin er skipulögð
af Jónasi Ingimundarsyni píanóleikara
sem minnist þess á árinu að fimmtíu
ár eru liðin frá því hann hóf þátttöku í
opinberu tónlistarlífi. Tónleikarnir hefj-
ast klukkan 16.00.
17.00 Úrslitakvöld Músíktilraunanna
fer fram í Norðurljósasalnum í Hörpu í
kvöld og hefst klukkan 17.00.
20.00 Reiðmenn Vindanna halda tón-
leika á Græna Hattinum í kvöld klukkan
20.00.
21.00 Tónlistarmaðurinn Rúnar Þóris-
son verður með tónleika á Bar 11 í
kvöld. Rúnar gaf nýlega út plötuna Sér-
hver Vá sem hefur verið að fá frábæra
dóma að undanförnu. En hljómsveit
Rúnars skipa þau Lára Rúnarsdóttir,
Arnar Gíslason, Guðni Finnsson, Birkir
Rafn Gíslason og Margrét Rúnarsdóttir.
Húsið opnar klukkan 21.00 og aðgang-
ur er ókeypis.
22.00 KK hóar saman nokkrum
vinum og halda þeir tónleika á Café
Rosenberg sem hefjast klukkan 22.00.
Aðgangseyrir er 2.000 krónur.
22.00 Audio Nation verður með tón-
leika á Kaffi Rós í Hveragerði í kvöld og
hefjast þeir klukkan 22.00, þar verður
nýja platan spiluð og er aðgangur
ókeypis. Að loknum tónleikum mun
Rokksveit Jonna Ólafs leika fyrir dansi.
Listamannaspjall
15.00 Listamannaspjall í tengslum við
sýninguna Hljómfall litar og línu fer
fram í dag klukkan 15.00 í Hafnarhús-
inu. Spjallið hefst klukkan 15.00 og fer
fram á íslensku. Aðgangur á sýninguna
er 1.300 kr. Frítt er fyrir handhafa
Menningarkortsins.
Fyrirlestrar
11.00 Einn kunnasti sérfræðingur Evr-
ópu í öryggis- og alþjóðastjórnmálum,
François Heisburg, heldur fyrir-
lestur um evruna og Evrópu-
sambandið á vegum Rann-
sóknaseturs um nýsköpun og
hagvöxt (RNH) og Alþjóða-
málastofnunar Háskóla
Íslands í dag klukkan 11 til
12 í Odda, stofu O-202, í
Háskóla Íslands. Fundurinn
verður fluttur á ensku.
Tómas Ingi Olrich, fyrrverandi
menntamálaráðherra og sendi-
herra í París, stjórnar fund-
inum. Að honum standa
auk RNH og Alþjóðamála-
stofnunar samtökin Þjóð-
ráð og Heimssýn.
Markaðir
12.00 Í dag verður
Herrafataverzlun
Kormáks og Skjaldar
með fatamarkað á Kex
Hostel. Alls konar föt
á grín verði. Einnig
munu starfsmenn
búðarinnar selja föt
úr sínum einkaskáp-
um á kostakjörum.
Buxur, jakkar,
skyrtur, skór. Vesti,
hattar, sixpensarar
og fleira gómsætt.
Opið frá 12 til 17.
Samkoma
13.30 U3A
Reykjavík stendur
fyrir gönguferð
um slóðir Bríetar Bjarn-
héðinsdóttur ritstjóra í
Þingholtunum. Kaffi og
skemmtan í Hannesar-
holti að lokinni göngu.
Nauðsynlegt að skrá
sig fyrirfram í gönguna
í síma 666-7810 eða
551-6603. Allir velkomnir.
Mæting er klukkan 13.30.
„Við ætlum að tileinka hátíðina í ár
Philip Seymor Hoffman sem lést á
árinu og þeir sem mæta fá fallegan
bol með mynd af Hoffman,“ segir
Svavar Jakobsson, skemmtanastjóri
Big Lebowski-hátíðarinnar sem fram
fer í Keiluhöllinni í Öskjuhlíð í kvöld.
Þetta er í áttunda skiptið sem hátíðin
er haldin.
„Það er alltaf kjarnahópur sem
mætir, í fyrra mættu um 85 manns
en árið þar á undan mættu um
120 manns, það eru margir Big
Lebowski-aðdáendur á Íslandi.“
Uppruna hátíðarinnar má rekja
til vinahóps Svavars sem hélt mikið
upp á myndina. „Við höfðum gaman
af myndinni og héldum sjálfir svona
Big Lebowski-kvöld. Vorum í slopp-
um og horfðum á myndina með
Hvítan Rússa í hendinni en svo vatt
þetta upp á sig og nú er þessi vina-
hópshittingur orðinn að árlegum
viðburði sem er alltaf að stækka,“
útskýrir Svavar.
Hátíðin hefst klukkan 20.00 en á
meðal dagskrárliða á hátíðinni er
Lebowski Pub Quiz og Keila. „Við
horfum á myndina og fáum okkur
Hvítan Rússa.“ - glp
Leggja undir sig Keiluhöllina
Lebowski-aðdáendur tileinka hátíðina Philip Seymour Hoff man sem lést á árinu.
SKEMMTANASTJÓRARNIR Ólafur
Jakobsson og Svavar Jakobsson stýra
skemmtuninni. MYND/EINKASAFN