Fréttablaðið - 05.04.2014, Blaðsíða 98
5. apríl 2014 LAUGARDAGUR| LÍFIÐ | 62
BERJAST Í BEINNI
ÚTSENDINGU
Annar undanúrslitaþáttur af Ísland Got Talent er í beinni útsend-
ingu á Stöð 2 annað kvöld. Fréttablaðið kynntist aðeins betur
keppendunum sjö sem kljást um að komast í úrslitaþáttinn.
Bubbi tilbað mig sem jójó gúrú
Páll jójó 900-9505
Gígantískur styrkur
Ásta Kristín súlufimi 900-9501
Fullt nafn: Ásta Kristín Marteinsdóttir
Aldur: 22 ára.
Starf: Aðstoðarþjálfari hjá Pole Sport, dúla og mamma.
Hver er draumurinn?
Draumurinn minn er að geta lifað á því að gera það
sem ég elska að gera og það sem ég elska að gera
er að sýna listir á súlu.
Uppáhaldslistamaður/menn?
Mínar helstu fyrirmyndir eru bara hinir og þessir
úr súluheiminum, það er enginn uppáhalds en
alveg fullt af fólki samt sem áður sem ég lít upp
til.
Hvað er erfiðast við atriðið þitt?
Styrkurinn sem þarf til þess að gera svona rútínu
er gígantískur þannig að ég myndi segja að
æfingarnar séu það erfiðasta.
Rosaánægð með hvort annað
Höskuldur og Margrét dans 900-9507
Fullt nafn: Höskuldur Þór Jónsson og Margrét Hörn Jóhannsdóttir
Aldur: 15 ára
Uppáhaldsmatur?
Höskuldur: Humar og nautalundir með sósunni hennar mömmu.
Margrét: Eggaldinrúllurnar hans pabba og kjúklinga-
rétturinn hennar mömmu.
Besta minningin í Ísland Got Talent?
Fjögur STÓR JÁ.
Af hverju á fólk að kjósa ykkur?
Ef fólki finnst atriðið okkar flott, þá hjálpar
hvert einasta atkvæði til í því að láta fram-
tíðardrauma okkar rætast.
So You Think You Can Dance eða
Dancing with the Stars?
Okkur finnst skemmtilegra að horfa
á So You Think You Can Dance, þar
sem þar er meiri fjölbreytni og vær-
um alveg til í að taka þátt í þeirri
keppni. En við værum líka sjálf
alveg til í að dansa við stjörnurnar
í Dancing with the Stars.
Bubbi eða Þorgerður Katrín?
Nei takk … við erum rosa ánægð
með hvort annað.
Þrá að syngja í Game of Thrones
Óma Rómar söngur 900-9506
Bæði hæfur rappari og kynvera
Helga Haralds söngur 900-9502
Fullt nafn: Helga Haraldsdóttir
Aldur: 21 árs
Hver er draumurinn?
Að eignast bolabít af því hann lætur og hrýtur eins og
ég.
Hvaða lag tekur þú í karókí?
Ég mundi taka P.I.M.P. Þar get ég bæði sýnt fram á
það að ég sé gríðarlega hæfur rappari en á sama
tíma kynvera.
Hvaða minning stendur upp úr úr Ísland Got
Talent?
Þegar ég faðmaði Auðun Blöndal fyrst. Það var
vandræðilegt en þess virði!
Jón Jónsson eða Þórunn Antonía?
Við yrðum svooo gott tríó!
Tekur Elvis í karókí
Ásta Birna söngur 900-9503
Fullt nafn: Ásta Birna Orellana Björnsdóttir
Aldur: 31 árs
Starf: Mamma, skrifstofudama og námsmaður
Af hverju á fólk að kjósa þig?
Af því að ég yrði þeim óendanlega þakklát! Það að fá að
syngja hefur alltaf reynst mér svo fjarlægur draumur
vegna sviðskrekks, en þessi reynsla hefur gefið mér
miklu meira en ég þorði nokkurn tímann að vona.
Hver er draumurinn?
Ég er að upplifa hann núna. Söngur og tónlist er mér
allt á eftir fjölskyldunni.
Uppáhaldslistamaður/menn?
Á í rauninni engan uppáhalds, það eru bara svo
rosalega margir flottir þarna úti, en ef ég yrði að
velja þá væru það Adele, Eva Cassidy, Bubbi og
Vilhjálmur Vilhjálmsson.
Hvaða lag tekur þú í karókí?
Love Me Tender með Elvis, sjúklega einfalt en
svo yndislega fallegt!
Hvaða minning stendur upp úr úr Ísland Got
Talent?
þegar ég kláraði lagið mitt í Austurbænum,
fólkið stóð upp og klappaði. Svo byrjuðu
dómararnir að tala og ég var engan veginn
undirbúin fyrir þau hlýju orð sem þau létu
falla. Þetta var það erfiðasta sem ég hef
gert á ævinni, en jafnframt það skemmti-
legasta.
„Þú ert komin með
fjögur glæsileg Já!“
Laufey Lín söngur og píanó
900-9504
Fullt nafn: Laufey Lín Jónsdóttir
Aldur: 14 ára
Af hverju á fólk að kjósa þig?
Til að hjálpa draumi mínum að
rætast.
Hver er draumurinn?
Að verða söngkona og tónlistar-
maður og ferðast um heiminn.
Uppáhaldslistamaður/menn?
Erfitt að velja, en Ella Fitzger-
ald, Alicia Keys, Beyonce og
Jacqueline Du Pre standa
upp úr þessa dagana.
Hvaða minning stendur
upp úr úr Ísland Got
Talent?
Þegar Þórunn Antonía
sagði: „Þú ert komin með
fjögur glæsileg Já!“
Jón Jónsson eða Þórunn
Antonía?
Það er ómögulegt að velja,
þau eru bæði í miklu upp-
áhaldi hjá mér!
Fullt nafn: Páll Valdimar Guðmundsson Kolka
Aldur: 22 ára
Starf: Pitsubakari/vaktstjóri og Jójómeistari
Af hverju á fólk að kjósa þig?
Ef fólki finnst atriðið mitt flott þá ætti það að
kjósa það.
Hver er draumurinn?
Draumurinn breytist í sífellu en akkúrat núna er
það að starta jójósenu á Íslandi.
Uppáhaldslistamaður/menn?
Svo margir … Akkúrat núna er það Mammút í tón-
list. Hef alltaf verið mikill Van Gogh-
aðdáandi í myndlist, Starry Night er
eitt af mínum uppáhaldsverkum.
Hvað er erfiðast við atriðið þitt?
Fellibylur í húfu eða corocoro, þetta
eru jójóslangurorð fyrir erfiðustu
trikkin mín í atriðunu.
Hvaða minning stendur upp úr úr
Ísland Got Talent?
Bubbi að tilbiðja mig á sviði sem jójó
gúrú.
Fullt nafn: Harpa Björk Birgis-
dóttir, Hulda Margrét Birkisdóttir, Jón
Gauti Skarphéðinsson, Ólafur Freyr
Birkisson
Af hverju á fólk að kjósa ykkur?
Af því að við bjóðum upp á eitthvað
nýtt og þorum að vera
öðruvísi. Við erum að taka eitthvað
alíslenskt og setja það í nýjan búning,
hressa upp á það.
Hver er draumurinn?
Að fá að syngja í Game of Thrones
því það væri bara svo svalt!
Uppáhaldslistamaður/menn?
Harpa: Guðmundur Óli Gunnarsson,
stjórnandi Sinfóníuhljómsveitar
Norðurlands með meiru.
Hulda: RadioHead
Jón Gauti: Daft Punk, Prodigy,
MSTRKRFT, Pendulum, Úlfur úlfur
Óli: AC/DC, Queen, Rammstein
Hvaða lag takið þið í
karókí?
Harpa: Lady in Red
Hulda: I Love Rock and Roll
Jón Gauti: Climax með
Usher
Óli: The Boys are Back in
Town
Jón Jónsson eða Þórunn
Antonía?
Harpa og Óli: Þórunn
Antonía.
Hulda: Jón Jónsson.
Jón Gauti: Jón ef hann hefði
hárið hennar Þórunnar.