Fréttablaðið - 05.04.2014, Blaðsíða 103
LAUGARDAGUR 5. apríl 2014 | MENNING | 67
Á heimasíðu tískumerkisins
Nasty Gal, nastygal.com, er hægt
að finna ótalmörg, skemmtileg
og flippuð sundföt fyrir sumarið.
Bæði er hægt að kaupa þar bikiní
og sundboli og er verðið á bilinu
tíu til tuttugu þúsund krónur.
Sophia Amoruso stofnaði Nasty
Gal árið 2006 en fyrst um sinn
seldi hún aðeins „vintage“-vörur
á uppboðssíðunni eBay. Í dag er
merkið hins vegar orðið heims-
þekkt og afar vin-
sælt og ekki
skemmir
fyrir að það
sendir vörur
til Íslands.
- lkg
Sundföt fyrir
sumarið
EKKERT
AÐ
ÞESSU
Geggjaður,
hvítur
sundbolur.
?Kæra Sigga Dögg. Stóra ástin í lífi mínu vill að ég sleiki pung-
inn á honum en ég get ekki hugsað
mér það því hann er svo loðinn. Af
hverju vilja karlmenn láta kyssa
eða gæla við punginn? Við stund-
um oft munnmök, bæði hann við
mig og ég við hann, og við kyssum
hvort annað frá hvirfli niður til
táar. En ég vil ekki fá hár í munn-
inn svo ég vil ekki gæla við pung-
inn.
SVAR Sumir karlmenn vilja láta
gæla við punginn og aðrir ekki, og
þinn elskhugi er greinilega einn
af þeim sem það kýs. Ef þér þykir
eitthvað ógeðfellt í kynlífi þá er
það alltaf þinn réttur að kjósa að
taka ekki þátt í því. Ef þú ert alfar-
ið á móti því að snerta punginn þá
getur hann séð um það á meðan þið
stundið kynlíf. Ef þú getur hugs-
að þér að gæla við hann með hönd-
unum þá er hægt að örva punginn
þannig og þá ættu hárin ekki að
trufla þig á neinn hátt. Þú gætir
prófað að setja smá sleipiefni á
hendurnar og nuddað punginn til
að gera upplifunina enn ánægju-
legri. Ef þig langar að veita honum
munnmök á punginn og hárin eru
eina fyrirstaðan þá getur þú beðið
hann um að fjarlægja þau, hvort
sem er með vaxi eða rakstri. Þetta
þurfið þið aðeins að ræða saman
og velta fyrir ykkur möguleikun-
um og komast að niðurstöðu sem
ykkur hugnast. Gangi ykkur vel.
Gælt við punginn
KYNLÍF TAKTU ÞÁTT!
Sendu Siggu Dögg póst og
segðu henni frá vandamáli
úr bólinu. Lausnin gæti
birst í Fréttablaðinu.
kynlif@frettabladid.is
Það er fátt leiðin-
legra en að vera
með snúrur út um
allt í flækju. Hér er
einföld leið til að
koma skipulagi á
heyrnartólasnúr-
urnar. Ekki skemmir
fyrir að auðvelt er að
framkvæma verk-
efnið með hlutum
sem finnast heima
fyrir.
1 Athugið hvort endi heyrnar-
tólasnúrunnar
passi í gatið á
hefðbundinni
þvottaklemmu.
2 Finnið tvær þvottaklemmur
sem eru ekki í
notkun.
3 Skreytið þvotta-klemmurnar,
annaðhvort með
límbandi eða
litum.
4 Límið þvotta-klemmurnar
saman, og látið
götin á þeim snúa
hvort frá öðru.
Með götum er átt
við þau sem eru
á þeim enda sem
klemman er.
5 Leyfið líminu að þorna alveg–
jafnvel yfir nótt.
6 Vefjið snúrunni um þvottaklemm-
urnar. Leikur
einn!
* Fengið af
Buzzfeed.com
Lumar þú á einföldu
og skemmtilegu
verkefni sem hægt
er að framkvæma
sjálfur? Sendu það
endilega á okkur á
netfangið liljakatr-
in@frettabladid.is
FÖNDRAÐU KOMDU SKIPULAGI Á SNÚRURNAR
Nánari upp-
lýsingar um
verkefnið er að
finna á Lífinu á
Visir.is
visir.is
EINSTAKLEGA SNIÐUGT
Um að gera að nýta gamlar
þvottaklemmur í þetta verkefni.
GEFÐU FERMINGARBARNINU
SKÖPUNARKRAFTINN
MEÐ GRÆJUNUM FRÁ OKKUR
Axel Sigurðsson Sif Garðarsdóttir
Frummælendur:
Axel Sigurðsson, hjartalæknir
Má varast hjarta- og æðasjúkdóma með mataræði?
Sif Garðarsdóttir, heilsumarkþjálfi frá IIN
Rétta leiðin
Ragna Björg Ingólfsdóttir, ólympíufari og áður atvinnumaður í badminton
Breytt mataræði - sem leið til árangurs í íþróttum?
Tryggvi Þorgeirsson, læknir og lýðheilsufræðingur
Máttur skynseminnar í matarvali
Fundarstjóri: Geir Gunnar Markússon, næringarfræðingur á Heilsustofnun NLFÍ.
Auk frummælenda situr fyrir svörum Sólveig Eiríksdóttir á Gló.
Allir velkomnir. Aðgangseyrir kr. 2.000.
Frítt fyrir félagsmenn.
Málþing Náttúrulækningafélags Íslands - 8. apríl 2014
Berum ábyrgð á eigin heilsu
Máttur matarins!
Gott mataræði – betri heilsa - meiri lífsgæði
Fræðslunefnd Náttúrulækningafélags Íslands efnir til málþings á Icelandair
hótel Reykjavík Natura, þingsal 1, þriðjudaginn 8. apríl 2014 kl. 19:30.
Ragna B. Ingólfsdóttir
Geir Gunnar Markússon
Tryggvi Þorgeirsson
Sólveig Eiríksdóttir
• Getur matur skapað sjúkdóma?
• Er sykur eitur fyrir líkamann?
• Má varast sjúkdóma með mataræði?
• Er matur vanmetinn sem leið til bættrar heilsu?
• Samsetning matarins, skiptir hún máli?