Fréttablaðið - 10.04.2014, Blaðsíða 34
10. apríl 2014 FIMMTUDAGUR| TÍMAMÓT | 34TÍMAMÓT
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug
við andlát og útför ástkærs sonar,
bróður og dóttursonar,
KARLS VIKARS KRISTJÁNSSONAR
sem lést 24. mars sl.
Valdís Óskarsdóttir
Kristján Karlsson
Davíð Óskar Ólafsson
Katla, Kristín Rós og Kristrún Kristjánsdætur
Rósa Ólafsdóttir
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi,
HARALDUR HERMANNSSON
frá Yzta-Mói, Fljótum,
Sauðármýri 3, Sauðárkróki,
lést á Heilbrigðisstofnuninni á Sauðárkróki
fimmtudaginn 3. apríl. Útförin fer fram frá
Sauðárkrókskirkju laugardaginn 19. apríl
kl. 11.00. Jarðsett verður að Barði í Fljótum.
Guðmunda Hermannsdóttir
Sigurhanna Ólafsdóttir
Jóhanna Petra Haraldsdóttir Jónas Svavarsson
Linda Nína Haraldsdóttir Jón Eðvald Friðriksson
Lára Gréta Haraldsdóttir Magnús Sigfússon
Þröstur Georg Haraldsson Guðrún Haraldsdóttir
Ellen Hrönn Haraldsdóttir Gunnar Björn Ásgeirsson
Stefán Logi Haraldsson Inga Sesselja Baldursdóttir
Róbert Steinn Haraldsson Erla Valgarðsdóttir
Haraldur Smári Haraldsson Eydís Eysteinsdóttir
afabörn, langafabörn og langalangafabarn.
Elskuleg eiginkona mín, móðir, stjúpmóðir,
tengdamóðir, amma, langamma og dóttir,
GUÐNÝ PÁLA RÖGNVALDSDÓTTIR
Kirkjusandi 5, Reykjavík,
lést á heimili sínu sunnudaginn 6. apríl
síðastliðinn. Útförin fer fram frá Háteigskirkju
miðvikudaginn 16. apríl næstkomandi
kl. 13.00.
Hörður Björnsson
Rögnvaldur H. Jónsson Mar Martinez
Hörður M. Harðarson
Björn Arngríms Harðarson Nanna Ólafsdóttir
Sigrún Harðardóttir Helgi Ómar Bragason
Sigurður Harðarson Hrönn Stella Jónsdóttir
Erla Kristín Harðardóttir
Álfhildur Friðriksdóttir Gunnar Halldórsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, sonur og bróðir,
VALGEIR BIRGISSON
Hlíðarhjalla 51, Kópavogi,
sem lést 26. mars, verður jarðsunginn
frá Hjallakirkju í dag, fimmtudaginn 10.
apríl, kl. 13.00.
Valgerður Jóhannesdóttir
Helgi Fannar Valgeirsson Guðrún Þ. Jónsdóttir
Jóhannes Ingi Valgeirsson
Birgir Kristjánsson Elín Ellertsdóttir
og systkini hins látna.
Ástkær móðir mín,
tengdamóðir, amma og langamma,
ÓLÖF ODDNÝ JÓHANNA
ÓLAFSDÓTTIR
lést á Dvalarheimilinu Hlíð á Akureyri 6.
apríl sl. Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju
14. apríl kl. 13.30. Blóm og kransar
vinsamlegast afþökkuð en þeim sem vilja
minnast hennar er bent á Dvalarheimilið Hlíð á Akureyri.
Hjörtur og Steingerður,
Karl, Ólöf og fjölskyldur.
Útför elsku mannsins míns, pabba,
tengdapabba og afa,
FRIÐRIKS THEODÓRSSONAR
fer fram frá Hallgrímskirkju föstudaginn 11.
apríl kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hans
er vinsamlegast bent á að styrkja Lúðrasveit
Reykjavíkur, kt. 440269-1929, reikn.nr. 0137-26-10090.
Edda Völva Eiríksdóttir
Hildur Friðriksdóttir Jóhannes Albert Sævarsson
Hrefna Friðriksdóttir Hörður Sigurðarson
Halla Rún Friðriksdóttir Jón Benóný Reynisson
barna- og barnabarnabörn.
Kær systir mín, mágkona og frænka,
ANNA GUÐMUNDSDÓTTIR
hússtjórnarkennari,
Reynimel 36,
lést sunnudaginn 6. apríl. Útför hennar
verður gerð frá Neskirkju þriðjudaginn
15. apríl kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast
hennar er bent á Krabbameinsfélagið.
Jóhannes Guðmundsson Guðrún María Tómasdóttir
Jóhanna Guðbjörnsdóttir
Þuríður Guðbjörnsdóttir
Tómas Jóhannesson
Helgi Jóhannesson
Sigríður Jóhannesdóttir
Guðmundur Þorri Jóhannesson
og fjölskyldur.
Ástkærir foreldrar okkar,
tengdaforeldrar, amma
og afi, langamma og
langafi eru látin. Jarðarför
MARGRÉTAR MAGNÚSDÓTTUR
sem lést 30. mars, er frestað vegna andláts eiginmanns hennar,
GUÐMUNDAR SIGURÞÓRSSONAR
þann 2. apríl. Sameiginleg útför þeirra hjóna verður frá
Grafarvogskirkju föstudaginn 11. apríl kl. 11.00. Þeim sem vilja
minnast þeirra er bent á Landspítalann.
Erna Bjargey Guðmundsdóttir Rúnar Vernharðsson
Sigurþór Guðmundsson Ólöf Ásta Þorsteinsdóttir
Margrét Rúnarsdóttir
Berglind Rúnarsdóttir Þráinn Árni Baldvinsson
Nanna Björk Rúnarsdóttir Björn Unnar Valsson
Auður Ýr Sigurþórsdóttir Veigar Pálsson
Guðmundur Sigurþórsson
Bryndís Ýr Sigurþórsdóttir
og barnabarnabörn.
„Það eru liðin fjörutíu ár frá því að
Grindavíkurhreppur varð að kaup-
stað,“ segir Róbert Ragnarsson, bæj-
arstjóri Grindavíkur, en bærinn fagn-
ar í dag fjörutíu ára kaupstaðarafmæli
sínu. „Hreppurinn sjálfur er nú samt
búinn að vera til staðar síðan á land-
námsöld.“
Í tilefni dagsins verður heljarinnar
afmælisdagskrá í bænum. „Við erum
búin að vera með viðburði allt árið
og munum halda því áfram,“ segir
Róbert. „Það verður hátíðarbæjar-
stjórnarfundur klukkan fimm með
forseta Íslands og þar verða heiðurs-
viðurkenningar og síðan eru skemmt-
anir úti um allan bæ,“ segir bæjar-
stjórinn en dagskrá hátíðarhaldanna
má finna á heimasíðu bæjarins. Þar
er að finna allt frá uppistandi Ara Eld-
járn til Grindavíkur króniku á kaffi-
húsi Bryggjunnar. „Síðan er bóka-
safnið okkar að flytja í nýja og betri
aðstöðu og ákváðum við að nýta tæki-
færið í tilefni afmælisins og gefa bæj-
arbúum afmælisgjöf,“ segir Róbert en
allar sektir bókasafnsins verða lagð-
ar niður í dag. „Við ákváðum að fella
niður allar skuldir þeirra sem eiga
eftir að skila til þess að vera viss um
að bækurnar skili sér á nýja safnið.“
Ekki nóg með að kaupstaðurinn sjálfur
eigi fjörutíu ára afmæli heldur er sund-
laug bæjarins einnig tuttugu ára og
bókasafnið hundrað og tíu ára gamalt.
Bæjarstjórinn hvetur alla sem hafa
tök á að mæta. „Það er gaman fyrir
íbúa höfuðborgarinnar að koma og
upplifa þessa sjávarútvegsstemningu,“
segir Róbert. „Hér erum við með líf-
lega höfn og mikið um að vera.“
baldvin@frettabladid.is
Grindavíkurhreppur
varð kaupstaður
Grindavíkurbær fagnar í dag fj örutíu ára kaupstaðarafmæli sínu við mikil hátíðarhöld, en
kaupstaðurinn var áður Grindavíkurhreppur sem hafði verið til síðan á landnámsöld.
FALLEGUR BÆR Grindavíkurbær er með líflega höfn. MYND/ÞORSTEINN GUNNARSSON
MERKISATBURÐIR
1912 - Titanic lagði úr höfn í Southampton á Englandi.
1933 - Togarinn Skúli fógeti strandaði vestan við Staðarhverfi
í Grindavík. Tólf menn fórust og höfðu þeir allir farist áður en
björgunarmenn komu á vettvang.
1940 - Alþingi fól ríkisstjórninni konungsvald eftir að Þjóðverjar
hernámu Danmörku.
1956 - Friðrik 9. Danakonungur og Ingiríður drottning hans
komu í fjögurra daga opinbera heimsókn til Íslands.
1970 - Paul McCartney gaf út yfirlýsingu þess efnis að Bítlarn-
ir væru hættir.
2010 - Lech Kaczyński, forseti Póllands fórst í flugslysi ásamt 95
öðrum í grennd við borgina Smolensk í Rússlandi.