Fréttablaðið - 10.04.2014, Side 56
10. apríl 2014 FIMMTUDAGUR| MENNING | 44
FIMMTUDAGUR
HVAÐ?
HVENÆR?
HVAR?
10. APRÍL 2014
Leiklist
20.00 Leikverkið Útundan eftir Alison
Farina McGlynn í uppsetningu leik-
hópsins Háaloftið verður frumsýnt í
Tjarnarbíói í kvöld og hefst sýningin
klukkan 20.00. Í verkinu er varpað ljósi
á aðstæður sem hrjá eitt af hverjum
sex pörum hér á landi sem og í hinum
vestræna heimi í dag. Skyggnst er inn
í líf þriggja para á fertugsaldri sem þrá
að eignast barn en tekst það ekki. Þau
leita ýmissa leiða til að láta drauminn
rætast og standa frammi fyrir margs
konar erfiðum spurningum. Leikarar
eru þau Arnmundur Ernst Backman,
Benedikt Karl Gröndal, Björn Stefáns-
son, Elma Lísa Gunnarsdóttir, Magnús
Guðmundsson, María Heba Þorkels-
dóttir, Svandís Dóra Einarsdóttir. Leik-
stjóri er Tinna Hrafnsdóttir.
Kynningar
14.00 Kynning á japanskri tungu og
menningu verður haldin í dag klukkan
14.00 til 17.00 á Háskólatorgi í Háskóla
Íslands. Þar verður gestum og gangandi
boðið að kynnast ýmsum atriðum
sem tengjast japönsku máli og menn-
ingu. Japönskukynningin er hluti af
Asískri tungumálaveislu Café Lingua
og er haldin í samvinnu nemenda og
kennara í japönsku við Háskóla Íslands,
Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur og
Café Lingua.
Dansleikir
20.00 Salsamafían, Háskóladans-
inn, heldur dansleik á Kexi Hosteli,
Skúlagötu 28, í Gym (hliðarsal) í kvöld.
Danskennsla verður frá klukkan 20
til 20.30 og dansleikur frá 20.30 til
23.00. Þar verður þeytt skífum auk þess
sem fram kemur ný danshljómsveit,
Mafíuband Tómasar R., ásamt söng-
konunni Margréti Rán Þorbjörnsdóttur.
Hljómsveitina skipa auk söngkonunnar
Margrétar og bassaleikarans Tómasar
þau Aðalheiður Þorsteinsdóttir píanó-
leikari, Kristófer Rodríguez Svönuson á
slagverk og Arnar Ingi Richardsson sem
raddar og spilar á slagverk. Aðgangs-
eyrir er 1.500 krónur.
Uppistand
21.30 Tilraunauppistönd eru
uppistönd þar sem nýir grínistar fá
að spreyta sig og reyndari grínistar
prófa nýtt efni og halda sér í formi.
Þetta verður tuttugasta uppistandið,
en þau byrjuðu í janúar 2013 og eru
mánaðarlega á Bar 11, auk þess að
fara út á land við og við. Fram koma,
Leifur Leifsson (Öryrkinn óstöðvandi),
Marlon Pollock, Bylgja Babýlons,
Salómon Smári Óskarson, Sigurður
Anton Friðþjófsson og Andri Ívarsson.
Rökkvi Vésteinsson er kynnir og sér-
stakur gestur er Gunnar Hrafn Jónssson
(fyndnasti maður Íslands 2012). Það
er alltaf ókeypis á Tilraunauppistönd.
Uppistandið hefst klukkan 21.30.
Tónlist
11.30 Tectonics-tónlistarhátíðin
sem hleypt var af stokkunum í mars-
mánuði fyrir tveimur árum hefur hlotið
einróma lof innan lands sem utan. Á
hátíðinni slást heimamenn í tónlist í
för með Sinfóníuhljómsveit Íslands og
kynna fjölbreytt verk á nýjan og ein-
stæðan máta. Ýmis rými Hörpu ásamt
ólíkum eiginleikum og hljóðvistarlands-
lagi tónleikasala hússins verða nýtt til
hins ýtrasta. Taka þrjú á Tectonics verð-
ur áframhaldandi leiðangur flytjenda
og hlustenda um magnaðar hljóðlendur
og ómrými Hörpu. Á Tectonics leiða
saman hesta sína tónlistarmenn ólíkra
heima þar sem óendanlegur fjölbreyti-
leiki tónlistarinnar opnast áheyrendum
sem vilja fanga hið óvænta. Ilan Volkov
er listrænn stjórnandi. Hátíðin hefst
klukkan 11.30.
20.00 Lily of the valley og MOSI
koma fram á „kózý Organic electro
love pop“ og þjóðlagaskotnum sálar-
rokk tónleikum á Hlemmur Square
í kvöld klukkan 20.00. Frítt er inn á
tónleikana. Hlemmur Square er við
Laugaveg 105.
20.00 Sönghópurinn Norðurljós heldur
tónleika í Kópavogskirkju í kvöld klukk-
an 20.00. Stjórnandi er Arnhildur
Valgarðsdóttir, undirleikari
er Lilja Eggertsdóttir,
einsöng syngur Arn-
þrúður Ösp Karls-
dóttir, einleikur
er í höndum
Ragnars Jóns-
sonar og á fiðlu
leikur Ágústa
Dómhildur.
Miðaverð er
2.000 krónur
en 1.000
krónur fyrir
eldri borgara
og öryrkja. Frítt
fyrir 12 ára
og yngri, ekki
verður posi á
staðnum.
20.00 Í kvöld klukkan 20.00 verða
Passíusálmar 18 til 33 fluttir í Grafar-
vogskirkju. Fluttir verða sálmar 18 til
33, sem hafa fæstir heyrst opinberlega
áður. Megas og Magga Stína syngja
ásamt kórnum Vox Populi, sem er ung-
mennakór starfandi í Grafarvogskirkju
undir stjórn Hilmars Arnar. Hljóm-
sveitin Moses Hightower leikur með og
setur sinn sérstaka svip á sálmana.
21.00 Það verður Soul og R&B á Bast
í boði Fox Train Safari í kvöld klukkan
21.00. Það er frítt inn og þú dansar til
að gleyma. Bast stendur við Hverfisgötu
22.
22.00 Andrea Gylfadóttir og Eðvarð
Lárusson halda tónleika á Ob-La-
Dí-Ob-La-Da, Frakkastíg 8, í kvöld
klukkan 22.00.
Fyrirlestrar
20.00 Nathan Woodhead frá The
Brooklyn Brothers verður með
fyrirlestur um frásagnir og samskipti á
þeirri miklu tækniöld sem við lifum á,
í Listasafni Reykjavíkur og hefst hann
klukkan 20.00.
Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@
frettabladid.is og einnig er hægt að skrá
þá inni á visir.is.
ANDREA
GYLFADÓTTIR
Sony Center
Verslun Nýherja Borgartúni og Kringlunni / 569 7700
Verslun Nýherja Kaupangi Akureyri / 569 7645
Spennandi framtíð
FERMING 2014
ACTIONCAM - SMÍÐUÐ FYRIR ÆVINTÝRI
HDRAS30VB
Full HD upptökuvél með Carl Zeiss Tessar linsu
Sterkbyggð og vatnsheld (í köfunarhylki)
Mögnuð hristivörn og GPS
Bike eða Wearable Kit fylgir
VERÐ 64.990.-
POTTÞÉTTUR OG VATNSHELDUR XPERIA
SONY XPERIA Z ANDROID SNJALLSÍMI
5” TFT snertiskjár með HD upplausn
13 megapixla myndavél, LED flass
HD videoupptaka
TILBOÐ 79.990.- VERÐ ÁÐUR 139.990.-
Fermingartilboð
79.990.-
Fermingartilboð
99.990.-
EINN SÁ SNJALLASTI Í HEIMI
SONY XPERIA Z1 ANDROID SNJALLSÍMI
4.3” TFT snertiskjár með HD upplausn
20.7 megapixla myndavél, LED flass
HD videoupptaka
TILBOÐ 99.990.- VERÐ ÁÐUR 109.990.-
HÁRFÍN HLJÓMGÆÐI MEÐ NOICE CANCEL
MDRNC8
30mm hátalarar
Noice Cancel þurrkar út utanaðkomandi hljóð
Lengd kapals 1.2m
TILBOÐ 9.990.- VERÐ ÁÐUR 12.990.-
Fermingartilboð
9.990.-
www.sonycenter.is
smá
SONY CENTER
Í KRINGLUNNI
NÝ VERSLUN
GEFÐU FERMINGARBARNINU
SKÖPUNARKRAFTINN
MEÐ GRÆJUNUM FRÁ OKKUR