Fréttablaðið - 10.04.2014, Blaðsíða 4
10. apríl 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 4
1992 voru fyrstu korntonn-in skorin á Íslandi
og hefur uppskera verið nokkur æ
síðan.
Fyrstu árin var hún um 400 tonn en
hún náði hægt og bítandi 10.000
tonnum árið 2004. Uppskeran fór yfir
16.000 tonn árin 2009 og 2012. Upp-
skeran náði ekki 6.000 tonnum í fyrra.
BANDARÍKIN, AP Unglingur gekk
berserksgang vopnaður hnífi í
menntaskóla í Pennsylvaníu í
Bandaríkjunum í gær.
Að minnsta kosti 20 særðust
í árásinni. Sjö nemendur á aldr-
inum fjórtán til sautján ára og
einn öryggisvörður voru flutt-
ir á sjúkrahús. Allir eru alvar-
lega slasaðir. Fórnarlömbin voru
stungin í kvið, brjóst og bak.
tveir þurftu að gangast undir
bráðaskurðaðgerð.
Árásarmaðurinn, sem er
nemandi í skólanum, náðist og
var settur í varðhald, eftir að
gert hafði verið að sárum hans
á sjúkrahúsi. Hann meiddist á
höndum í árásinni. - jm
Minnst 20 særðust í árás:
Nemandi gekk
berserksgang
ÁFALL Nemandi við skólann ásamt
föður sínum skömmu eftir árásina.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
FJÖLSKYLDA Boðið er upp á forskot
á páskasæluna með páskaeggjaleit
í Viðey á laugardaginn, viku fyrir
páska.
Leikurinn gengur út á að finna
sem flest lítil páskaegg en einnig
verða stærri vinningar. Leitin
verður ræst kl. 13.30 við Við-
eyjarstofu og afmörkuð verða
leitarsvæði, þar á meðal eitt fyrir
yngstu kynslóðina.
Ekkert þátt töku gjald er í páska-
eggjaleitinni en gestir greiða ferju-
toll og mælst er til að þátttakendur
skrái sig til leiks með því að bóka
far með ferjunni. - ebg
Fjölskylduleikur í Viðey:
Páskaeggjaleit
um helgina
PÁSKAEGGJALEIT Metþátttaka var í
fyrra í Viðey. AÐSEND MYND/REYKJAVÍK
UTANRÍKISMÁL Stefán Haukur
Jóhannesson sendiherra hélt í
gær til starfa í
nýstofnaðri eftir-
litssveit ÖSE í
Úkraínu.
Hann mun fara
fyrir einu af tíu
teymum eftirlits-
manna í landinu,
en teymi hans
verður í höfuð-
borginni Kænu-
garði og héraðinu þar í kring.
Stefán Haukur á að baki mikla
reynslu sem samningamaður og
leiddi til dæmis til lykta samninga
um inngöngu Rússlands í Alþjóða-
viðskiptastofnunina. - ebg
Sendiherra fer til Úkraínu:
Fer fyrir teymi
eftirlitsmanna
STEFÁN HAUKUR
JÓHANNESSON
REYKJAVÍK Vegna mikils magns
af sandi sem var dreift í vetur í
hálkunni á göngu- og hjólastíga
borgarinnar, er mikið verk að
vinna við hreinsun fyrir páska.
Síðustu daga hefur verið gróf-
sópað og gert er ráð fyrir að hefja
götuþvott í næstu viku. Lóðir við
skóla verða spúlaðar í páskafrí-
inu.
Íbúar eru beðnir um að liðka til
fyrir hreinsun með því að færa
bíla úr götum sem verið er að
hreinsa hverju sinni. - ebg
Borgin í páskahreinsun:
Mikill sandur
eftir veturinn
NOREGUR Skólayfirvöld í Noregi
hafa samþykkt stofnun grunn-
skóla fyrir börn múslíma í Ósló í
haust fyrir 200 börn.
Óslóarborg er mótfallin stofn-
un slíks skóla vegna slæmrar
reynslu. Grunnskóli fyrir börn
múslíma var starfræktur frá
2001 til 2004 og var hann mjög
umdeildur. Samkvæmt borgar-
yfirvöldum eru flestir í stjórn
skólans þeir sömu og áður.
Á fréttavef Aftenposten kemur
fram að rekstrarleyfi hafi enn
ekki verið veitt. - ibs
Norsk skólayfirvöld:
Skóli fyrir börn
múslíma í Ósló
ALÞINGI Helgi Hjörvar, þingmað-
ur Samfylkingar, vakti athygli á
ágalla skuldaleiðréttinga ríkis-
stjórnarinnar á þingfundi í gær.
Benti hann á að þeir sem hefðu
fengið lögformlega skuldaleið-
réttingu áður, svo sem 110% leið-
ina, fengju það dregið frá leið-
réttingu nú en ekki þeir sem hafa
fengið sambærilegar leiðrétting-
ar í gegnum frjálsa samninga í
bönkunum, svo sem greiðslu-
aðlögun eða endurgreiðslu á
vaxtakostnaði.
„Þeir sem áttu í góðum
tengslum og viðskiptum við bank-
ana og þurftu ekki að fara lög-
formlegar leiðir fá nú sérstakan
tékka frá ríkisstjórninni ofan á
hina frjálsu samninga, kannski
um leið og þeir leggja fyrir fyrir
auðlegðarskatti sínum. Þetta er
ótrúlega ósanngjarnt,“ sagði
Helgi í ræðu sinni.
Sigrún Magnúsdóttir, þing-
maður Framsóknarflokks, svar-
aði Helga og var nokkuð heitt í
hamsi. „Mér finnst mjög slæmt
þega r men n
s e m k e n n a
sig við félags-
hyggjuflokka á
góðum stund-
um, geri lítið
úr því þegar
verið er að rétta
80% heimila á
Íslandi hjálpar-
hönd. Ég kann ekki að meta þetta
og segi það alveg hreint út,“ var
svar Sigrúnar.
- ebg
Helgi Hjörvar gagnrýnir að fyrri aðgerðir dragist frá sumum en ekki öðrum:
Óréttlátar skuldaleiðréttingar
HELGI HJÖRVAR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is,
Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is
FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Kolbeinn Kolbeinsson kolli@365.is,
FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
SVONA ERUM VIÐ
Gæði fara aldrei úr tísku
Mest seldu ofnar á Norðurlöndum
10 ára ábyrgð
EFNAHAGSMÁL „Því fylgir áhætta
að taka engin skref við losun
hafta,“ sagði Ásdís Kristjánsdótt-
ir, forstöðumaður efnahagssviðs
Samtaka atvinnulífsins, á fundi
samtakanna í gær þar sem kynnt
var fyrsta hagspá sviðsins.
Sviðið spáir þriggja prósenta
hagvexti á næstu árum sem verði
einkum drifinn áfram af innlendri
eftirspurn; einkaneyslu sem og
fjárfestingu. Ásdís sagði þetta
vera breytingu frá því sem átti sér
stað á síðasta ári þegar hann var
drifinn áfram af utanríkisverslun.
„Það má í raun segja að samsetn-
ing hagvaxtarins sé að breytast,“
sagði Ásdís og bætti við að ferða-
þjónusta myndi áfram gegna lykil-
hlutverki en framlag innlendrar
eftirspurnar aukast.
Sviðið telur að hagkerfið sé í
mjög viðkvæmri stöðu, einka-
neysludrifinn hagvöxtur muni
ekki skapa okkur gjaldeyri á kom-
andi árum og því óttist sviðið að
gjaldeyrisafgangur þjóðarbús-
ins muni nánast hverfa. „Þetta er
áhyggjuefni vegna þess að frum-
forsenda þess að við getum losað
um höftin er að við sjáum hér
útflutningsdrifinn hagvöxt,“ sagði
Ásdís.
Hún lagði áherslu á að snjó-
hengjan hyrfi ekki af sjálfu sér
heldur stækkaði eftir því sem á
líður. Sviðið flokkaði snjóhengj-
una í þrennt, í fyrsta lagi krónu-
eignir í höndum erlendra aðila, í
öðru lagi þrotabú föllnu bankanna
þar sem lánalengingar þyrftu að
koma til og afskriftir á krónueign-
um erlendra kröfuhafa og í þriðja
lagi nýja snjóhengju, sem væru
innlendir aðilar, það er að segja
lífeyrissjóðir og
aðrir innlendir
fjárfestar. Ásdís
áætlaði að um
þrjátíu prósent
af þeirri upp-
hæð myndu leita
í fjárfestingar
erlendis til að
dreifa áhættu
sinni. Hún taldi
mikilvægt að víkka út gjaldeyris-
útboð Seðlabankans og hleypa inn-
lendum aðilum að. „Við erum að
velta upp þeirri spurningu hvort
kominn sé tími á að hleypa þeim
jafnframt að gjaldeyrisútboðunum
í gegnum útleiðina. Þá værum við
komin með mælikvarða á hversu
þolinmóðir eða óþolinmóðir þessir
fjárfestar væru,“ sagði Ásdís.
Sigríður
Benedikts-
dóttir, fram-
kvæmdastjóri
fjármálastöð-
ugleikasviðs
Seðlabankans,
sagðist efast
um að lífeyris-
sjóðirnir hefðu
áhuga á að fara
með fjármuni út í gegnum gjald-
eyrisútboðin á því háa gengi sem
aflandskrónueigendur færu út með
þá. „Það er verið að taka afslátt
fyrir erlenda gjaldeyrinn, lífeyr-
issjóðirnir eru fremur að koma inn
á móti til að fá fleiri krónur fyrir
gjaldeyrinn sinn heldur en ella,“
sagði Sigríður.
fanney@frettabladid.is
Lífeyrissjóðir mynda
nýja snjóhengju
Efnahagssvið Samtaka atvinnulífsins spáir þriggja prósenta hagvexti á næstu
árum sem verði drifinn áfram af einkaneyslu og aukinni fjárfestingu. Víkka þurfi
út gjaldeyrisútboð Seðlabankans og hleypa innlendum aðilum að.
EINKANEYSLUDRIFINN HAGVÖXTUR Samtök atvinnulífsins hafa áhyggjur af því
að hagvöxtur sé ekki lengur drifinn áfram af utanríkisverslun. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI
ÁSDÍS
KRISTJÁNSDÓTTIR
SIGRÍÐUR
BENEDIKTSDÓTTIR
Ingibjörg Karlsdóttir
veðurfréttamaður
Veðurspá
SVALT Í DAG í norðanátt með björtu veðri sunnan til en hlýnar á morgun með
talsverðri rigningu sunnanlands en slyddu og svo rigningu norðan til. Kólnar á ný í
norðanátt á laugardag með snjókomu eða éljum norðanlands en björtu sunnan til.
-1°
7
m/s
3°
9
m/s
5°
7
m/s
5°
8
m/s
Strekkingur
eða
allhvasst
fram eft ir
degi.
Strekkingur
austan til
fram eft ir
degi.
Gildistími korta er um hádegi
14°
25°
8°
19°
18°
7°
18°
9°
9°
22°
17°
22°
22°
21°
20°
8°
12°
17°
6°
7
m/s
7°
4
m/s
5°
3
m/s
0°
6
m/s
2°
4
m/s
1°
7
m/s
0°
5
m/s
6°
4°
1°
-2°
4°
4°
2°
0°
2°
-1°
Alicante
Aþena
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
LAUGARDAGUR
Á MORGUN