Fréttablaðið - 10.04.2014, Blaðsíða 67
FIMMTUDAGUR 10. apríl 2014 | LÍFIÐ | 55
„Okkar vantar fleiri sögur um konur. Þær
hafa kannski ekki fengið næga félagslega
hvatningu til að segja frá reynslu sinni því
skilaboðin hafa oft verið sú að sagan sem
karlmenn segi sé mikilvægari. Því þarf
að hvetja þær áfram,“ segir Dögg Móses-
dóttir, verkefnastjóri Doris Film-verkefnis-
ins á Íslandi og Wift (Women in Film and
Television) sem nú standa fyrir handrita-
samkeppni fyrir konur á öllum aldri. „Þetta
verkefni byrjaði árið 1999 í Svíþjóð þegar
óskað var eftir handritum eftir konur og
bárust yfir 400 handrit. Það var svolítið
þvert á það sem Kvikmyndasjóður hafði
sagt, að konur væru ekki í því að skrifa
handrit,“ segir Dögg og heldur áfram: „Þau
verkefni sem verða valin núna eiga eftir að
njóta sín mjög vel og munu gera sitt til að
auka vægi kvenna innan kvikmyndageirans
en sem betur fer er heimurinn að vakna til
meðvitundar og óskað er eftir sögum sögð-
um frá sjónarhóli kvenna.“
Handritasamkeppnin er opin öllum
konum og er beðið um eina tillögu að stutt-
myndahandriti sem fyllir A4-blað. Keppnin
er nafnlaus í fyrstu umferð og skilafrestur
er til 1. maí næstkomandi.
Rafrænt umsóknareyðublað og nánari
upplýsingar má finna á heimasíðu Wift á
Íslandi, wift.is, undir „um Doris“. - mm
Konur ættu að vera í lykilhlut verkum í kvikmyndabransanum
Dögg Mósesdóttir hvetur konur til að taka þátt í handritasamkeppni á vegum Doris Film og Wift til að auka vægi kvenna í kvikmyndum
VANTAR KONUR
Dögg Mósesdóttir
segir þau handrit
sem verða valin
eiga eftir að njóta
sín vel.
Söngkonan Debbie Harry viður-
kennir að hún sé tvíkynhneigð
í viðtali við breska dagblaðið
The Daily Mail. Oft hefur verið
spekúl erað um kynhneigð Harry
en hún segist laðast jafn mikið að
konum og körlum.
„Ég veit ekki hvort kynið ég
tek fram yfir. Mestu máli skiptir
að viðkomandi sé með gott skop-
skyn og elski kynlíf. Hvað get-
urðu beðið um meira?“
Harry afþakkaði að koma
fram á Ólympíuleikunum í Sotsjí
í febrúar vegna afstöðu Rússa í
garð réttinda samkynhneigðra.
Er tvíkynhneigð
KONUR OG KARLAR Debbie Harry
segist laðast jafn mikið að konum og
körlum. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTYIMAGES
Leikkonan Scarlett Johansson
segir viðurnefni sitt ScarJo vera
niðurlægjandi.
„Þessi stytting minnir mig bara
á poppstjörnur,“ segir Scarlett
í viðtali við tímaritið Glamour.
„Það er svo asnalegt og eiginlega
ofbeldisfullt og því niðurlægj-
andi,“ segir Scarlett, sem er ekki
par sátt við nafnbótina. Leikkon-
an á von á sínu fyrsta barni með
blaðamanninum Romain Dauriac,
en þungunin heldur henni ekki frá
störfum sínum þar sem hún leikur
í stórmyndunum Captain Amer-
ica: The Winter Soldier og Under
the Skin sem koma báðar út í ár.
Ekki sátt við
viðurnefnið
SCARLETT JOHANSSON Glæsileg kona.
➜ Samkeppnin er
opin öllum konum
og er beðið um
eina stutta tillögu
að stuttmynda-
handriti sem fyllir
A4-blað.