Fréttablaðið - 10.04.2014, Side 16

Fréttablaðið - 10.04.2014, Side 16
10. apríl 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 16 Niðurföll og ofnar í baðherbergið EVIDRAIN Mikið úrval – margar stærðir COMPACT VERA 30cm 8.790,- Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is Reykjavík Reykjanesbæ PROLINE 60 cm 23.990,- VITA handklæðaofn 50x80 cm kúptur, króm – FULLT HÚS ÆVINTÝRA ellingsen.is AKUREYRI • Tryggvabraut 1-3 • Sími 460 3630 • mánud.–föstud. 10–18 • laugard. 10–16 REYKJAVÍK • Fiskislóð 1 • Sími 580 8500 • mánud.–föstud. 10–18 • laugard. 10–16 Leitaðu ráða hjá okkur. Hjá Ellingsen starfa sérfræðingar í öllum deildum. Við veitum faglega og vandaða ráðgjöf og finnum réttu vörurnar sem uppfylla þínar þarfir. Við seljum eingöngu þrautreyndar hágæðavörur sem henta fyrir íslenskar aðstæður. PI PA R\ TB W A • S ÍA • 1 41 11 4 Ellingsen-mótaröðin í haglabyssuskotfimi hefst 21. apríl. Fyrsta mótið í þriggja móta röð verður mánudaginn 21. apríl, annan í páskum, á skotæfingasvæði Skotreyn. Mæting kl. 10.30 og skráning á staðnum. Keppt er í byrjendaflokki og flokki fyrir lengra komna. Samanlagður árangur í 3 mótum ræður úrslitum. Ellingsen-mótaröðin í HAGLABYSSU- SKOTFIMI BROWNING A5, hálfsjálfvirk hagla- byssa í verðlaun fyrir 1. sæti í hvorum flokki. ÚKRAÍNA, AP Vladimír Pútín, for- seti Rússlands, hótaði í gær að loka á reikningsviðskipti Úkraínu vegna gaskaupa landsins frá Rúss- landi og fullyrti að Úkraínumenn fengju eingöngu það sem þeir hefðu greitt fyrir. Aðgerðin hefði í för með sér alvarlegar efnahagslegar afleið- ingar fyrir Úkraínu, en þjóðin rambar á barmi gjaldþrots. Rússar hafa ítrekað reynt að beita Úkraínu efnahagslegum þvingunum frá forsetanum fyrr- verandi, Viktor Janúkovítsj, var steypt af stóli eftir margra mán- aða mótmæli í landinu. Talið er að um helmingur gass sem notað er í Úkraínu sé keyptur frá Rússlandi. Pútín hélt fund með ráðherr- um á heimili sínu í Moskvu í gær, þar sem hann fullyrti að þessar aðgerðir væru í samræmi við samning Rússa og Úkraínumanna um gasviðskipti. Orkumálaráð- herra Úkraínu, Júrí P rodan, segir að Úkra- ínumenn muni ek k i g r e ið a Rússum fyrir innkaup mars- mánaðar fyrr en samningur náist um verðið. Hann hafnar nýju og hækkuðu verði af Rússlands hálfu og full- yrðir að Úkraína hafi ekki notað neitt rússneskt gas í mánuðinum. Rússar hafa þegar dregið úr afslætti á gasi í viðskiptunum við Úkraínu með þeim afleiðingum að verð á gasi til landsins tvöfaldaðist. Í gær vöruðu yfirvöld í Kænu- garði við því að mótmælendur hlið- hollir Rússum yrðu beittir valdi ef þeir stöðvuðu ekki aðgerðir sínar og yfirgæfu stjórnarbyggingarnar sem þeir hafa á valdi sínu. Hústöku- fólki var gefinn tveggja sólarhringa frestur. Arsen Avakov, innanríkis- ráðherra Úkraínu, lýsti því yfir í gær að umsátursmenn fengju tvo úrslitakosti, að yfirgefa bygging- arnar ellegar yrði öryggissveitum beitt til að kveða óeirðirnar niður. Skömmu áður en afarkostirnir voru kynntir slepptu hústökumenn hátt í sextíu gíslum, sem þeir höfðu haft í haldi, í byggingu öryggis- sveitanna í Luhansk. Í næstu viku funda fulltrúar Evrópusambands- ins með fulltrúum Rússlands og Úkraínu í þeirri von að lausn finn- ist á málinu. julia@frettabladid.is Pútín hótar að krefj- ast staðgreiðslu á gasi Verð á gasi hefur nú ríflega tvöfaldast í Úkraínu en um helmingur gassins sem notað er í landinu kemur frá Rússlandi. Aðgerðirnar munu hafa alvarlegar afleið- ingar fyrir Úkraínu sem gengur í gegnum miklar efnahagslegar þrengingar. VLADIMÍR PÚTÍN HLIÐHOLL RÚSSUM Grímuklæddir mótmælendur hliðhollir Rússum við götuvígi við stjórnarbyggingarnar í Dónetsk í Úkraínu í gær. Arsen Avakov, innanríkisráðherra Úkraínu, segir að mótmælum verði að ljúka á næstu sólarhringum. FRETTABLAÐIÐ/AP HVALVEIÐAR Sigurður Ingi Jóhanns- son, sjávarútvegs- og landbúnaðar- ráðherra, vonast til þess að Norð- menn komi til Íslands í sumar til að fylgjast með hvort hvalveiðar séu stundaðar á mannúðlegan hátt. „Ég veit ekki annað en að svo verði og það hefur staðið til í nokk- uð langan tíma. Menn hafa verið að reyna að tryggja fjármagn til þess að það geti orðið. Það þarf auð- vitað að kaupa þessa sérfræðinga að,“ sagði hann á Alþingi eftir fyr- irspurn Edwards Huijbens, þing- manns Vinstri grænna. Þar vísaði Edward til fréttar Fréttablaðsins þess efnis að þrír fjórðu hlutar Íslendinga teldu mikilvægt að hval- veiðar færu fram á mannúðlegan hátt. Engar upp- lýsingar eru til um með hvaða hætti hvalveið- ar við Ísland eru stundaðar með tilliti til dýravel- ferðar. Sigurður Ingi sagði að hvalveið- ar Íslendinga eins mannúðlegar og hægt væri. „Mér finnst mjög gott að það skuli vera mjög ríkur vilji hjá Íslendingum og að það skuli vera skoðun þeirra að hvalir skuli veiddir á eins mannúð- legan hátt og hægt er eins og aðrar skepnur sem við aflífum til þess að búa til mat fyrir mannkynið.“ - fb Segir veiðarnar eins mannúðlegar og mögulegt sé: Norskir sérfræðingar á leiðinni til landsins HVALUR Reynt er að tryggja fjármagn til að hægt verði að fá norska sérfræðinga til Íslands. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM SIGURÐUR INGI JÓHANNSSON

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.