Fréttablaðið - 10.04.2014, Blaðsíða 72
10. apríl 2014 FIMMTUDAGUR| SPORT | 60
Bayern og Atletico í undanúrslit FÓTBOLTI Stórliðin Barcelona og Man. Utd féllu úr leik í Meistara-
deildinni í gær. Bayern og Atletico
Madrid komust aftur á móti í und-
anúrslit.
Bayern lagði Man. Utd, 3-1, og
4-2 samanlagt. Man. Utd komst
yfir í leiknum.
Atletico lagði Barcelona 1-0 og
2-1 samanlagt. Koke skoraði eina
mark leiksins strax á 5. mínútu
leiksins sem var frábær skemmtun
frá fyrstu mínútu. - hbg
visir.is
Frekari umfjöllun
um Meistaradeildina
HANDBOLTI Snorri Steinn Guðjóns-
son er að klára sitt ellefta tímabil
sem atvinnumaður í handbolta en
þessi 32 ára leikstjórnandi held-
ur á vit nýrra ævintýra í sumar.
Þá gengur hann í raðir Sélestat í
Frakklandi.
Snorri Steinn segist í samtali
við Fréttablaðið þó hafa næstum
því gengið til liðs við uppeldis-
félag sitt, Val, um það leyti sem
Ólafur Stefánsson tók við liðinu.
Hann ákvað þó að halda kyrru
fyrir í smábænum Gudme á Fjóni
í Danmörku þar sem hann leikur
með GOG.
„Ég talaði heillengi við Vals-
menn á sínum tíma og var mjög
nálægt því að fara til þeirra,“ segir
Snorri Steinn, en þrálátur orðróm-
ur var á kreiki á sínum tíma þess
efnis að Valsmenn ætluðu sér að fá
hann heim til Íslands, rétt eins og
félagið gerði með Ólaf Stefánsson.
„Það heillaði mig að taka þátt
í þessu verkefni með þeim Óla
og Ragga [Ragnari Óskarssyni,
aðstoðarþjálfara]. En ég er feginn
að ég gerði það ekki. Mér finnst
ég eiga nóg eftir í atvinnumennsk-
unni og ég hefði séð eftir því að fá
ekki að prófa eitthvað nýtt eins og
að fara í frönsku deildina.“
Með annað augað á Ríó
Snorri Steinn gerði tveggja ára
samning við Sélestat, þó svo að
forráðamenn franska liðsins hafi
viljað gera þriggja ára samn-
ing. Hann vildi þó ekki svo langa
skuldbindingu.
„Þetta er nýtt fyrir alla í fjöl-
skyldunni – ekki bara mig.
Aðstæður geta verið svo fljótar
að breytast – hvort sem það snert-
ir heilsufarið eða eitthvað annað.
Mér fannst því fínt að byrja á
tveimur árum,“ segir Snorri sem
hefur einnig augastað á næstu
Ólympíuleikum í Ríó árið 2016.
„Það er auðvitað ekki sjálfgef-
ið að maður sjálfur eða liðið kom-
ist þangað en þetta er gulrót fyrir
mann. Ég tek svo stöðuna eftir það
og sé til hvað tekur við hjá mér.“
Forráðamenn Sélestat vildu
stokka upp í liðinu, eins og Snorri
Steinn lýsir því, og hafa því samið
við nokkra nýja leikmenn.
„Það er kominn sænskur mark-
vörður og leikmaður frá Króatíu.
En Sélestat er ekki ríkasta liðið
í deildinni. Ég vona því að þeir
haldi sig innan síns ramma svo ég
fái launin mín,“ segir hann í létt-
um dúr.
Verður vonandi vítamínssprauta
Sífellt fleiri handboltamenn í
fremstu röð á heimsvísu, íslensk-
ir meðtaldir, hafa samið við frönsk
lið síðustu ár. Franska landsliðið
hefur verið eitt það allra besta síð-
ustu ár og nú virðast frönsk deild-
arlið ætla að styrkja sig mikið á
næstu árum.
„Frakkarnir njóta góðs af því
að spænska deildin er ekki eins
og hún var. Svo hefur velgengni
landsliðsins hjálpað til og allt vind-
ur þetta upp á sig,“ segir Snorri
Steinn sem hlakkar mjög til þess
að söðla um.
„Það var draumurinn að klára
ferilinn á Spáni en það var ekki
í boði. En mér líst engu að síður
mjög vel á – þetta verður eins og
þegar ég fór til Grosswallstadt
[árið 2003]. Þá var maður mállaus
og allt nýtt í kringum mann. Ég
vona að þetta verði góð vítamíns-
sprauta fyrir mig.“
eirikur@frettabladid.is
Snorri var nálægt því
að fara aft ur í Val
Snorri Steinn Guðjónsson gerði nýverið tveggja ára samning við franska úrvals-
deildarfélagið Sélestat. Hann hlakkar til að takast á við ný verkefni og segist
ekki sjá eft ir því að hafa hafnað Val er Ólafur Stefánsson tók við liðinu.
FEGINN AÐ HANN FÓR EKKI Í VAL Snorri Steinn segist eiga nóg eftir í atvinnumennskunni og hann er því feginn að hafa
hafnað tilboði Valsmanna síðasta sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
KÖRFUBOLTI Það er nóg að gerast í íslensku íþróttalífi
í kvöld en hæst ber leik KR og Stjörnunnar í undan-
úrslitum Dominos-deildar karla.
KR er 2-0 yfir í einvígi liðanna og getur með sigri
í kvöld sópað Stjörnumönnum í frí. KR marði sigur í
fyrsta leiknum en vann sannfærandi sigur í öðrum
leik liðanna.
Það er einnig spilað í handboltanum og verður
heil umferð í Olís-deild karla. Þetta er næstsíðasta
umferðin í deildinni en Fram getur tryggt sér sæti í
úrslitakeppninni með sigri á ÍR á heimavelli.
Það væri magnaður árangur hjá Íslandsmeistur-
unum en ekki var búist við miklu af liðinu á
þessari leiktíð.
Allir leikir kvöldsins verða í beinni texta-
lýsingu á Vísi. - hbg
Verður Stjörnunni sópað í kvöld?
FÓTBOLTI „Það fer vel um okkur
hérna,“ segir Freyr Alexandersson,
landsliðsþjálfari kvenna í fótbolta,
í samtali við Fréttablaðið en í
hádeginu að íslenskum tíma spila
stelpurnar okkar við lágt skrifað lið
Möltu í undankeppni HM 2015 ytra.
Ísland vann Ísrael, 1-0, um síðustu
helgi og er á fínu róli í riðlinum eftir
tap gegn Sviss í fyrsta leik.
„Ég er búinn að sjá leiki Möltu í
riðlinum og við erum sterkari á öllum
sviðum. Þær eru ekki í góðu formi
og markvarslan hjá þeim er ekki góð.
Það er einn leikmaður í liðinu miðað
við það sem ég hef séð sem er í
alþjóðlegum klassa,“ segir Freyr og er
stefnan því að sjálfsögðu sett á sigur.
„Við sköpuðum okkur færi gegn
Ísrael en voru mislagðir fætur upp
við markið. Við viljum halda áfram
að sýna sama uppspil. Það var gott
að halda hreinu í síðasta leik en við
þurfum að nýta færin betur á móti
Möltu og skora mörk.“
Leikurinn fer fram á gervigrasvelli
sem er við hliðina á flottum leikvangi
með grasvelli.
„Það virðist ekki mikil virðing
borin fyrir kvennaboltanum hérna
fyrst þær eru látnar spila á gervi-
grasinu,“ segir Freyr en einnig er
augljóst að Malta ætlar að spila inn
á gervigrasið og hitann sem magnast
upp á því að sögn Freys. - tom
Ekki mikil virðing borin fyrir kvennaboltanum hérna
SIGUR Freyr Alexandersson vill sigra
Möltu og ekkert annað. FRÉTTABLAÐIÐ/VILLI
SPORT
SIGURMARKIÐ Koke og David Villa fagna sigurmarkinu í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY