Fréttablaðið - 15.04.2014, Side 10
15. apríl 2014 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 10
ÚKRAÍNA Oleksandr Túrtsjínov,
sem til bráðabirgða gegnir for-
setaembætti í Úkraínu, hringdi
í gær í Ban Ki-moon, fram-
kvæmdastjóra Sameinuðu þjóð-
anna, og fór þess á leit að frið-
argæslusveitir yrðu sendar til
austurhluta landsins.
Aðskilnaðarsinnar, hliðholl-
ir Rússum, hafa lagt undir sig
stjórnsýslubyggingar í nærri tíu
borgum í austanverðu landinu.
Um helgina buðu stjórnvöld
þeim sakaruppgjöf láti þeir bygg-
ingarnar af hendi og hætti upp-
reisn sinni. Frestur var gefinn
þangað til í gær en aðskilnaðar-
sinnarnir önsuðu engu og réðust
þess í stað inn á lögreglustöð í
borginni Horlivka.
Úkraínustjórn sakar stjórn-
völd í Rússlandi um að standa
á bak við ólguna í austanverðri
Úkraínu, í þeim tilgangi að auð-
velda sér að innlima austurhér-
uðin með svipuðum hætti og
Krímskaga. Ráðamenn á Vestur-
löndum hafa sumir tekið undir
þessar ásakanir.
Meirihluti íbúa austurhérað-
anna er rússneskur eða rúss-
neskumælandi og meðal þeirra
virðist vera einhver stuðningur
við að Rússland innlimi þessi
héruð.
Á neyðarfundi Öryggisráðs
Sameinuðu þjóðanna á sunnudag
skoruðu Rússar á Úkraínustjórn
að standa ekki við hótanir um að
beita hervaldi gegn aðskilnaðar-
sinnum.
Í gær hittust svo utanríkisráð-
herrar Evrópusambandsríkjanna
í Lúxemborg til að ræða frekari
refsiaðgerðir gegn Rússlandi.
Reuters-fréttastofan hafði eftir
Laurent Fabius, utanríkisráð-
herra Frakklands, að til greina
kæmi að leiðtogar ESB hittust í
næstu viku til þess að samþykkja
nýjar refsiaðgerðir.
Síðar í vikunni hefur svo verið
boðað til fundar í Genf um mál-
efni Úkraínu, þar sem fulltrúar
frá Bandaríkjunum, Rússlandi,
Evrópusambandinu, Úkraínu
og Sviss ætla að reyna að leita
lausna. gudsteinn@frettabladid.is
Úkraína óskar eftir
friðargæsluliðum
Aðskilnaðarsinnar í austanverðri Úkraínu létu úrslitafrest stjórnvalda í gær sem
vind um eyru þjóta. Í staðinn fyrir að láta herteknar stjórnsýslubyggingar af hendi
í skiptum fyrir sakaruppgjöf réðust þeir inn á lögreglustöð í Horlivka.
LÖGREGLUSTJÓRI HANDTEKINN Aðskilnaðarsinnar réðust í gær inn í lögreglustöðina í Horlivka og handtóku lögreglustjórann þar.
NORDICPHOTOS/AFP
Nóvember: Viktor Janúkovítsj forseti, sem naut stuðnings meðal rúss-
neskumælandi íbúa í austanverðu landinu, hættir við samning við Evrópu-
sambandið.
Desember: Mótmæli Evrópusinna í vestanverðu landinu hefjast gegn
Janúkovítsj.
Febrúar: Janúkovítsj flýr land. Ólga hefst í austanverðu landinu. Að-
skilnaðarsinnar á Krímskaga ná stjórnarbyggingum á sitt vald.
Mars: Íbúar Krímskaga samþykkja að lýsa yfir sjálfstæði. Rússar innlima
Krímskaga.
Apríl: Íbúar fleiri héraða í austanverðri Úkraínu hefja aðskilnaðarbaráttu.
Atburðir vetrarins
- snjallar lausnir
545 3200 wise.is sala@wise.isGold Enterprise Resource Planning
Silver ndependent Software Vendor ( SV)
Borgartún 26, Reykjavík » Hafnarstræti 102, Akureyri
sími: 545 3200 » wise@wise.is » www.wise.is
Dynamics NAV er einn mest seldi
bókhaldshugbúnaður á Íslandi í dag.
Wise er í fararbroddi í upplýsingatækni með sérstaka áherslu á
ráðgjöf, hugbúnaðargerð og innleiðingar ásamt öflugri og
persónulegri þjónustu.
Fjölbreyttar lausnir á sviði fjármála, viðskiptagreindar, verslunar,
sérfræðiþjónustu, sjávarútvegs, sveitarfélaga og flutninga, sem
einfalda þér þitt hlutverk.
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
GÆÐAMÁLNING
Mako pensill 50mm
225
Deka Gólfmálning grá
3 lítrar
4.295
Deka Spartl LH. 3lítrar
1.990
Kletthálsi Reykjavík
Reykjanesbæ
Deka Pro 10
Innimálning. 10 lítrar
6.995
LF Veggspartl
0,5 litrar
795
DekaCryl 7
Innimálning. 10 lítrar
5.995
Deka Pro 4. Veggja- og
loftamálning. 10 lítrar
5.795
GÓÐ Þ
VOTTA
HELDN
I
Deka
Meistaralakk 70
Akrýllakk. hvítt.
1 líter
1.895
Bakki, 25 cm rúlla,
grind og pensill.
- Sett
1.595
– G Ó Ð U R Á B R A U Ð –
Í S L E N S K U R
Ábendingahnappinn má finna á
www.barnaheill.is