Fréttablaðið - 04.06.2014, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 04.06.2014, Blaðsíða 12
4. júní 2014 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 12 Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is Kletthálsi Reykjavík Reykjanesbæ BOZZ sturtuklefi 80x80cm 43.900 11.990 AGI-167 hitastýrð blöndunar tæki fyrir sturtu fáanleg með upp stút. Rósetturog hjámiðjur fylgja. Fást einnig í 90x90cm á kr. 45.900. Einnig eru til rúnnaðir 90x90 klefar á kr. 45.900 Sturtustöng og -brúsa fylgja. GÆÐAVARA Vatnslás og botnventill frá McAlpine seldur sér á kr. 1.290 Ferðalangar geta frá og með kom- andi maímánuði heimsótt 800 metra löng ísgöng um 30 metrum undir yfirborði Langjökuls. Þessi undraveröld í jöklinum mun bjóða gestum að njóta veitinga í sértil- höggnum veitingasal; virða fyrir sér sýningar í afkimum og hliðar- skútum, tilhöggvin íslistaverk svo ekki sé talað um jökulstálið sjálft upplýst eftir kúnstarinnar reglum. Hugsað er fyrir öllu, jafnvel þeim sem eru á þeim buxunum að ganga í það heilaga því í jöklinum verður lítil kapella fyrir þá sem gera þær sérkröfur. Þetta var meðal þess sem Sig- urður Skarphéðinsson, fram- kvæmdastjóri IceCave, nefndi við kynningu á ísgöngum í vestanverð- um Langjökli í gær, þeim stærstu í Evrópu þegar þau verða fullbyggð. Göngin eru ofan við Geitlandsjökul í um 1.260 metra hæð yfir sjávar- máli. Í máli hans kom fram að ísgöng- in eru hugsuð sem viðbót við ferða- þjónustu á því svæði landsins sem ásókn er mest. Vegna nálægðar við höfuðborgarsvæðið geta ferða- þjónustufyrirtæki markaðssett dagsferðir þaðan, með viðkomu á Þingvöllum, við Geysi og Gullfoss og gert fólki kleift að sjá sýnishorn af mörgu því forvitnilegasta sem landið hefur að bjóða. Það er Icelandic Tourism Fund (ITF I), framtakssjóður í eigu Landsbankans, Icelandair Group og nokkurra lífeyrissjóða, sem stendur að verkefninu undir merkj- um fyrirtækisins IceCave. Við opnun í maí árið 2015 er reiknað með að framkvæmdin muni kosta á bilinu 200 til 300 milljónir, en verktakar eru þegar þetta er skrif- að komnir rúmlega 40 metra inn í jökulinn og sækist vel. Eins og Fréttablaðið greindi frá í september er fjárfestingargeta framtakssjóðsins um 2,1 milljarð- ar króna, sem verður nýtt til fimm til tíu verkefna. Annað verkefni sem hefur vakið athygli er hesta- miðstöð í Ölfusi. Sérstaða sjóðsins eru fjárfestingar í ferðaþjónustu eingöngu. Verkefnið er ekki nýtt af nálinni, undirbúningur hófst hjá verkfræði- stofunni Eflu árið 2010. Samráð var þá strax haft við sveitarfé- lagið Borgarbyggð og Umhverfis- stofnun. Skipulagsstofnun gaf út að verkefnið væri ekki matsskylt en náttúruverndarsjónarmið verða í hávegum höfð, að sögn Sigurðar. Ari Trausti Guðmundsson, jarð- eðlisfræðingur og ráðgjafi í verk- efninu, svaraði spurningum á fund- inum um öryggismál í göngunum og á jöklinum. Í máli hans kom fram að á jökli er hætta á hruni mest úti við jaðra hans; þar sem hreyfingin og bráðn- unin er mest. „Það verður ekki sagt að svona ísgöng séu 100% örugg. Þú byggir ekki mannvirki í nátt- úrunni sem það á við, en hætturnar af þessu eru hverfandi,“ sagði Ari Trausti og nefndi ferðir inn í hraun- hella og önnur náttúruleg fyrirbæri þar sem hættan er meiri ef eitthvað er. Eins kom fram að áður en ferða- fólki verður hleypt inn í göngin verða þau prófuð í eitt ár, áður en kemur að opnun. Búist er við allt að 30.000 gestum á ári, um fjörutíu manns gætu verið í hópi í ísgöng- unum á hverjum tíma. Opna undraheim inni í Langjökli Lengstu ísgöng í Evrópu verða opnuð ferðafólki í Langjökli í maí 2015. Þau prýðir veitingasalur, sýningaraðstaða og kapella og kosta 200 til 300 milljónir. Ísgöngin verða eins örugg og annað sem menn heimsækja í náttúrunni. Reiknað er með 20 til 30 þúsund gestum á ári. KAPELLA Dæmi annars staðar frá sýna að mikill áhugi er hjá fólki að ganga í það heilaga við óvenjulegar aðstæður. Þessu er mætt í ísgöngunum með lítilli kapellu, þar sem krossinn og bekkir verða úr ís, en sessurnar þó úr timbri. SEST TIL BORÐS Gestir geta við dvöl í ísgöngunum sest niður í veit- ingasal og notið léttra veitinga. Stólar og borð verða úr ís; barinn líka. Gestir á hverjum tíma verða líklega um 80 talsins, en mögulegt að leiða fjóra hópa í gegn daglega. TJÖRN UNDIR JÖKLI Neðst í ísgöngunum er reiknað með að koma niður á grunnvatn. Með þetta verður unnið og gerður verður ævintýrahellir þar sem ljós, vatn og ís skapa sérstaka upplifun. „SÝNINGARTJALD“ Göngin sjálf verða hrá og sjá má óhreinindi og annað sem jökullinn geymir. Sprungur í jöklinum veita dagsljósi inn í göngin. Á mannhæðarháum skjá verður hægt að leita upplýsinga um sögu jöklanna og hlýnun jarðar sem ógnar tilvist þeirra. Svavar Hávarðsson svavar@frettabladid.is Það verður ekki sagt að svona ísgöng séu 100% örugg. Þú byggir ekki mann- virki í náttúrunni sem það á við, en hætturnar af þessu eru hverfandi. Ari Trausti Guðmundsson jarðeðlisfræðingur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.