Fréttablaðið - 04.06.2014, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 04.06.2014, Blaðsíða 38
Hin ÞÓREY VILHJÁLM DÓTTIR AÐSTOÐARMAÐUR INNANRÍKISRÁÐHERRA hliðin Netfang rit stjorn@markadurinn.is Sími 512 5000 Fax 512 5301 Netfang auglýsingadeildar auglys ing ar@markadurinn.is Veffang visir.is Gengi gjaldmiðla FTSE 100 6,836.30 -27.80 (0.41%) Viðskiptavefur Vísis @VisirVidskipti Þau jákvæðu áhrif og innblástur sem innflytjendur hafa á íslenskt samfé- lag eru því miður oft vanmetin. Við gleymum of oft þeirri staðreynd að innflytjendur flytja inn hugvit, þekk- ingu, menningu og fleiri þætti sem auðga mjög íslenskt samfélag í víðu samhengi. Við gleymum einnig þeirri staðreynd að innflytjendur eru ekki að taka af kökunni, heldur stækka þeir hana og auka þannig framleiðni í íslensku samfélagi. Hærra hlutfall innflytjenda fyrir- tækjaeigendur Flestar vestrænar þjóðir hafa áttað sig á þessu fyrir þó nokkru síðan. Í rannsókn, sem unnin var af háskóla í Kaliforníu á litlum og meðalstórum fyrirtækjum, kom fram að frumkvöðl- ar eru fleiri á meðal innflytjenda en innfæddra í Bandaríkjunum. Niður- stöðurnar voru að 10,3% innflytj- enda ættu eigið fyrirtæki á meðan 9,3% innfæddra ættu eigið fyrirtæki. Þar kom einnig fram að innflytj- endur ættu þrjú af hverjum fjórum einkaleyfum sem veitt hafa verið í helstu háskólum Bandaríkjanna. Frumkvöðlaeðlið virðist því vera töluvert ríkara hjá innflytjendum. Kaffihúsið hans Augustins Við vitum að lítil og meðalstór fyrir- tæki eru burðarás íslensks atvinnu- lífs og þar hafa innflytjendur látið til sín taka. Það má sem dæmi nefna fjölda veitingastaða sem reknir eru af innflytjendum og hafa svo sannarlega auðgað matarmenningu þjóðarinnar. Ég starfaði sjálf fyrir um tveimur áratugum á kaffihúsi í eigu innflytjanda, hins spænska Augustins. Ég veit ekki betur en að hann hafi allar götur síðan verið í veitingarekstri og sé enn. Hann hefur að jafnaði verið að skapa 5-10 störf á hverjum tíma. Tækifærin sem við sjáum ekki Það var einnig áhugavert fyrir okkur Íslendingana sem unnum fyrir Augustin að kynnast spænskri menningu og spænskum mat. Þetta vakti áhuga minn á Spáni og ég fór í kjölfarið til Madrid þar sem ég dvaldi í eitt ár til að sjúga í mig menninguna og læra tungumálið – og kom reynslunni ríkari til baka. Það mætti nefna svipuð dæmi af erlendum aðilum sem hafa starfað í öðrum geirum hér á landi og víkkað þannig sjóndeildarhring okkar. Fjölþjóðlegt samfélag einkaframtaks Glöggt er gests augað, segir máls- hátturinn – en það á vel við um þá sem hingað flytja. Þeir sjá tækifæri sem við hin sjáum ekki vegna þess að þeir koma úr allt öðru umhverfi. Þetta hefur orðið til þess að svo stór hluti útlendinga stofnar fyrirtæki sem mjög oft eru farsæl – oft eða yfirleitt byggð á eða undir áhrifum frá fyrirmynd í þeirra eigin landi eða menningu. Tökum þeim fagnandi og sköpum hér farsælt og fjölþjóðlegt samfélag einkaframtaks. Glöggt er gests augað USD 113,36 GBP 189,93 DKK 20,66 EUR 154,25 NOK 18,88 SEK 16,957 CHF 126,26 JPY 1,10 2.6.2014 „Kjarni þessara breytinga er að hugmyndir og nýsköpun geta í raun sprottið upp hvar sem er og haslað sér völl á alþjóðavísu á tiltölulega stuttum tíma. Það gerir lítil lönd eins og Ísland að leikendum í þessum nýja heimi á þann hátt sem er langt umfram okkar björtustu vonir.“ Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands. Harpa / Skeifan 6 / Keflavíkurvöllur / 5687733 / epal@epal.is / epal.is Tilboðsverð: 138.800kr* Fullt verð: 198.500kr Nýherji selur tækjaleigu Gengið hefur verið frá sölu á starfsemi Tækjaleigu Nýherja til Sonik Tækni ehf. Sonik mun taka yfir reksturinn þann 15. júní næstkomandi. „Salan á Tækjaleigunni til Sonik Tækni er í takt við nýjar áherslur Nýherja, sem er að efla þjónustu- og lausnaframboð í upplýs- ingatækni fyrir íslensk fyrirtæki,“ sagði Finnur Oddsson, forstjóri Nýherja, í fréttatilkynningu um söluna. 12,1 MILLJARÐUR Tölur SÍ um viðskiptajöfnuð Viðskiptajöfnuður mældist óhagstæður um 12,1 milljarð króna á fyrsta ársfjórðungi samanborið við 11,2 milljarða hagstæðan jöfnuð fjórðunginn á undan. Afgangur á vöruskiptum við útlönd nam 9,3 milljörðum en þjónustujöfnuður var jákvæður um 800 milljónir, samkvæmt bráðabirgðatölum Seðla- banka Íslands. Viðskiptajöfnuður án áhrifa innlánsstofnana í slitameðferð var óhagstæður um 3,5 milljarða.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.