Fréttablaðið - 04.06.2014, Blaðsíða 28
FÓLK|FERÐIR
Póstdreifing | Vatnagörðum 22 | 104 Reykjavík | Sími 585 8300 | postdreifing.is
Við sjáum um örugga dreifingu á fjölpósti
Við náum til fjöldans
B
ra
n
de
n
bu
rg
Póstdreifing dreifir fjölpósti sex daga vikunnar til heimila
á stærsta markaðssvæði landsins. Mælingar sýna að 60%
landsmanna skoða fjölpóst og er hann því áhrifarík leið
til að koma skilaboðum um vöru eða þjónustu beint inn
á heimilin. Örugglega til þín.
Nánari upplýsingar veitir söludeild í síma 585 8300.
Ayers Rock í Ástralíu, eitt helsta náttúruundur veraldar, skiptir litum yfir daginn.
Samfélagsmiðillinn Pinterest er
ótrúlega skemmtilegt tól þegar
skipuleggja þarf ferðalög, hvort
sem um er að ræða ferðalagið
fram undan eða draumaferð-
ina sem farin verður síðar. Um
margra ára skeið hafa ferðalang-
ar notað ferðabæklinga og hefð-
bundnar vefsíður til að kynna
sér framboð áfangastaða og
hvað er í boði á hverjum stað.
Nú geta notendur Pinterest
stofnað sérstaka möppu fyrir
áfangastaðinn eða ferðalagið
og safnað saman myndum í
möppuna. Það er mun þægilegri
og skemmtilegri kostur en að
klippa út greinar úr bæklingum
eða reyna að halda utan um
margar vefslóðir og Instagram-
myndasíður. Það er lítið mál að
búa til nokkrar möppur fyrir
ferðalagið.
Ef stefnt er til Ítalíu í sumar
má til dæmis stofna sér möppu
utan um áfangastaðinn, aðra
um veitingastaði, enn aðra um
söfn og skemmtigarða, auðvitað
þarf eina möppu fyrir verslanir
á staðnum og svo mætti lengi
telja. Í hverja möppu eru síðan
myndir „pinnaðar“ og annað efni
við hæfi.
Einnig er hægt að fylgja eftir
öðrum ferðalöngum og „pinna“
myndir þeirra og svo býður
Pinterest upp á góða leitarvél.
Þar má finna fjölda mynda en á
bak við flestar þeirra er slóð á
viðkomandi vefsíðu með frekari
fróðleik um myndefnið.
PINTEREST HJÁLPAR TIL
Þeir nemendur sem skólinn útskrifar fara beint út á vinnumarkaðinn. Það er
mikil eftirspurn eftir menntuðum
leiðsögumönnum, sérstaklega
leiðsögumönnum sem tala suð-
ræn tungumál svo sem spænsku,
frönsku, ítölsku og portúgölsku,“
útskýrir Friðjón Sæmundsson,
skólastjóri Ferðamálaskóla
Íslands, Bíldshöfða.
„Einnig eru Kína og Rússland
ört stækkandi markaður og þeir
leiðsögumenn sem við útskrifum
með þau tungumál hafa líka nóg
að gera.“
Námið við Ferðamálaskóla Ís-
lands tekur tvær annir og fer að
stórum hluta fram með mynda-
sýningum svo nemendur geta
fylgst með á lifandi hátt þegar
ferðast er um landið.
Meðal helstu námsgreina eru
leiðsögutækni, saga landsins,
jarðfræði, jarðsaga, bókmenntir
og listir, norðurljósin, menning-
artengd ferðaþjónusta, skipu-
lagðar ferðir og afþreyingar-
ferðir. Í hverjum mánuði fer
hópurinn í skipulagða vettvangs-
ferð þar sem nemendur eru
látnir spreyta sig við leiðsögn.
Náminu lýkur með fimm daga
hringferð um landið. Leiðbein-
endur við skólann eru allir þaul-
vanir leiðsögumenn með mörg ár
að baki við móttöku ferðamanna.
„Góður leiðsögumaður þarf að
geta tjáð sig um gæði lands og
þjóðar og það sem Ísland hefur
upp á að bjóða. Við leggjum
mikla áherslu á að nemendur æfi
sig í styttri ferðunum sem farnar
eru á námstímabilinu,“ útskýrir
Friðjón. „Norðurljósaferðirnar
höfum við kennt í mörg ár en
norðurljósin eru stór þáttur í
íslensku ferðaþjónustunni yfir
vetrartímann. Námið er bæði
fjölbreytt og skemmtilegt og
þar sem búast má við mikilli
aukningu erlendra ferðamanna
til landsins á komandi árum er
vöntun á menntuðum leiðsögu-
mönnum. Við erum þegar farin
að skrá inn fyrir næsta haust,“
segir Friðjón.
Nánari upplýsingar um Ferða-
málaskóla Íslands er að finna á
vwww.menntun.is.
EFTIRSPURN EFTIR
LEIÐSÖGUMÖNNUM
FERÐAMÁLASKÓLI ÍSLANDS KYNNIR Þrjátíu leiðsögumenn útskrifuðust frá
Ferðamálaskóla Íslands nú í vor. Mikil eftirspurn er eftir menntuðum leiðsögu-
mönnum samhliða vaxandi ferðamannastraumi til landsins.
LEIÐSÖGUMENN Ferðamálaskóli Íslands á Bíldshöfða útskrifaði þrjátíu leiðsögumenn nú í vor. Fjölbreytt og skemmtilegt nám, segir
skólastjóri. MYND/FERÐAMÁLASKÓLI ÍSLANDS
www.tvolif.is
opið virka daga 11-18
laugardaga 12-17
/barnshafandi
Þú færð langmesta úrval meðgöngu- og
brjóstagjafafatnaðar í Tvö Líf á frábæru verði!
FRÍ PÓSTSENDING UM ALLT LAND
Full búð af nýjum vörum,
valdar vörur á
30% afslætti