Fréttablaðið - 04.06.2014, Side 17
MIÐVIKUDAGUR 4. júní 2014 | SKOÐUN | 17
Fyrir tíu árum var alls
óvíst hvernig landsmenn
tækju í þá hugmynd að
styðja við réttindi barna á
heimsvísu með mánaðar-
legum gjöfum. Gæta að
velferð barna um veröld
víða – velferð allra barna.
Gerast heimsforeldrar og
segja við sjálfa sig að það
sé sameiginlegt verkefni
okkar allra að búa börn-
um þessa heims örugga
framtíð.
Á tíu ára afmæli UNI-
CEF á Íslandi gætum við ekki
verið ánægðari eða þakklátari.
Fólk hér á landi hefur fylkt sér á
bak við málstað UNICEF, Barna-
hjálpar Sameinuðu þjóðanna. Í dag
eru fleiri en 22.000 heimsforeldrar
hér á landi eða rúm 9% fullorðinna
landsmanna. Gjafir þeirra skipta
sköpum fyrir börn um víða
veröld og tryggja þeim
hreint vatn, heilsugæslu,
menntun, næringu, vernd
gegn ofbeldi og önnur
sjálfsögð réttindi.
Heimsforeldrarnir eru
hugsjónafólk á ólíkum
aldri sem býr um allt land
– og breiðfylking heims-
foreldra hér á landi hefur
vakið athygli hjá UNICEF
alþjóðlega.
Löngunin til að bæta
Í nær sjö áratugi hefur UNICEF,
Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna,
verið leiðandi í hjálparstarfi
fyrir börn í heiminum. Við leggj-
um ríka áherslu á að ná til þeirra
barna sem helst eiga undir högg
að sækja. Það var því einstaklega
ánægjulegt að finna hvað hug-
myndin um að koma á fót UNICEF
hér á landi fékk mikinn hljóm-
grunn.
UNICEF á Íslandi spratt úr
grasrótarstarfi sem var drifið
áfram af lönguninni til að bæta
réttindi barna. Hópur af ungu fólki
tók sig saman og gott fólk og öflug-
ir bakhjarlar tóku framtaki þeirra
fagnandi og studdu hugmyndina.
Án þeirra hefði UNICEF á Íslandi
aldrei orðið að veruleika. Stofnun
landsnefndarinnar var samvinna
og baráttuhugur í hópnum.
Fljótt fjölgaði síðan í hópi
styrktar aðila þegar fyrstu heims-
foreldrarnir gengu til liðs við
okkur. UNICEF var komið til
að vera hér á landi – komið til
að þrýsta á um breytingar fyrir
börn og standa fyrir varanlegum
umbótum sem breyta heiminum
þegar til lengri tíma er litið.
Aldrei fleiri börn í skóla
Á þeim áratug sem liðinn er hefur
mikill árangur náðst í hjálpar-
starfi fyrir börn í heiminum. Stór-
lega hefur sem dæmi dregið úr
barnadauða og aldrei hafa fleiri
börn gengið í skóla en einmitt nú.
Á sama tíma hefur mikill árangur
náðst hvað varðar réttindi barna
á Íslandi. Barnasáttmáli Samein-
uðu þjóðanna var lögfestur í fyrra
og aukin fræðsla hefur skilað sér í
meiri vitund um réttindi barna hér
á landi. Eitt af hlutverkum UNI-
CEF er að fræða börn um réttindi
sín – og fræða fullorðna um rétt-
indi barna.
Á Íslandi sinnir UNICEF auk
þess markvissri réttindagæslu
fyrir börn, fylgist vandlega með
stöðu barna og beitir sér til dæmis
fyrir því að stjórnvöld hafi hags-
muni barna að leiðarljósi við
ákvarðanatöku sína. Við höfum
sem dæmi ítrekað bent á að ofbeldi
í sínum fjölmörgu birtingarmynd-
um er ein helsta ógn sem steðjar
að börnum hér á landi. Við höfum
beitt okkur af alefli fyrir því að
minnka ofbeldið og komið með
vandlega útfærðar lausnir. Þessi
áhersla UNICEF á Íslandi og ann-
arra aðila á baráttu gegn ofbeldi
hefur leitt til meiri framlaga til
málaflokksins. Það er okkur mikið
fagnaðarefni.
Ekkert af þessu hefðum við
getað gert nema vegna þess
trausts sem við njótum frá heims-
foreldrunum okkar og öðrum
styrktaraðilum. Ykkur öllum vilj-
um við því færa hjartans þakkir.
Til hamingju með 10 ára samfylgd
sem helguð er því að tryggja rétt-
inn til betra lífs fyrir öll heims-
ins börn.
Þökk sé ykkur!
Dagsetningin 4. júní er
bannorð hjá hugsanalögg-
unni í Kína. Þennan dag í ár
eru 25 ár liðin frá morðárás
skriðdrekasveita á lýðræð-
ishreyfingu ungs fólks á
Torgi hins himneska friðar
í miðborg Beijing. Varlega
áætlað lágu hundruð manna
í valnum. Voðaverkið tákn-
aði rökþrot valdamanna
gegn frómum óskum nýrr-
ar kynslóðar um auknar
umbætur og lýðréttindi.
1989 var eitt af þessum árum
þegar stóratburðirnir komu í kipp-
um: Hrun sovéska heimsveldisins,
sjálft symból kalda stríðsins, Berl-
ínarmúrinn, var hlutað í sundur og
haft í minjagripi, böðull Rúmeníu,
Sjáseskú, var hrakinn frá völdum
og umrótið lyfti andófsmanninum
Vaclav Havel til æðstu metorða í
Tékklandi. Lítillega teygðist að vísu
á falli Sovétríkjanna sjálfra
en það fór ekki á milli mála
hvert stefndi. Það vinnur
aldrei neinn sitt dauðastríð
eins og segir í frægu ljóði
Steins Steinarr.
Ofsafengin viðbrögð
Fjöldamorðin í Beijing
voru meðal mestu ótíðinda
þessa viðburðaríka árs. Ég
man varla eftir atburði sem
hefur komið verr við mig.
Ekki bara vegna þess að ég
hafði verið þarna við nám nokkrum
árum áður og tengdist því staðnum
heldur líka vegna viðbragða yfir-
valda sem voru mjög ofsafengin
miðað við tilefnið. Það má marg-
skömmuð nútímafjölmiðlun eiga
að þarna birti hún okkur ófegraða
instantmynd af stjórnvöldum þegar
illa stóð á. Valdhafar í okkar heims-
hluta stjórna í krafti umboðs frá
almenningi eftir leynilegar kosn-
ingar en í alræðisríkjum er engu
slíku til að dreifa. Því betur sem
ráðamenn skynja að þeir eiga ekki
lögmætt tilkall til valda þeim mun
tilbúnari verða þeir að beita öllum
meðölum til að hanga á þeim með
kjafti og klóm.
Kínverskir valdhafar kölluðu
yfir sig hörð viðbrögð og sátu um
skeið í skammarkrók almennings-
álitsins. Ég skrifaði fyrir mína
parta samansúrraða fordæming-
argrein í tímaritið Mannlíf í júlí
þetta sama ár, mánuði eftir ótíð-
indin, og þremur árum seinna birti
Mogginn grein eftir mig, „Svívirða
sem ekki á að gleymast“, sem and-
svar við viðtali við sendifulltrúa
í kínverska sendiráðinu í Reykja-
vík, en honum fannst orðið tíma-
bært að slá striki yfir þessa óþægi-
legu atburði, sem hefðu hvort eð
er verið ýktir úr öllu hófi og hálf-
partinn verið að undirlagi erlendra
aðila. Kínverskir valdhafar eru að
sönnu löngu sloppnir úr sínum
skammarkrók en fyrir bragðið
verður heldur ekki undan því vik-
ist að halda þessu máli vakandi.
Stórstígar breytingar og fram-
farir á fjölmörgum sviðum í Kína
eru á allra vitorði. Það er náttúr-
lega fagnaðarefni enda var landið
hálfpartinn eins og Norður-Kórea
í lok menningarbyltingarinnar,
seint á sjöunda áratug síðustu
aldar. En þrátt fyrir miklar breyt-
ingar á mörgum sviðum er alræð-
isfyrirkomulagið í aðalatriðum
enn við lýði. Þegar kemur að því
að virða almenn mannréttindi,
skoðanafrelsi og tjáningarfrelsi er
Kína í hópi þeirra ríkja sem lakast
standa.
Uppgjör forsenda stefnubreytingar
Strengilegt bann við allri umfjöll-
un um morðin á Torgi hins him-
neska friðar 1989 – og óþægileg-
ar afleiðingar ef því er ekki sinnt
– er auðvitað til marks um að hin
mannskæða skriðdreka árás forð-
um er fleinn í holdi valdhafa. Þeir
vita upp á sig skömmina. Vonandi
rennur upp sá dagur að þarna
verði breyting á. Það er ekki fram
á mikið farið að landsmenn fái
að fara ofan í saumana á þessum
atburðum, fá botn í það sem gerð-
ist, veita fórnarlömbunum upp-
reisn æru og aðstandendum færi
á að leita réttlætis.
Meðan stjórnvöld, hvort sem er í
Kína eða annars staðar, hafa ekki
gert upp við voðaverk fortíðarinn-
ar sem framin eru í skjóli eða að
undirlagi ríkisvalds er alltaf sú
hætta fyrir hendi að slík voðaverk
verði endurtekin. Uppgjör, á hvaða
formi sem það er, er til marks um
að stefnubreyting hafi átt sér stað.
Óuppgert voðaverk
UTANRÍKISMÁL
Hjörleifur
Sveinbjörnsson
var við nám í
Beijing 1976–1981
RÉTTINDI
BARNA
Svanhildur
Konráðsdóttir
stjórnarformaður
UNICEF á Íslandi
VERÐ FRÁ EINUNGIS 2.190.000 KR. - GERÐU VERÐSAMANBURÐ
.
Mazda2 er sparneytinn, ótrúlega lipur og hagkvæmur í rekstri. Hann er búinn öflugri 1,3 lítra bensínvél sem þó eyðir
einungis frá 4,3 l/100 km og fær frítt í stæði. Mazda2 er áreiðanlegur, öruggur, vel búinn og frábær í endursölu.
Taktu snúning á Mazda2, gerðu góð kaup og lækkaðu rekstrarkostnaðinn.
MAZDA. DEFY CONVENTION.
Nýir og notaðir bílar: Söludeildir eru opnar alla virka daga frá kl. 9-17 og laugardaga frá kl. 12-16.
Brimborg Reykjavík: Bíldshöfða 8, sími 515 7040 I Brimborg Akureyri: Tryggvabraut 5, sími 515 7050 I mazda.is
Brimborg og Mazda áskilja sér rétt til að breyta verði og búnaði án fyrirvara. Útbúnaður getur verið frábrugðinn mynd í auglýsingu.
*
Mazda2 eyðir 4,3 l/100 km í langkeyrslu og fær frítt í stæði í miðborg Reykjavíkur í 90 mínútur í senn.
5 stjörnu öryggi!