Fréttablaðið - 04.06.2014, Page 39
| SMÁAUGLÝSINGAR |
534 1020
Ármúla 7, Reykjavík - www.jofur.is
TIL LEIGU/SÖLU
Helgi Már Karlsson
Löggiltur leigumiðlari
Löggiltur fasteignasali
534 1024 / 897 7086
hmk@jofur.is
Faxafen 10, 108 Reykjavík
668,4 fm. skrifstofu-/kennslu-
húsnæði á jarðhæð
Allar nánari upplýsingar veitir:
Húsnæðið skiptist í 6 stór vinnurými/skólastofur, 2 stór fundarherbergi, eitt tæknirými, rúmgott anddyri,
stórt opið rými með móttökuborði, rúmgóða kaffistofu með innréttingu, Wc, þ.a. eitt með aðstöðu fyrir
fatlaða auk sturtu. Loftræstibúnaður er til staðar. Á gólfum eru flísar og dúkar. Laust strax!
Skrifstofuhúsnæði sem hægt er
að breyta í verslunarhúsnæði
TIL LEIGU EÐA SÖLU
til leigu
Bláskógabyggð
AUGLÝSING UM ÚTBOÐ
Bláskógaveita - Bygging dæluhúss
í Reykholti, Bláskógabyggð.
Bygging dæluhúss í Reykholti, Bláskógabyggð.
Bláskógaveita óskar eftir tilboðum í byggingu nýs dæluhúss fyrir
hitaveitu í Reykholti.
Um er að ræða tveggja hæða byggingu að grunnfleti samtals um
144m2.
Verkið felur í sér jarðvegs- og lagnavinnu fyrir húsið, uppsteypu á
undirstöðum og veggjum,
auk klæðninga á veggi og uppsetningu þakeininga.
Helstu magntölur eru:
Gröftur 1500 m3
Fylling 500 m3
Steypa 75 m3
Steypustyrktarstál 5400 kg
Ál-klæðningar veggja 170 m2
Verkinu skal vera lokið eigi síðar en 15. júní 2015.
Útboðsgögn verða afhent á rafrænu formi frá og með 10. júní n.k.
Rúnar Guðmundsson veitir nánari upplýsingar og mun afhenda
gögn. runar@blaskogabyggd.is s:893 1662
Opnun tilboða fer fram í fundarsal Bláskógabyggðar (efri-hæð),
Aratungu, 1. júlí.n.k. kl. 13.00
F.h. stjórnar Bláskógaveitu
Rúnar Guðmundsson
Aðalskipulag Ölfuss,
2010-2022, breytt land-
notkun á iðnaðarsvæði
á Hafnarsandi.
Bæjarstjórn Ölfuss samþykkti á fundi sínum 23. maí 2014 breytingu
á Aðalskipulagi Ölfuss, 2010-2022, minniháttar breytingu í samræmi
við 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Rökstuðningur með tillögunni:
Aðalskipulagsbreyting þessi tekur til breyttrar landnotkunar á
iðnaðarsvæði við Gamla Þorlákshafnarveg. Verið er að breyta
iðnaðarsvæði sem var um 65 ha í um 12 ha iðnaðarsvæði þar sem
hægt er að staðsetja lóð fyrir minkaeldi. Í gildandi aðalskipulagi
segir um I14, iðnaðarreitinn sem breytingin fjallar um, að gert sé
ráð fyrir svæði sem uppfyllir skilyrði iðnaðarsvæða í um 1,5 km
frá íbúðabyggð og í um 1 km fjarlægð frá höfninni. Svæðið er fyrir
iðnað sem ekki hefur mengun í för með sér, s.s. lyktar- og loft-
mengun eða starfsemi sem getur haft mengandi áhrif á grunnvatn.
Svæðið uppfyllir kröfur varðandi fjarlægðarmörk frá íbúðabyggð
og starfsemin mun uppfylla kröfur heilbrigðisyfirvalda um úrgang
og meðferð dýra sbr. reglugerð nr. 941/2002 um hollustuvernd og
nr. 165/2007 um aðbúnað og meðferð minka og refa. Aðkoman að
svæðinu er um Gamla Þorlákshafnarveg, sem liggur frá vegi nr. 38.
Eitt af markmiðum gildandi aðalskipulags er að gera ráð fyrir eðli-
legri þróunarmöguleikum iðnaðar og nýsköpun atvinnugreina, auk
þess að renna styrkari stoðum undir atvinnu og byggð á svæðinu.
Það er jafnframt stefna sveitarfélagsins að heimila uppbyggingu
fyrirtækja sem skapa störf fyrir byggðalagið. Þessi minnkun á
iðnaðarlóðinni I14 minnkar ekki að marki framboð iðnaðarlóða í
sveitarfélaginu.
Þorlákshöfn 2. júní 2014.
Sigurður Ósmann Jónsson, skipulags- og byggingarfulltrúi.
Aðalfundur
Náttúruverndarsamtaka
Íslands
Aðalfundur Náttúruverndarsamtaka Íslands verður haldinn
miðvikudaginn 11. júní í Reykjavíkurakademíunni,
Hringbraut 121, 4. hæð og hefst fundurinn kl. 20.00.
Á dagskrá verða venjuleg aðalfundarstörf.
Sjá www.natturuvernd.is
Úthlíð 16. Neðri sérhæð.
Vel skipulögð og frábærlega staðsett 155,9 fm. 6 herbergja neðri
sérhæð með suðursvölum. Eignin er í góðu ástandi og skiptist
í rúmgott hol, eldhús með eldri hvítum innréttingum, stofu með
frönskum gluggum til suðurs, borðstofu, fjögur herbergi auk vin-
nuherbergis og flísalagt baðherbergi. Svalir til suðurs út af einu
herbergi. Frábær staðsetning, nærri skólum og í góðu göngufæri
við miðborgina. Verð 52,9 millj. Verið velkomin.
Grundarstígur 12. 3ja herbergja íbúð.
Björt og falleg 83,1 fm. (þar af 9,1 fm geymsla) íbúð á 3. hæð
miðsvæðis í Reykjavík. Húsið var allt tekið í gegn fyrir nokkrum
árum að utan m.a. sprunguviðgert og málað ásamt því að þak var
yfirfarið. Flísalagðar suðursvalir út af stofu með fallegu útsýni.
Tvö góð herbergi. Nýlegt eikarparket er á allri íbúðinni nema
baðherbergi er flísalagt. Verð 28,9 millj. Verið velkomin.
ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9-17.
Netfang: fastmark@fastmark.is - www.fastmark.is
Jón Guðmundsson, sölustj. og lögg. fast.sali. Guðmundur Th. Jónsson, lögg. fast.sali.
EIGNIN VERÐUR TIL SÝNIS FRÁ KL. 17.15 - 17.45
EIGNIN VERÐUR TIL SÝNIS FRÁ KL. 17.15 - 17.45
OPI
Ð H
ÚS
OPI
Ð H
ÚS
ANDRÉSBRUNNUR 6
www.logmenn.net
OPIÐ HÚS Í DAG, MIÐVIKUDAG, MILLI 18 OG 18:30
• Björt og falleg 4ra herb. íbúð á jarðhæð
• Bæði sturta og baðkar.
• Geymsla og þvottahús innan íbúðar
• Eikarhurðar og fljótandi eikarparket
• Stæði í 3ja bíla bílageymslu
• Verð 32.900.0000,-. Möguleiki á yfirtöku á góðu láni.
Allar upplýsingar veitir Auður Björg Jónsdóttir
í síma 693-7674 eða í gegnum netfangið audur@logmenn.net
OPI
Ð H
ÚS
Óskar R. Harðarson
hdl. og löggiltur fasteignasali
Verð: 55,9 millj.
Glæsilegt raðhús
Vesturás 231 1 0 Reykjavík
Nánari upplýsingar veitir
Jórunn Skúladóttir, Sölufulltrúi
jorunn@miklaborg.is sími: 845 8958
Lágmúla 4 www.miklaborg.is
Vel skipulagt 143,7 fm raðhús
Bílskúr 24,5 fm
Glæsileg hönnun
Stór afgirt verönd með potti
fasteignir
fasteignir
fundir / mannfagnaður
tilkynningar
Skipstjóra/stýrimenn Grænland
Artic Prime Fisheries óskar eftir að ráða skipstjóra og stýrimenn
á ísfisktogara og lítinn troll bát sem gera út frá suður Grænlandi.
Viðkomandi þurfa að vera með alþjóðleg skipstjórnarréttindi.
Umsóknir skulu sendast á starf@brimhf.is þar sem fram kemur
1) fyrri störf, 2) réttindi og námskeið, 3) meðmælendur.
Nánari upplýsingar veitir Arnar Þór Ragnarsson sími 8974838
atvinna
FYRIR
AÐSTOÐ
INNANLANDS
gjofsemgefur.is
9O7 2OO2
Save the Children á Íslandi
MIÐVIKUDAGUR 4. júní 2014 19