Fréttablaðið - 04.06.2014, Qupperneq 50
4. júní 2014 MIÐVIKUDAGUR| SPORT | 30SPORT
HM Í FÓTBOLTA Í BRASILÍU
8 DAGAR Í FYRSTA LEIK
Brasilíski bakvörðurinn Cafu, sem var fyrirliði
heimsmeistaraliðs Brasilíu 1994, á tvö mögnuð
met í úrslitakeppni HM. Cafu er sá eini sem
hefur tekið þátt í þremur úrslitaleikjum á HM,
vann 1994 og 2002 en tapaði 1998, auk þess að
enginn annar leikmaður hefur tekið þátt í fleiri
sigurleikjum í úrslitakeppni HM.
Brasilía vann 16 af 21 leik sem Cafu spilaði.
Cafu kom inn á sem varamaður á 22. mínútu í úr-
slitaleiknum á HM í Bandaríkjunum 1994 og var í
byrjunarliðinu í úrslitaleikjunum 1998 og 2002.
Enginn Brasilíumaður hefur spilað fleiri landsleiki
en Cafu, sem spilaði sinn 142. og síðasta árið 2006.
FÓTBOLTI „Það er aldrei gaman að
tapa þannig að það var fínt fyrir
liðið að ná jafntefli. Við gátum
stolið þessu í lokins en við áttum
ekki skilið að vinna,“ segir Kolbeinn
Sigþórsson, landsliðsframherji í
knattspyrnu, í samtali við Frétta-
blaðið, rétt áður en hann skokkar út
á æfingu liðsins í Þorlákshöfn í gær.
Kolbeinn og strákarnir okkar
mæta Eistum klukkan 19.15 á
Laugardalsvellinum í kvöld í síð-
asta æfingaleik liðsins fyrir átökin
í undankeppni EM 2016 sem hefst
í haust.
„Þessi lið eru svipuð að styrk-
leika og sum þeirra sem eru í riðl-
inum. En við einbeitum okkur að
okkar leik. Við erum að byggja upp
okkar leik og vonandi skilar það
sér eftir tvo til þrjá mánuði þegar
undankeppnin hefst,“ segir hann.
Ajax vill greiðslu
Kolbeinn varð Hollandsmeistari
með stórliði Ajax þriðja árið í röð
á nýliðnu tímabili. Svo virðist þó
sem tíma hans í Amsterdam sé
lokið og má fastlega búast við að
hann finni sér nýtt lið í sumar.
„Staða mín er augljós. Ég á eitt
ár eftir af samningnum og bæði
ég og Ajax viljum fá eitthvað fyrir
mig. Það er í boði, fyrst ég á eitt
ár eftir, að vera áfram og spila
minna. Hugmyndafræði Ajax
er þannig að það vill fá eitthvað
fyrir mennina sem það kaupir,“
segir Kolbeinn, sem er líka tilbú-
inn að prófa eitthvað nýtt.
„Ég er búinn að vera sjö ár í
Hollandi og það hefur verið mark-
mið frekar lengi að taka næsta
skref. Ef eitthvað spennandi
kemur upp í sumar þá mun ég
klárlega skoða það,“ segir hann.
Er stefnan sett eitthvert ákveðið?
„Ég er opinn fyrir þessum
helstu deildum Evrópu; Englandi,
Þýskalandi, Spáni og Ítalíu. Ef það
koma tilboð frá liðum sem heilla
mun ég skoða það en það er ekkert
að gerast núna,“ segir Kolbeinn.
Meiðslin tafið fyrir
Kolbeinn var mikið meiddur
fyrstu tvö tímabilin hjá Ajax en
skilaði marki í öðrum hverjum
leik (14 leikir, sjö mörk bæði tíma-
bilin). Í heildina spilaði Kolbeinn
30 leiki í hollensku úrvalsdeild-
inni á síðustu leiktíð og skoraði
tíu mörk. Hann var ekki alltaf í
byrjunarliðinu og kom inn á tíu
sinnum sem varamaður.
„Þjálfarinn var að prófa eitt-
hvað nýtt. Ég var heldur ekkert
alltaf frammi heldur á kantinum.
Maður fékk ekkert alltaf að vera
í sinni stöðu. En ég er búinn að
verða hollenskur meistari þrisvar
sinnum og er ánægður með það.
Það voru bara þessi meiðsli sem
settu strik í reikninginn og töfðu
kannski fyrir mér,“ segir Kol-
beinn sem segir það gott að vera
að skora áfram með landsliðinu
upp á framhaldið.
„Ég er mjög sáttur í landsliðinu
þar sem ég er að skora í hverjum
leik. Ég er ánægður með hvern-
ig strákarnir eru að spila upp á
mig. Það er eitthvað sem ég hef
ekki verið ánægður með úti. Þessi
mörk telja og það er fínt að vera
að skora með landsliðinu. Glugg-
inn er opinn núna þannig að allt
getur gerst,“ segir Kolbeinn.
tomas@365.is
Alveg til í að prófa eitthvað nýtt
Kolbeinn Sigþórsson yfi rgefur líklega Ajax í sumar eft ir þriggja ára dvöl í Amsterdam. Hann er opinn fyrir helstu deildum Evrópu.
MARKAHRÓKUR Kolbeinn kátur á
landsliðsæfingu. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
FÓTBOLTI „Fyrst og fremst vil ég vinna leikinn,“ segir Lars Lagerbäck, lands-
liðsþjálfari karla í knattspyrnu, í samtali við Fréttablaðið um vináttulandsleik-
inn gegn Eistlandi á Laugardalsvelli í kvöld.
„Í svona vináttuleik reynum við að einbeita okkur að smáatriðum í okkar
leik líkt og fyrir leikinn á móti Austurríki. Vonandi sé ég þau virka í leiknum á
móti Eistlandi,“ segir Svíinn.
Lars vill ekki bara vinna leikinn í kvöld heldur hafa öll völd á vellinum. „Mér
finnst mikilvægt að það sé sigurtilfinning í hópnum. Með fullri virðingu fyrir
liði Eistlands þá eigum við að vinna það á heimavelli. Það er mikilvægt að sýna
að við getum stjórnað leiknum algjörlega og náð góðum úrslitum,“ segir hann.
Ísland tapaði fyrstu tveimur vináttulandsleikjum ársins; á móti Svíþjóð og
Wales. Hvað var betra hjá liðinu í þriðja leiknum á móti Austurríki?
„Það var gott að sjá hversu mikið liðið bætti sig í seinni hálfleik eftir slakan
fyrri hálfleik. Við bættum okkur til muna í þeim síðari og menn fundu sig
betur í sínum stöðum. Við ætluðum að byggja sóknirnar upp á ákveðinn hátt
sem fór að ganga betur. Það var gaman að sjá,“ segir Lagerbäck. - tom
Ekki bara vinna heldur stjórna leiknum
NÁKVÆMUR Lars fylgist með liðinu á
æfingu í Þorlákshöfn. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
LAUGARDALSVÖLLUR
Í KVÖLD
KLUKKAN 19:15
MIÐASALA Á MIÐI.IS
MÆTUM TÍMANLEGA
ÁFRAM ÍSLAND