Fréttablaðið - 07.06.2014, Blaðsíða 2
7. júní 2014 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 2FRÉTTIR 1➜10
SKOÐUN 12
HELGIN 16➜34
SPORT 60➜61
MENNING 48➜53
LÍFIÐ 54➜66
FIMM Í FRÉTTUM LAGSMENN Í LAXVEIÐUM OG BROT Í KIRKJU
Bjarni Benediktsson setti
í 78 cm „silfurgljáandi og
grálúsuga“ hrygnu í Brotinu
í Norðurá þegar hann og for-
sætisráðherra opnuðu ána á
fi mmtudagsmorgun.
Ingibjörg Eiríksdóttir,
sérfræðingur hjá Umhverf-
isstofnun, telur að gróður-
skemmdir í Friðlandinu að
Fjallabaki af völdum utan-
vegaaksturs geti verið allt að
áratugi að jafna sig.
Þórhildur Ólafsdóttir,
fyrirliði ÍBV, lagðist í grein-
ingu á knattspyrnuumfj öllun
um karla og konur. Mun
minna er talað um kvenna-
boltann.
Guðrún Björg Birgisdóttir,
lögmaður fórnarlambs
kynferðisofb eldis í Landa-
kotsskóla, segir málið snúast
um að kaþólska kirkjan
viðurkenni brot sín.
➜ Geir Þorsteinsson sagði frá því að útboð á fl óðlýsingu Laugardalsvallar hefði ekki
verið mögulegt vegna tímaskorts. Hann vill að borgin taki þátt í kostnaðinum.
FERÐAÞJÓNUSTA Ferðamönnum
fjölgar dag frá degi á Íslandi og
eru Þingvellir einn af vinsælustu
ferðamannastöðunum. Umhverfið
á Þingvöllum er farið að láta á sjá
vegna átroðnings. Stór sár hafa
myndast á fjölförnum gönguleið-
um við Almannagjá.
Sigrún Magnúsdóttir, þing-
flokksformaður Framsóknar-
flokksins og formaður Þingvalla-
nefndar, segir að nefndin hafi
kannað aðstæður síðastliðinn mið-
vikudag.
„Þingvallanefnd þarf að hafa
ákveðið fjármagn eins og allir
aðrir. Sannarlega stendur það
til hjá Þingvallanefnd að laga
hlutina en fjölgun ferðamanna
er auðvitað gríðarleg á þessu
svæði. Þingvallanefnd fór síð-
astliðinn miðvikudag að skoða
aðstæður og við munum reyna
hvað við getum að laga ástandið.
Þingvallanefnd sinnir samt sem
áður miklu fleiri hlutum en bara
mold og salernum,“ segir Sigrún.
„Það sem er kannski verkefnið er
að komast fram fyrir fjölgunina
og byggja upp í staðinn fyrir að
vera alltaf að taka við þeim vanda-
málum sem fjölgunin hefur í för
með sér.“
Ferðamönnum fjölgaði mikið
í maímánuði í ár miðað við árið í
fyrra. tæplega 70 þúsund ferða-
menn heimsóttu landið og mun
ferðamannastraumurinn til lands-
ins aukast til muna næstu vikurn-
ar.
Framkvæmdir eru nú hafnar við
nýtt bílastæði á Þingvöllum fyrir
bæði einkabíla og hópferðabíla.
Sigrún nefnir einnig fleiri verk
sem hafa verið framkvæmd.
„Tvær stórar framkvæmdir var
farið í síðasta haust. Annars vegar
göngustíg við Öxarárfoss og útsýn-
ispall við fossinn og hins vegar
fyrri tenginguna upp á Hakið við
Almannagjá, þetta tókst að ljúka
við í fyrrahaust,“ segir hún.
Þjóðgarðurinn á Þingvöllum
fékk aukningu á fjárlögum síð-
asta árs og hefur Alþingi aukið
fjármagn í verkframkvæmdir til
að taka á móti þeim ferðamanna-
fjölda sem fyrirhugaður er að
heimsæki þjóðgarðinn á næstu
árum. sveinn@frettabladid.is
Traðkið heldur enn
áfram á Þingvöllum
Ferðamönnum á Þingvöllum fjölgar dag frá degi. Tugir þúsunda munu sækja
staðinn heim og átroðningur er orðinn mikill. Sár eru farin að myndast í jarðveg-
inn við Almannagjá af völdum ferðamanna.
ÞINGVELLIR
Sár virðast
komin til að
vera við Silfru.
Mikilvægt er
að beina ferða-
mönnum á
göngustíga.
MYND/HÖRÐUR
JÓNASSON
Sannar-
lega stendur
það til hjá
Þingvalla-
nefnd að
laga hlutina.
Sigrún Magnúsdóttir,
formaður Þingvallanefndar.
ORKUMÁL Umhverfis- og auðlinda-
ráðuneytið tilkynnti í gær að Orku-
veitu Reykjavíkur (OR) hefði verið
veitt undanþága til tveggja ára frá
hertum kröfum í reglugerð um
styrk brennisteinsvetnis í and-
rúmslofti. Reglugerðin tekur gildi
1. júlí. Þá tilkynnti OR í gær að
niðurdæling brennisteinsvetnis
frá Hellisheiðarvirkjun á Hellis-
heiði væri hafin. Gert er ráð
fyrir að stöðin hreinsi 15–20% af
brennisteinsvetninu og þar með
minnka líkur á því að styrkur
þess í andrúmslofti fari yfir mörk
í byggð.
Undanþágan felur í sér að Orku-
veitan skuli uppfylla heilsuvernd-
armörkin eins og þau er í dag, en
í tilkynningu ráðuneytisins segir:
„[R]áðuneytið telur rétt að reyna
umrædda leið við niðurdælingu
brennisteinsvetnis.“
Í hreinsistöðinni eru brenni-
steinsvetni og koltvísýringur skil-
in frá útblástursgufunni. Innan
Orkuveitunnar er reiknað með að
það taki nokkrar vikur eða mánuði
að ná fullum tökum á tæknilegum
rekstri stöðvarinnar. Samkvæmt
þeirri verkefnisáætlun, sem unnið
er eftir, er reiknað með að reka
stöðina í eitt ár áður en metið er
hvort þessi nýja aðferð ber tilsett-
an árangur.
Vísindamenn Orkuveitunnar
telja að gangi þetta rannsóknar-
og þróunarverkefni upp sé þetta
umhverfisvænasta og hagkvæm-
asta leiðin til að draga úr styrk
brennisteinsvetnis í andrúmslofti.
Það ræðst meðal annars af því að
ekki er talið hagkvæmt, enn sem
komið er, að vinna afurðir úr jarð-
hitaloftinu. - shá
Niðurdæling á brennisteinsvetni frá Hellisheiðarvirkjun hafin í tilraunaskyni:
Orkuveitan fékk undanþáguna
FJÖLSKYLDUJÓGA 16
Jóga og hugleiðsla fyrir alla fj ölskylduna í
Viðey í dag.
SKANNAÐU HÖFUÐBORGAR-
SVÆÐIÐ Í SUMAR 26
Það er fullt af skemmtilegum stöðum að skoða
í Reykjavík og nágrenni í sumar.
HM Í NÆSTU VIKU 32
Nú styttist í stóru stundina í Brasilíu.
SVIPMYNDIR AF MYNDLIST 34
Sjónum er beint að verkum myndlistarmannanna
Rögnu Róbertsdóttur og Egils Sæbjörnssonar.
ADAPTER KYNNIR NORRÆNA
TÓNLIST 48
Níunda Frum-hátíðin á Kjarvalsstöðum.
TILRAUN SEM SANNARLEGA
TEKST 48
Jónas Sen féll fyrir Höfuðsyndinni.
STYRKJA FÓRNARLÖMB
FLÓÐANNA 53
Sumartónleikar og reggí á Ingólfstorgi.
BREYTT FORYSTA OG KERFISBREYTINGAR 12
Þorsteinn Pálsson um úrslit sveitarstjórnarkosninganna.
SVALANDI DRYKKIR
Í STEIKJ ANDI HITA 54
Uppskrift ir að þremur girnilegum
sumardrykkjum.
SNYRTIBUDDAN 54
Kíkt í snyrtiveski leik- og söngkonunnar
Ritu Ora.
JANE FONDA VERÐLAUNUÐ 59
Svipmyndir frá AFI-verðlaunahátíðinni.
HANNAÐI PONSJÓ FYRIR
PÆJUMÓTIÐ 66
Erna Bergmann hannaði ponsjó fyrir efnilegar
knattspyrnustúlkur.
STEFNIR KAÞÓLIKKUM 4
Maður sem beittur var kynferðislegu ofb eldi í
Landakotsskóla hyggst stefna kaþólsku
kirkjunni fái hann ekki afrit af gögnum
kirkjunnar um hann.
RÍKI HLERA 6
Fjarskiptarisinn Vodafone kveðst vilja stemma
stigu við hlerunum stjórnvalda víða um heim.
Í nokkrum löndum hafa stjórnvöld óheft an
aðgang að símkerfum.
NOREGUR HENTAR ÍSLAM 6
Samfélagsgerðin í Noregi fellur miklu betur
að gildum íslamstrúar en samfélagsgerðin í
Sádi-Arabíu og Íran, segja nokkrir af helstu
íslamfræðingum heims.
Á HELLISHEIÐI Gert er ráð fyrir að
hreinsun haldi mengun í byggð undir
mörkum. MYND/OR
GUÐJÓN VALUR
TIL SPÁNAR 60
Guðjón Valur Sigurðsson skrifaði undir hjá
spænska stórveldinu Barcelona í gær.
STRÁKARNIR BETRI
EN ÉG 61
Synir Jóns Arnórs Magnússonar eru
betri en hann var á þeirra aldri.