Fréttablaðið - 07.06.2014, Blaðsíða 20
7. júní 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN | 20
faldleikanum. Í stað þess að
nota hakkað kjöt eins og gengur
og gerist notar hann gúllaskjöt og
bætir við fitunni eftir á. „Bragðið
kemur með fitunni. Svo byrjuðum
við á því að handpressa hamborg-
arana. Það kemur allt önnur áferð
á borgana sem eru handpressaðir,“
segir Tommi, sem er með gæða-
eftirlit með hráefninu á stöðunum
úti í heimi og nú síðast þegar Búllan
opnaði í Berlín.
Sjálfur hefur hann borðað einn
hamborgara á dag í tíu ár. Stund-
um fleiri en alltaf allavega einn.
Tommi er þó mjög meðvitaður um
líkamlegt heilbrigði og setti sér það
markmið að taka 105 kíló í bekk-
pressu þegar hann var 65 ára, sem
honum tókst.
„Þeir sem á annað borð borða
hamborgara vita að það er matur
sem hægt er að borða hvenær sem
er allan sólarhringinn. Ég hef alltaf
sagt að það sé ósanngjarnt að nota
hamborgarann sem samnefnara yfir
óhollan skyndibita. Þegar við opnuð-
um annan staðinn í London, í mjög
flottu hverfi á Kings Road, hélt ég
ræðu þar sem ég sagðist borða einn
hamborgara á dag og þeir sem töldu
það óhollan skyndibita gætu dæmt
um það sjálfir og reif bolinn sem ég
var í,“ segir Tommi með bros á vör.
„Myndin af því fór um Twitter eins
og eldur í sinu, sem var fyndið.“
Elti ástina heim
Þrátt fyrir að hafa ekki órað fyrir
velgengni staðarins á erlendri
grundu leitaði hugur Tomma út
fyrir landsteinana með staðinn
fyrir nokkrum árum. Hann seldi
Búlluna við Geirsgötu til þeirra
aðila sem reka hana í dag og
keypti sér íbúð ásamt syni sínum
við South Beach í Miami. Planið
var að kanna rekstrargrundvöll
fyrir hamborgarastað í Banda-
ríkjunum.
„Við vorum fluttir út þegar
örlögin gripu í taumana. Ég varð
ástfanginn. Ætlaði að flakka á
milli landa en svo gat ég ekki hald-
ið í mér og elti ástina heim. Opnaði
Búlluna hér á Bíldshöfða og ákvað
að halda þessu ævintýri áfram.
Hver veit hvað hefði gerst ef við
hefðum ílengst í Bandaríkjunum?“
Staðirnir eru margrómaðir á
erlendri grundu. Tommi segir
til dæmis að velgengni staðanna
beggja í London hafi farið fram úr
björtustu vonum. Þeir hafa aldrei
auglýst mikið enda segir Tommi
orðsporið vera bestu auglýs-
inguna. Sjálfur er hann ekki hrif-
inn af samfélagsmiðlum og fussar
og sveiar yfir Facebook.
„Við fengum til liðs við okkur
tvær stúlkur í London sem sáu
um að koma Búllunni á fram-
færi á samfélagsmiðlum úti. Þær
GRILLAR HAMBORGARA Tómas Tómasson hefur grillað óhemju marga hamborgara um ævina og hérna sýnir hann hvernig
fagmenn bera sig að. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA