Fréttablaðið - 07.06.2014, Blaðsíða 97
LAUGARDAGUR 7. júní 2014 | SPORT | 61
FRJÁLSAR Norðurlandamótið í fjöl-
þrautum ungmenna fer fram á
Kópavogsvelli um helgina en alls
eru 56 keppendur skráðir til leiks,
þar af þrettán frá Íslandi en und-
anfarin misseri hefur mjög margt
efnilegt fjölþrautarfólk komið
fram hér á landi.
Í þeirra hópi eru synir Jóns Arn-
ars Magnússonar, fyrrverandi tug-
þrautarkappa. Krister Blær keppir
í flokki 18-19 ára en Tristan Freyr
í flokki 16-17 ára.
„Þeir eru orðnir mun betri en
ég var á þeirra aldri,“ sagði Jón
Arnar. „Þeir vita þó að það er
engin pressa á þeim enda gera
þeir þetta allt á sínum forsendum,“
segir hann en ítarlega er rætt við
hann á íþróttavef Vísis.
Fyrr í vetur bætti Tristan Freyr
Íslandsmetið innanhúss í sjöþraut
í sínum aldursflokki er hann fékk
4.741 stig. Hann á einnig metið í
stangarstökki innanhúss í sama
aldursflokki. Báðir hafa stórbætt
árangur sinn á milli ára og báðir
eru öflugir í stangarstökki, rétt
eins og karl faðir þeirra var.
Sveinbjörg Zophaníasdóttir
tekur þátt í mótinu og á hún titil að
verja í flokki 22 ára og yngri. Hún
á næstbestan árangur í sínum ald-
ursflokki í ár, 5.479 stig, á Norður-
löndunum en aðeins Frida Thorsås
frá Noregi hefur gert betur með
5.533 stig. Ingi Rúnar Kristinsson
og Arna Stefanía Guðmundsdótt-
ir þykja einnig líkleg til afreka en
bæði hafa áður unnið til verðlauna
á Norðurlandamótum.
Fyrri keppnisdagur hefst á
Kópavogsvelli klukkan 9.15 í dag
og sá síðari á morgun klukkan
10.00. - esá
Strákarnir mun betri en ég var
Norðurlandamótið í fj ölþrautum ungmenna fer fram á Kópavogi um helgina.
FEÐGAR Jón Arnar Magnússon með sonum sínum sem keppa á Kópavogsvelli um
helgina, Krister Blæ og Tristan Frey. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
KRUSHER
PI
PA
R
\
TB
W
A
SÍ
A
14
0
8
4
5
PA
PIPA
RR
\
BW
TBW
A
SÍA
SÍA
SÍA
14
0
8
49
14
0
8
49
HM stöðin
6
DAGAR
FÓTBOLTI Kolbeinn Sigþórsson,
framherji íslenska landsliðsins
og Ajax, var orðaður við enska
úrvalsdeildarliðið QPR í enskum
miðlum í gær. Kolbeinn viður-
kenndi í samtali við blaðamann
Fréttablaðsins í síðustu viku að
tími væri kominn til þess að taka
næsta skref á ferlinum.
QPR sýndi Kolbeini áhuga í
janúarglugganum en hollenski
klúbburinn var ekki tilbúinn að
leyfa Kolbeini að fara á miðju
tímabili. Afstaðan er önnur í dag
og er klúbburinn tilbúinn að selja
Kolbein fái hann rétt verð fyrir
hann. - kpt
Orðaður
við QPR
Á FÖRUM Kolbeinn er sennilega á
förum frá Ajax. FRÉTTABLAÐIÐ/ANDRI MARINÓ
TENNIS Rafael Nadal er kominn
í sinn níunda úrslitaleik á Opna
franska meistaramótinu á síðustu
tíu árum.
Nadal fór heldur létt með
Bretann Andy Murray í
undanúrslitum í gær og
mætir Novak Djokovic í
úrslitaviðureigninni á sunnudag.
Nadal, sem oft er kallaður
konungur leirsins, hefur unnið
þrettán stórmót, þar af Opna
franska átta sinnum. Enginn
hefur unnið neitt stórmótanna
svo oft.
Djokovic hafði fyrr um daginn
betur gegn Ernests Gulbis í sinni
undanúrslitaviðureign.
Opna franska meistaramótið
er eini stórmeistaratitillinn sem
Djokovic hefur ekki tekist að
vinna á ferlinum. - esá
Stórslagur
í úrslitum
KONUNGUR Nadal virðist vera
óstöðvandi á leirnum. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY